Morgunblaðið - 28.05.2020, Side 18

Morgunblaðið - 28.05.2020, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020 TRYGGINGASTOFNUN TRAUST - SAMVINNA - METNAÐUR Við þökkum góðar undirtektir við aukinni fjarþjónustu TR á undanförnum vikum og hvetjum viðskiptavini til að halda áfram að nýta Mínar síður í samskiptum við okkur. Við veitum ráðgjöf og aðstoð í síma 560 4400, netfangið okkar er tr@tr.is. Þjónustumiðstöð TR í Hlíðasmára 11 er opin kl. 9–15 virka daga, einnig er opið hjá umboðsmönnum TR um land allt. ALLTAF OPIÐ á Mínum síðum TR Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég tel að skólinn og reynslan af því að búa hér úti nýtist mér vel í lífinu. Ég lærði mikið um mig sjálfa og lærði að læra. Ég er með athyglis- brest og það hefur háð mér við nám alla tíð, ég hafði aldrei trú á mér. Það að ljúka háskólanámi er mikill sigur, út af fyrir sig,“ segir Díana Hrund Gunnarsdóttir sem lauk fyrr í mán- uðinum námi í afbrotafræði og sál- fræði við Dixie State University í St. George í Utah-ríki í Bandaríkjunum. Lauk hún námi með góðum ein- kunnum. Meðal annars fékk hún 9,8 fyrir BS-verkefni sitt og var ritgerð- in tilnefnd til útgáfu af Utah Valley University. Segir hún ekki víst að rit- gerðin verði birt í ritinu en það sé allavega heiður að fá tilnefningu. Hún fékk einnig ýmsar viðurkenn- ingar fyrir námsárangur. „Ég er ánægð. Þetta er framar mínum björtustu vonum og athygl- isvert í ljósi þess að mér hafði ekki gengið vel í námi áður. Það sýnir að ef hugarfarið er rétt getur maður allt sem maður ætlar sér.“ Skemmtilegt að læra Vegna heimsfaraldursins var út- skriftinni sem vera átti í byrjun maí frestað fram í desember. „Ég beið spennt eftir deginum og það er svekkjandi að fá ekki að fagna þessu,“ segir hún. Díana er úr Garðabæ og flutti fyrir nokkrum árum til Kaliforníu. „Frá því ég var lítil hefur það verið draum- ur hjá mér að flytja til Bandaríkj- anna og ganga í háskóla þar. Ég var orðin 24 ára þegar ég lét loksins verða af því. Ég var eitt og hálft ár í Kaliforníu en okkur langaði að vera á rólegri og fjölskylduvænni stað og fundum þessa borg. Hér tók ég seinni tvö árin í þverfaglegu námi í afbrotafræði og sálfræði.“ Hún segir að hún og maður henn- ar séu að íhuga næstu skref. Vel komi til greina að fara til annars lands og fara í meistaranám í af- brotafræði eða jafnvel venda kvæði sínu í kross og læra hjúkrunarfræði. „Það er ótrúlega skemmtilegt að læra,“ segir Díana. Mikill sigur fyrir mig að ljúka háskólanámi  Díana Gunnarsdóttir er með athygl- isbrest en lauk námi í afbrotafræði Útskrifuð Díana Hrund Gunn- arsdóttir stóð sig vel í náminu. mála- og menningarbakgrunn á landinu öllu, segir Lilja. Hún segir að þetta sé liður í þeim aðgerðum sem farið hefur verið í til þess að styrkja menntakerfið enn frekar. „Við vitum hver staðan er og að við þurfum að styrkja hana. Skýrslan og leiðarvísirinn fjalla um stöðuna nú, viðbrögð og tillögur. Fyrsta nálgun er að við erum með fjölmenningarlegt skólastarf og við teljum mikinn ávinning í því fyrir bæði börn með íslensku að móður- máli og börn sem ekki eru með ís- lensku að móðurmáli,“ segir Lilja. Sumt af því sem starfshópurinn leggur til er þegar komið til fram- kvæmda. Til að mynda stöðumat fyrir börn sem eru að koma hingað til lands. Samkvæmt stöðumatinu er lagt mat á fyrri þekkingu, reynslu og námslega stöðu barna af erlendum uppruna við upphaf skólagöngu. Matið er fyrir nýkomna nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum og er aðgengilegt á rafrænu formi. Út frá niðurstöðum matsins verði unnar kennsluáætlanir/einstaklingsáætl- anir fyrir viðkomandi nemanda. Lilja bendir á að þetta sé nýmæli hér á landi, að horft er til þekkingar og valds barna og ungmenna á öðr- um tungumálum líkt og gert er með stöðumatinu. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, sem starfar á fræðslusviði Reykja- nesbæjar og er í stýrihópnum, segir að með stöðumatinu séu að koma fram mjög mikilvægar upplýsingar sem ekki hafi komið fram áður. „Flestir leik- og grunnskólar eru með móttökuáætlun og leggja fram spurningalista fyrir foreldra þegar börnin eru að byrja. Nú er hægt að spyrja mun nánar út í stöðu nem- enda og um leið myndast nánara samband og betri tengsl við heimilið. Í framhaldinu er metin staða þeirra í læsi og talnaskilningi,“ segir hún. Jóhanna Einarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður stýrihópsins, segir að margt hafi breyst í íslensku skólastarfi á stutt- um tíma. Nú séu um 14% barna af erlendum uppruna og allt að 70% í sumum leikskólum. „Við erum með kennara sem voru að mennta sig þegar staðan var önn- ur. Við þurfum að styðja mikið við þetta fólk í starfi, til dæmis með sí- menntun og starfsþróun,“ segir hún en í tillögum starfshópsins er lagt til að tryggt verði að kennsla barna og ungmenna af erlendum uppruna verði hluti af grunnmenntun allra kennara og tómstunda- og félags- málafræðinga. Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, sem sat í stýrihópum og starfar hjá mennta- og menningarmálaráðu- neytinu, segir nauðsynlegt að auka símenntun og áhersla sé á börn með erlendan bakgrunn. Ekki sé hægt að horfa fram hjá þessum stóra hópi nemenda í íslensku skólakerfi. „Þessi börn eru ekki vandamál heldur er þetta styrkur og auðlind fyrir íslenskt samfélag að fá þetta fólk til okkar,“ segir Jóhanna en í skýrslunni er lagt til að fjölmenning- arlegt skólastarf, sem fagnar marg- breytileika, fjölbreytni í nemenda- hópnum og byggir á auðlindum og styrkleikum barna og ungmenna, verði aðalsmerki skólakerfisins á Ís- landi. Eru ekki vandamál heldur auðlind  Fjölmenningarlegt skólastarf sem fagnar margbreytileika og fjölbreytni í nemendahópnum Morgunblaðið/Eggert Menntun Jóhanna Einarsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir og Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir. SVIÐSLJÓS Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Börnum með erlendan bakgrunn vegnar verr í íslensku skólakerfi en jafnöldrum þeirra og það er verulegt áhyggjuefni að því er fram kemur í drögum að stefnu í menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Þau upplifa frekar útilokun, van- líðan og einangrun. Þau eiga mörg í erfiðleikum með að taka virkan þátt í samfélaginu og ráða við náms- kröfur. Þeim gengur verr í sam- ræmdum prófum og þau hætta frek- ar í framhaldsskóla. Einnig eru vísbendingar um að kennarar telji sig illa í stakk búna til að kenna þessum hópi og finnst þeir eigi erfitt með að sníða skólastarfið að þörfum nemenda með ólíkan menningar- og tungumálabakgrunn. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, skipaði starfshóp í fyrra til að skoða og kort- leggja stöðu þessa hóps og móta drög að menntastefnu sem tekur mið af fjölbreyttum hópi barna og ungmenna frá ólíkum menningar- heimum. Starfshópurinn hefur skil- að skýrslu þar sem lagðar eru til úr- bætur í þessum málum. Jafnframt hefur Lilja kynnt í ríkisstjórn Ís- lands leiðarvísi um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi. Þetta er í fyrsta skipti sem unnin er stefna í menntamálum barna og ungmenna með fjölbreyttan tungu-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.