Morgunblaðið - 28.05.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.05.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020 Hlíðasmári 6. Sími: 510 7900. www.fastlind.is · www.nyjaribudir.is Hannes Steindórsson Lögg. fasteignasali 699 5008 hannes@fastlind.is Nánari upplýsingar: Þriggja herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð með 40 fm þakgarði úr lerki, rúmgóðum svölum sem snúa út í garð ásamt bílastæði í bílakjallara Verð: 87.900.000 kr. Glæsileg penthouse íbúð · Aukin lofthæð er í húsinu · 280 cm og gólfsíðir gluggar. · Innréttingar eru frá danska fyrirtækinu JKE þar sem framleiðslan er einstaklega vönduð. · Innréttingarnar ná allar upp í loft til þess að hámarka geymslurými íbúðanna. · Öll rafmagns- tæki eru frá Miele og blöndunar- og hreinlætis- tæki frá Tengi. · Lýsing er hönnuð af Lumex. Arnarhlíð 2 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru allir í viðbragðsstöðu og um leið og samgöngur opnast milli landa skýrist hvenær hægt verður að ganga frá þessum tengingum. Það er töluverð pressa að fá þetta inn, ég veit að Vegagerðin hefur þrýst á þar um,“ segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. Herjólfur hefur frá því í janúar siglt á hreinu rafmagni frá Vest- mannaeyjum en enn á eftir að ljúka stillingum, forritun og öðrum frágangi við hleðslukerfið í Land- eyjum. Kórónuveirufaraldurinn hefur tafið verkið. „Við siglum því enn blandaðri siglingu frá Landeyjahöfn til Eyja, á olíu og rafmagni, en væntum þess að erlendir sérfræðingar komist hingað innan tíðar til að ljúka framkvæmdum í Landeyja- höfn.“ Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu er talsvert mál að ganga frá umræddum hleðslubún- aði og stilla hann. Sérfræðingar frá ABB og Stemmann Technik þurfi að finna hentugan tíma. Þó að hægt sé að ljúka frágangi á tveimur til þremur dögum sé þetta mikil nákvæmnisvinna. Að sögn Guðbjarts er umræddur búnaður sjálfvirkur í tíu metra háum hleðsluturnum og á þeim eru arm- ar sem tengja hleðslubúnað á milli skips og lands. Þrívíddaraugu lesa staðsetningu á móttakaranum í skipinu og armurinn stillir sig af í samræmi við það. Búnaðurinn tek- ur mið af flóði og fjöru og hreyf- ingu í höfninni þannig að svigrúm- ið til að tengjast er nokkuð mikið. Þessu fylgir auk þess töluverð for- ritun og tengingar sem þurfa að vera í lagi svo allt gangi upp. „Svo leiðir tíminn í ljós hvernig þetta verður. Við eigum svolítið eftir að stilla okkur saman og finna hagkvæmasta siglinga- mátann,“ segir Guðbjartur. Morgunblaðið/Óskar Pétur Hleðsla í heimahöfn Herjólfur hlaðinn við bryggju í Vestmannaeyjum. Herjólfur þarf enn olíu á heimleiðinni  Hleðslukerfið í Landeyjum óklárað sett á tímabundið. Átti hún að starfa í að hámarki fimm ár, en frá þeim tíma eru nú liðin rétt um 11 ár. Sala á umræddum hlut virðist jafnframt ekki vera í sjónmáli. Eiginfjárkröfur of háar Háar eiginfjárkröfur eru á ís- lenskum bönkum, sem jafnframt hefur orðið til þess að erfitt hefur reynst að ná upp góðri arðsemi eig- in fjár. Að sögn Snorra er mikil- vægt að eiginfjárkröfur á banka séu nú lækkaðar. Slíkt geti skipt sköp- um í núverandi ástandi. „Nú er tími til að lækka eigið fé í bönkunum og gera bankana þannig söluvænni með hækkandi arðsemi. Með lægri kröfum myndi vaxta- munur jafnframt lækka, sem kæmi almenningi til góða. Þannig myndi lántaka aukast, sem hefur marg- földunaráhrif út í þjóðfélagið,“ segir Snorri og bætir við að nýta þurfi næstu mánuði í að endurskipuleggja efnahagsreikning bankanna. Með lægri eiginfjárkröfum og útgáfu víkjandi lána sé hægt að horfa til þess að selja umrædda eignarhluti eftir tvö til þrjú ár. „Staðan verður skýrari á næstu sex mánuðum þeg- ar við erum komin yfir mestu óviss- una. Það er ekki skynsamlegt að gera neitt núna, en fljótlega gætum við farið að undirbúa söluferli. Ef vel tekst til er hægt að miða við að selja bankana eftir tvö til þrjú ár,“ segir Snorri, sem kveðst aðspurður horfa jákvæðum augum til samein- ingar ákveðinna eininga innan ís- lenskra banka. „Ég held að það verði ekki hægt að vera með bara tvo banka, en það er klárlega hægt að skoða hvort mögulegt sé að sameina grunnkerfi bankanna,“ segir Snorri. Mikilvægt að losa fjármagnið Ljóst er að bankar munu þurfa að taka á sig talsvert högg sökum út- lánatapa er skapast sökum heims- faraldurs kórónuveiru. Að sögn Snorra eru íslenskir bankar þó gríðarlega vel fjármagnaðir og munu af þeim sökum eiga í litlum vandræðum með að komast í gegn- um ástandið. „Bankar hér á landi eru umtalsvert betur fjármagnaðir en erlendir bankar. Það mun auðvit- að taka tíma fyrir áhrif veirunnar að koma fram og þau munu koma fram yfir eitthvert tímabil. Ég held að tap sökum ástandsins muni að minnsta kosti hlaupa á hagnaði rúmlega eins árs, en það er ekki neitt sem ógnar eiginfjárstöðu bankanna,“ segir Snorri og bætir við að ríkið sé með gríðarlega fjár- muni bundna í bönkunum. Þá sé mikilvægt að losa um hluta þess fjármagns. „Það eru gríðarlegir fjármunir fastir í bönkunum sem nýtast í raun engum. Með því að gefa út víkjandi lán og lækka eiginfjárkröfur er hægt að losa um gríðarlega fjár- muni. Þannig væri hægt að nýta peningana í önnur mikilvæg verk- efni,“ segir Snorri. Verðmæti ríkisbanka snarminnkar  Gera má ráð fyrir að verðmætarýrnun frá áramótum sé um 100 milljarðar króna  Lækka verður eiginfjárkröfur til að gera banka söluvænlegri  Nýta verður næstu mánuði í endurskipulagningu Samsett mynd/Eggert Bankar Ef marka má markaðsverð Arion banka hefur verðmæti íslensku ríkisbankanna minnkað umtalsvert. BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Ef miðað er við markaðsvirði Arion banka má ráðgera að eignarhlutur ríkisins í Íslands- og Landsbanka hafi dregist saman um ríflega 100 milljarða króna frá áramótum. Í upphafi árs var P/B hlutfall Ar- ion banka rétt undir 0,8 kr. en hefur frá þeim tíma lækkað um ríflega 30% og stendur nú í tæp- lega 0,54 kr. Séu sömu hlutföll yfirfærð á ríkis- bankana má fljótt sjá að verðmæti þeirra hefur hríð- fallið undanfarna mánuði. Að sögn Snorra Jakobssonar sér- fræðings í greiningum er ljóst að tækifæri til sölu á framangreindum eignarhlut er runnið ríkissjóði úr greipum í bili. Selja hefði þurft hlut ríkisins í bönkunum talsvert áður en áhrifa kórónuveirunnar tók að gæta hér á landi. „Það er alltaf hægt að rífast um hvenær rétti tíminn til að selja er. Það hefði þó verið betri að losa um þetta fyrir ári. Svo má jafn- vel segja að selja hefði átt hlut rík- isins fyrir 3-4 árum,“ segir Snorri og bendir á að Bankasýsla ríkisins, sem heldur á eignarhlut ríkisins í bönkunum, hafi upphaflega verið Snorri Jakobsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.