Morgunblaðið - 28.05.2020, Side 20
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Í gamla daga var það fyrsta sem
maður fékk sér þegar maður kom
heim frá útlöndum lítil kók, pylsa og
Prins póló. Núna er það Bríó,“ segir
Kormákur Geirharðsson veitinga-
maður.
Tíu ár eru nú liðin frá því bjórinn
Bríó var settur á markað. Bríó er
hugarfóstur Kormáks og Skjaldar á
Ölstofunni og þróaður í samstarfi við
Sturlaug Jón Björnsson, bruggmeist-
ara hjá Borg brugghúsi. Margt hefur
breyst á þessum áratug og ófáir lítr-
arnir runnið ofan í landsmenn. Bríó
þykir hafa plægt jarðveginn fyrir vin-
sældir handverksbjórs hér á landi.
Heil meðganga í þróun
„Þetta átti í upphafi bara að vera
okkar lókal bjór á Ölstofunni. Ölgerð-
in var að hætta með umboðið á
Grolsch sem var okkar aðalbjór og
okkur hugnaðist ekki nein annar bjór
sem í boði var. Sem betur fer var
Borg brugghús að fæðast á þessum
tíma og því var ákveðið að þróa bjór
fyrir okkur þar.“
Kormákur segir að þrjár tegundir
af bjór hafi verið kynntar veitinga-
mönnunum í upphafi. „Eins og allir
bruggmeistarar gera þá komu þeir
með IPA og eitthvað blabla. Við sögð-
umst bara vilja fá lagerbjór en þó
ekkert skandinavískt sull. Það yrði að
vera hægt að drekka lágmark tíu í
röð af honum án þess að verða leiður
á honum. Semsagt langdrykkjubjór
en hann mátti ekki vera sterkur svo
maður yrði ekki of fullur.“
Í hönd fór stíft tímabil prófana þar
sem kúnnarnir á Ölstofunni og ýmsir
aðrir voru kvaddir til í ráðgjafarstörf.
„Þetta voru mjög menningarlegar og
hátíðlegar smakkanir. Bruggmeist-
ararnir komu svo á 2-3 mánaða fresti
og uppfærðu uppskriftina. Svona
gekk þetta í níu mánuði. Þetta var
heil meðganga af þessum tilraunum.
Ég man nú ekki hvort við gengum
eitthvað fram yfir en á endanum vor-
um við sáttir. Svo hefur þetta barn
fengið að vaxa og er nú komið í
tveggja stafa tölu. Það líður að því að
við förum að ferma.“
Klökkur á enduropnuninni
Kormákur segir að afmælinu verði
fagnað með veglegri veislu á næst-
unni. Ekki sé ólíklegt að gestum í
veislunni verði boðið upp á þýskar
pylsur og humar með pilsnernum vin-
sæla. Þá eru uppi áform um að end-
urhanna umbúðir Bríó. „Á sínum
tíma vorum við með samkeppni um
hönnun Bríó í okkar stóra kunn-
ingjahópi. Nú stendur til að fríska
eitthvað upp á útlitið og ég held að
hugmyndin sé að fara svipaða leið og
halda hönnunarsamkeppni. Ætli við
borðum ekki pylsur og skálum í veisl-
unni þegar nýja útlitið verður kynnt.“
Afmæli Bríó bar upp á miðvikudag
en þeir félagar tóku forskot á sæluna
á mánudaginn en þann dag voru krár
opnaðar á ný eftir að slakað var á
samkomubanni. „Þetta var alveg
rosalegt. Það lá við að maður væri
klökkur. Um kvöldið var klappað fyr-
ir hverjum fastagesti sem lét sjá sig.
Það voru allir svo ótrúlega glaðir.“
Tíu ár af gleði og lífsins lystisemdum
Áratugur er liðinn síðan hinn vinsæli bjór Bríó kom á markað Átti í fyrstu bara að vera fyrir
gesti Ölstofunnar Plægði jarðveginn fyrir handverksbjór á Íslandi Nýtur vinsælda í Kanada
Ljósmynd/Baldur Kristjáns
Skál! Veitingamennirnir Skjöldur Sigurjónsson og Kormákur Geirharðsson skála í Bríó á Ölstofunni. Hvorki í fyrsta né í síðasta sinn.
Áratugur af Bríó
2009 Þróun Bríó hefst í lok september. Bjórinn var
smakkaður og þróaður í samvinnu við fastagesti
Ölstofunnar í drekkutímum
næstu mánuði þar á eftir.
2010 Hinn 27. maí er Bríó fullskap-
aður og sala hefst á Ölstofunni.
Það var eini staðurinn sem
hann fékkst næstu 16 mánuði.
Bríó er nefndur eftir góðum vini
Kormáks og Skjaldar, fjöllista-
manninum Steingrími Eyfjörð
Guðmundssyni, sem lést fyrir aldur fram árið
2009. Hann var kallaður Bríó, en bríó er gamalt
ítalskt orð yfi r gleði.
2011 Sala á Bríó hefst í
ÁTVR síðla hausts.
2012 Bríó hlaut gullverðlaun í fl okki
þýskra pilsnerbjóra á virtustu
bjórverðlaunum heims,
World Beer Cup. Sama ár var
Bríó bæði valinn besti pilsnerbjórinn í Evrópu
og um heim allan á World Beer Awards.
2013 Útfl utningur hefst á Bríó. Bjórinn er meðal
annars seldur í Kanada og Svíþjóð.
2014 Bríó hlaut gullverðlaun á Global Craft Beer Awards.
H
ei
m
ild
: Ö
lg
er
ði
n
3,6
milljón lítrar
hafa selst
af Bríó á
Íslandi síðan
bjórinn kom
á markað
900
þúsund lítrar hafa
verið fl uttir út af Bríó
frá árinu 2013. Stærsti
markaðurinn er í Kanada
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
LÉLEG
RAFHLAÐA?
Við skiptum
um rafhlöðu
samdægurs
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Aðalfundur
Aðalfundur Ísfélags Vestmannaeyja hf. fyrir árið 2019 verður
haldinn á skrifstofu félagsins, Tangagötu 1 í Vestmannaeyjum,
fimmtudaginn 11. júní 2020 kl. 16:00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnurmál. Fyrir liggur tillaga
stjórnar um að kosnir verði fjórir stjórnarmenn. Óskað er eftir að
framboð til stjórnar berist eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund.
Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja hf.