Morgunblaðið - 28.05.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Range Rover Sport HSE PHEV
Verð frá: 15.590.000 kr.
Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun,
framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega
lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti.
Verið velkomin í reynsluakstur!
RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ
Í RANGE ROVER
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
1
0
7
B
íll
á
m
yn
d
er
m
eð
D
yn
am
ic
út
lit
sp
ak
ka
se
m
er
ek
ki
in
ni
fa
lin
n
ív
er
ð
i
SVIÐSLJÓS
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Meirihluti íbúa á höfuðborgarsvæðinu segist
andvígur því að Laugavegur, Bankastræti og
Skólavörðustígur verði gerð að göngugötum
allt árið um kring. Eins segist meirihluti íbúa
vera ólíklegri til að heimsækja miðborg
Reykjavíkur ef áðurnefndar götur yrðu gerðar
að göngugötum allt árið um kring. Eru þetta
niðurstöður könnunar Maskínu sem gerð var
fyrir Miðbæjarfélagið dagana 3.-12. mars sl.
Könnunin var lögð fyrir slembiúrtak úr þjóð-
gátt Maskínu, sem er hópur fólks dreginn með
tilviljun úr Þjóðskrá, og voru svarendur 925 á
aldrinum 18-75 ára af höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar Gunnarsson, talsmaður Miðbæjar-
félagsins í Reykjavík, segir þessa niðurstöðu
ekki koma sér á óvart.
„Við finnum greinilega fyrir því að almenn-
ingur er að átta sig á að ástandið á Laugavegi
og neðri hluta Skólavörðustígs er að verða
ólíðandi enda eru neikvæðar afleiðingar götu-
lokana nú að koma betur í ljós,“ segir Gunnar í
samtali við Morgunblaðið og bætir við að fólk
kjósi í æ ríkari mæli að versla annars staðar en
í miðbæ Reykjavíkur vegna lokana þar.
„Það sem veldur mestum áhyggjum er sá
mikli fjöldi borgarbúa sem segist vera ólíklegri
til að heimsækja miðborgina ef lokað er, en
miðborgin þarf á sem flestum að halda til að
geta lifað af,“ segir Gunnar og vísar í máli sínu
til þess að 36% höfuðborgarbúa eru á þeirri
skoðun, samkvæmt könnun Maskínu. „Svo má
ekki gleyma einu; veðrinu. Reykjavík er á 64.
breiddargráðu norður. Gatan ein og sér getur
ekki búið til mannlíf – veðrið býr til mannlíf.“
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, segir áhugavert að meirihluti fólks
sé á móti götulokunum í miðbæ Reykjavíkur.
„En aðalatriðið í þessu er sú afstaða fólks að
vilja síður mæta í miðborgina ef lokað er allt
árið. Í miðborginni eru menn að glíma við mik-
inn rekstrarvanda sem kominn var löngu fyrir
faraldur kórónuveiru. Fram til þessa höfum
við heyrt viðhorf rekstraraðila í garð götu-
lokana og nú kemur viðhorf neytandans fram
með skýrum hætti; hann mun síður fara í mið-
borgina ef lokað er fyrir bílaumferð allt árið.
Þessi afstaða höfuðborgarbúa er í mikilli and-
stöðu við það sem borgaryfirvöld leggja
áherslu á. Þetta kallar á viðbrögð; að hlusta á
fólk og hætta að berjast á móti vilja þess.“
Framkoma meirihlutans sé valdníðsla
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Mið-
flokksins, segist fagna því að vilji íbúa komi nú
fram með skýrum hætti. Hún hafi lengi bent á
þá staðreynd að fólk vilji hafa gott aðgengi að
miðbæ Reykjavíkur.
„Fólk er augljóslega á móti þessum lok-
unum og framkoma meirihlutans í Reykjavík
er ekkert annað en valdníðsla og í hrópandi
andstöðu við það sem fólk vill. Svo má nú ekki
gleyma því að stjórnsýsla ríkisins er öll meira
og minna vestan Snorrabrautar. Er ég þá með-
al annars að vísa til Hæstaréttar Íslands, ráðu-
neyta og húsnæðis Ríkisskattstjóra og Toll-
stjóra. Það er markvisst verið að útrýma öllum
bílastæðum á þessu svæði, sem kemur í veg
fyrir að Reykvíkingar og almenningur allur í
þessu landi hafi aðgengi að lykilstofnunum.
Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál og þessi
skýri vilji fólks sem fram kemur í könnuninni
er ekkert annað en algjör falleinkunn fyrir
borgarstjóra og meirihlutann eins og hann
leggur sig,“ segir Vigdís.
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi
Flokks fólksins, segir óánægjuraddir í garð
meirihlutans og stefnu hans aukast í sífellu,
einkum hjá íbúum í úthverfum Reykjavíkur.
„Þeir eru þó fleiri sem eru ósáttir, má til
dæmis nefna eldri borgara sem eiga erfitt með
að nálgast miðbæinn vegna slæms aðgengis
þar og fólk á landsbyggðinni. Ég hef lagt fram
hinar ýmsu tillögur um úrbætur og þær eru
alltaf felldar um leið. Hugsunarháttur meiri-
hlutans er hreint út sagt óskiljanlegur,“ segir
Kolbrún og bætir við að nú sé lag að staldra
við og viðurkenna mistök í skipulagsmálum.
„En ég er ekki bjartsýn á að það gerist. Þau
ætla sér að halda áfram og stækka göngugötu-
svæðið enn frekar. Ég hef miklar áhyggjur af
þessari þróun, miðbærinn verður draugabær.“
Könnunin sé ákall um betri kynningu
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi
Pírata og formaður skipulags- og samgöngu-
ráðs, segir könnunina ákall um að kynna betur
kosti göngugatna. „Við vitum hvernig göngu-
götur virka, hvaða áhrif þær hafa í heiminum
og þetta er ekkert öðruvísi hér á Íslandi. Það
er alltaf ákveðinn hluti sem mótmælir og ann-
ar sem er hlynntur. Niðurstaðan er alltaf sú
sama; þær skapa meira mannlíf, betra
rekstrarumhverfi og eftirsóknari miðbæ.“
Höfuðborgarbúar gegn lokunum
Meirihluti íbúa á höfuðborgarsvæðinu segist vera ólíklegri til að heimsækja miðbæ Reykjavíkur
vegna götulokana Afstaða íbúa er falleinkunn fyrir meirihlutann í Reykjavík, segir borgarfulltrúi
Viðhorf fólks til göngugatna í Reykjavík*
Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að Laugavegur og Bankastræti, frá
Hlemmi og að Þingholtsstræti, og neðri
hluti Skólavörðustígs verði gerður að
göngugötu allt árið um kring?
Værir þú líklegri eða ólíklegri til að
heimsækja miðborg Reykjavíkur ef
áðurnefndar götur yrðu gerðar að
göngugötu allt árið um kring?
Hlynnt(ur), 41%
Í meðallagi, 15%
Andvíg(ur), 44%
Líklegri, 27%
Hvorki né, 37%
Ólíklegri, 36%
*Könnun Maskínu fyrir Miðbæjarfélagið. Svarendur eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu.
44% 41%
36% 27%
Skannaðu kóðann til að
lesa meira um þetta mál
á mbl.is.