Morgunblaðið - 28.05.2020, Page 30

Morgunblaðið - 28.05.2020, Page 30
30 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 ER BROTIÐ Á ÞÉR? Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur. Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst. Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn. HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT. botarettur.is Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, staðfesti í gær að Bandaríkjastjórn teldi að Hong Kong nyti ekki lengur sjálfræðis, sem aftur leiddi til þess að þær íviln- anir sem borgin hefur notið í við- skiptum við Bandaríkin sem sjálf- stjórnarhérað innan Kína voru felldar úr gildi. Stefnt var að því að kínverska al- þýðuþingið myndi staðfesta frum- varp um ný þjóðaröryggislög fyrir Hong Kong í nótt, en gagnrýnendur frumvarpsins hafa sagt að það brjóti gegn þeim viðmiðum um sjálfstæði Hong Kong sem héraðið átti að njóta í hálfa öld eftir að Bretar afhentu Kínverjum það árið 1997. „Engin skynsöm manneskja getur sagt að Hong Kong njóti mikils sjálf- stæðis frá Kínverjum eins og staðan er nú,“ sagði Pompeo þegar hann kynnti ákvörðunina. Sagði hann að Bandaríkin stæðu með íbúum Hong Kong í baráttu þeirra gegn aukinni ágengni kínverska kommúnista- flokksins, en mótmæli hafa verið í Hong Kong vegna frumvarpsins. Hong Kong „ekki sjálfstætt“  Bandaríkin afnema ívilnanir borgarinnar AFP Mótmæli Mikil óánægja er í Hong Kong meðal yngri íbúa borgarinnar. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ursula von der Leyen, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, kynnti í gær tillögur sínar að nýjum neyðarsjóði til að styðja ríki sambandsins eftir kórónuveiru- faraldurinn. Nemur upphæð sjóðs- ins um 750 milljörðum evra, eða sem nemur rúmlega 113.400 milljörðum íslenskra króna. Tillögur Von der Leyen miða að því að veita þeim aðildarríkjum Evr- ópusambandsins, sem verst hafa orðið úti í faraldrinum, efnahagsað- stoð, einkum Ítalíu og Spáni. Þannig er gert ráð fyrir í tillögunum að Ítalía muni fá um 81,8 milljarða evra í beina aðstoð á næstu árum, en það jafngildir rúmlega 12 þúsund millj- örðum íslenskra króna. Þá eiga Spánverjar að fá um 77,3 milljarða evra, eða rétt um 11,7 þús- und milljarða íslenskra króna í að- stoð frá Evrópusambandinu á næstu árum. Í heildina gera tillögurnar ráð fyrir því að sambandið muni veita aðildarríkjum sínum beina styrki upp að um 500 milljörðum evra, sem ekki muni þurfa að endurgreiða, en einnig verður boðið upp á að ríkin geti tekið lán frá sambandinu, sem að hámarki muni nema um 250 millj- örðum evra. Ekki allir á eitt sáttir Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, fagnaði tillögunum mjög og sagði að sambandið hefði með þeim sent skýrt merki um framhaldið. Ekki eru þó öll ríkin á einu máli um gagnsemi þeirra, þar sem betur stæð ríki í norðurhluta sambandsins hafa verið ófús til að taka á sig aukna skuldabyrði fyrir ríki í Suður- Evrópu, sem nú þegar eru of skuld- sett til þess að geta tekið á sig þann aukna kostnað, sem afleiðingar far- aldursins munu hafa í för með sér. Von der Leyen lagði sig fram í gær um að slá á efasemdaraddirnar. „Þetta er stund Evrópu,“ sagði hún á fundi Evrópuþingsins í gær. „Við verðum annaðhvort hvert í sínu horni, og skiljum ríki, landsvæði og þjóðir eftir … eða við fetum þessa braut saman.“ Ljóst er að aðildarríkin munu þurfa að komast að sameiginlegri niðurstöðu um tillögurnar og má gera ráð fyrir að Holland, Danmörk, Svíþjóð og Austurríki muni leggjast gegn vissum þáttum þeirra. Þannig lýsti Stefan Löfven, for- sætisráðherra Svíþjóðar, yfir von- brigðum sínum með það hversu hátt hlutfall af neyðarsjóðnum ætti að vera í formi styrkja. Sagði hann að þó að ljóst væri að neyðaraðstoðar væri þörf kæmi það á óvart að fram- kvæmdastjórnin legði til um 500 milljarða evra fjárútlát í styrki, án þess að nokkur krafa um endur- greiðslu kæmi á móti. „Svíþjóð hefur allan tímann kallað eftir því að sjóðurinn einbeiti sér að lánveitingum, sem veita sterkari hvata til þess að fjármagnið verði nýtt á skilvirkan hátt,“ sagði í yfir- lýsingu Löfvens. Lýsti hann jafn- framt yfir áhyggjum sínum yfir því að tillögurnar þýddu að Svíar myndu þurfa að greiða mun meira til sambandsins en þeir gera nú þegar. Verður ekki lokið á næstunni Hollenskur sendifulltrúi sem tjáði sig við AFP-fréttastofuna sagði að aðildarríkin væru langt í frá einhuga um tillögurnar og að gera mætti ráð fyrir löngum samningaviðræðum. „Það er erfitt að ímynda sér að end- anleg niðurstaða þeirra muni líta svona út,“ sagði hann. Angela Merkel Þýskalandskansl- ari lýsti því yfir í gær að hún teldi líklegt að samningaviðræður ríkjanna myndu vara allt fram að næstu áramótum. „Það er ljóst að við stefnum í erf- iðar viðræður, þeim verður ekki lok- ið fyrir næsta leiðtogafund sam- bandsins,“ sagði Merkel, en hann á að fara fram 19. júní. Sagði Merkel að ríkin ættu þess í stað að stefna að því að allt yrði tilbúið um næstu ára- mót. „Þetta er stund Evrópu“ AFP Tillögur Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, kynnti tillögurnar um neyðarsjóðinn í Evrópuþinginu í gær.  Gert ráð fyrir um 750 milljörðum evra í neyðaraðstoð til aðildarríkjanna  Þar af verða um tveir þriðju í formi styrkja  Langar samningaviðræður framundan Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í gær yfir megnri óánægju sinni með ákvörðun samskiptamið- ilsins Twitter um að merkja tvö af „tístum“ forsetans sem „rangar upplýsingar“. Skilaboðin sem um ræddi sneru að yfirlýsingum Trumps um að póstkosningar leiddu sjálfkrafa af sér kosningasvindl. Ákvað Twitter einnig að hlekkja við umrædd tíst á vefsíðu sem fjallar um kosningar með pósti. Trump sagði á twittersíðu sinni að samfélagsmiðlar væru að rit- skoða íhaldssamar skoðanir í Bandaríkjunum eða jafnvel að þagga alfarið niður í þeim. „Við munum setja á strangt regluverk, eða loka þeim, áður en við leyfum því að gerast,“ sagði Trump jafn- framt. Það var ekki útskýrt nánar hvernig hið herta regluverk myndi líta út. Hvorki Twitter né samskiptamið- illinn Facebook brugðust við yfir- lýsingum forsetans í gær. AFP Twitter Trump Bandaríkjaforseti er ósáttur við ákvörðun Twitter. Gagnrýnir ákvörðun Twitter

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.