Morgunblaðið - 28.05.2020, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
REYKJANES
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Íbúar Reykjanesbæjar eru þekktir
fyrir að kunna að gera sér glaðan
dag, vera lagið að njóta lífsins og
leggja rækt við menningu og listir.
Heimamenn ætla ekki að láta veiru-
faraldurinn stoppa sig og segir Þór-
dís Ósk Helgadóttir að undirbún-
ingur bæjarhátíða sumarsins sé
kominn á fullan skrið. „Við gætum
þess að fylgja vandlega öllum ráð-
leggingum yfirvalda og þurfum því
að gera bæði plan A, B og C fyrir alla
viðburði svo við séum við öllu búin.“
Þórdís er forstöðumaður Súlunnar
sem er ný skrifstofa á stjórnsýslu-
sviði Reykjanesbæjar og annast um-
sjón og þverfaglegt samstarf á sviði
atvinnuþróunar, ferðamála, mark-
aðsmála og menningarmála. Hún
hefur í mörg horn að líta enda blóm-
legt menningarlíf í Reykjanesbæ og
viðburðadagatal sumarsins fjöl-
breytt. Má t.d. nefna hátíðahöld 17.
júní, árvissa barnahátíð og svo að
sjálfsögðu Ljósanótt sem haldin er
fyrstu helgina í september.
Huldukindur á sveimi
Þessu til viðbótar verður í allt sum-
ar menningardagskrá í Duus Safna-
húsum, sem hýsa sýningarsali lista-
safns og byggðasafns, sem og í
öðrum söfnum bæjarins. „Í listasafn-
inu lýkur þann 29. maí framúrskar-
andi sýningu Loja Höskuldssonar og
Áslaugar Thorlacius, Innskoti, en 5.
júní verður opnuð sýning Steingríms
Eyfjörð. Sú sýning fjallar um nátt-
úru, trú, náttúruvernd og samskipti
við íslenska náttúruvætti og var sama
sýning áður sett upp í Feneyjum og
síðar í Listasafni Reykjavíkur. Þar
kemur við sögu huldukind sem slapp
laus svo að kalla þurfti til aðstoðar
miðil sem býr í Sandgerði,“ segir
Þórdís um listviðburðinn.
Einnig verður opnuð í listasafninu
í júní sýning Haralds Karlssonar, eða
Halla Kalla, undir listrænni stjórn dr.
Margrétar Elísabetar Ólafsdóttur.
Haraldur er þekktur fyrir að nýta
stafræna miðla í listsköpun sinni og
þar er von á mikilli sjónrænni upp-
lifun. „ Í sýningarsal byggðasafnsins
verður jafnframt ný sýning, Hlustaðu
á hafið, þar sem fjallað er um fisk-
veiðar og árabátaútgerð á Reykja-
nesi fyrr á tímum og gestum veitt
innsýn í löngu horfna veröld.“
Rokkað með þeim bestu
Víkingaheimar taka á móti gestum
með forvitnilegum sýningum um
landnám, norræna goðatrú og lífs-
hætti víkinga, en í Rokksafni Íslands
í Hljómahöll má kafa ofan í sögu ís-
lenskrar samtímatónlistar. „Þar eru
m.a. sérsýningar um feril Páls Ósk-
ars, önnur um Björgvin Halldórsson,
og nýr sýningargripur þróaður í sam-
vinnu við Gagarín sem samanstendur
af gagnvirkum plötuspilurum,“ út-
skýrir Þórdís. „Þar geta gestir sett
sérstakar plötur á þar til gerðan
plötuspilara og varpast þá mynd upp
á risaskjá tengd tónlistinni á plöt-
unni.“
Börnin finna margt við sitt hæfi í
söfnunum og hafa t.d. gaman af að
kíkja á Skessuna á bak við Duus
Safnahús, sem á það til að ropa eða
leysa vind við mikla gleði smáfólks-
ins. „ Rokksafnið býður líka upp á
hljóðbúr eða „soundlab“ þar sem
hægt er að spreyta sig á rafmagns-
trommusetti, gítar, bassa og söng. Þá
er Vatnaveröld í Sundmiðstöð Kefla-
víkur með frábæra innisundlaug með
leiktækjum þar sem yngsta kyn-
slóðin getur skemmt sér tímunum
saman.“
Menning og gleði við hvert fótmál
● Bæjarhátíðirnar verða á sínum stað í Reykjanesbæ í sumar og fjölbreytt dagskrá í söfnunum
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Upplifun Þórdís mælir með Vatnaveröld í Sundmiðstöðinni fyrir börnin.
Steinþór Jónsson segir marga Ís-
lendinga eiga eftir að uppgötva öll
þau undur sem Reykjanesskaginn
hefur upp á að bjóða. „Faðir minn
hafði það fyrir sið að fara með
barnabörnin sín í ævintýraferðir um
Reykjanesið, jafnvel oft í mánuði, og
í hvert skipti fann hann nýjan stað til
að heimsækja. Kynna þyrfti svæðið
betur því leitun er að skemmtilegri
áfangastað fyrir fjölskyldur, nátt-
úruunnendur og útivistarfólk.
Ferðalag um Reykjanesið getur ein-
faldlega ekki klikkað,“ segir hann og
minnir á að nafnið Blái demanturinn
hafi í seinni tíð fest við leiðina um
Reykjanesið svipað og leiðin upp að
Gullfossi og Geysi er iðulega kölluð
Gullni hringurinn.
Steinþór á og rekur Hótel Kefla-
vík en um er að ræða elsta hótel
svæðisins og eitt af rótgrónari ferða-
þjónustufyrirtækjum landsins. Mikil
uppbygging og metnaður hefur ein-
kennt starfsemi hótelsins á undan-
förnum árum og er þar í dag hægt að
hýsa allt að 150 gesti á 70 vistlegum
herbergjum auk 5 lúxussvíta á 5
stjörnu hótelinu Diamond Suites.
Nýjasta viðbótin er glæsilegur bar
sem fengið hefur nafnið Diamond
Bar. „Barinn er þannig hannaður að
hann myndar framlengingu af Ver-
sace-móttöku hótelsins og tengist
líka veitingastaðnum okkar KEF
Restaurant. Barinn er að hluta til
undir fallega innréttuðum glerskála
sem hægt er að opna upp á gátt þeg-
ar veður leyfir. Á daginn er áherslan
á hágæða kaffihúsastemningu með
kaffidrykkjum og ljúffengum kök-
um. Á kvöldin reiðum við fram smá-
rétti í fínni kantinum og drykki af
öllu tagi en hugmyndin er sú að Dia-
mond Bar verði góður staður til að
eiga ánægjulega og afslappaða
stund í góðum félagsskap bæði gesta
bæjarins og bæjarbúa.“
Til að setja punktinn yfir i-ið er
Diamond Bar með Moët-kampavíns-
sjálfsala sem Steinþór segir þann
fyrsta sinnar tegundar í Evrópu.
„Aðeins örfá fimm stjörnu hótel í
Bandaríkjunum hafa fengið að setja
þennan sjálfsala upp hjá sér. Það er
töluverð upplifun að fá sér kampavín
úr sjálfsalanum enda þarf að nota
sérstakan gullpening til að fá Moët-
flöskuna.“
Líflegt á veitingastaðnum
Eins og gefur að skilja hefur
heimsfaraldurinn bitnað harkalega á
hótelrekstri Steinþórs. Hann hefur
stýrt hótelinu í hálfan fjórða áratug
og þurft að takast á við miklar svipt-
ingar á þeim tíma, s.s. brottför varn-
arliðsins, eldgos í Eyjafjallajökli og
bankakreppu, og lætur því ekki kór-
ónuveiruna slá sig út af laginu.
Tók Steinþór þá ákvörðun að hafa
hótelið opið undanfarna mánuði
þrátt fyrir minnkuð viðskipti, m.a.
svo að flugáhafnir hefðu einhvern
stað til að gista á, enda koma enn
stöku vélar til landsins með bæði
farþega og frakt, auk þess að mik-
ilvægt er að halda sem flestum
starsfmönnum hótelsins í vinnu. Það
vegur að einhverju leyti upp á móti
fækkun hótelgesta að nóg hefur ver-
ið að gera á veitingastaðnum: „Und-
anfarnar vikur hefur KEF Restaur-
ant verið fullbókaður af
heimamönnum og gestum úr öðrum
landshlutum. Við höfum getað búið
þannig um matargesti að gott pláss
er á milli fólks og geta t.d. smærri og
stærri hópar haft sitt sérrými á mót-
tökusvæðinu. Hingað þykir fólki
gott að koma til að gera vel við sig í
mat og drykk, og njóta allra þeirra
þæginda sem hótelið hefur upp á að
bjóða.“
Steinþór mælir með því að fólk
gisti á Reykjanesi í nokkrar nætur,
ferðist um allt svæðið, heimsæki
náttúruundur, söfn, verslanir og alla
þá góðu veitingastaði sem þar má
finna. Nefnir hann sérstaklega nýtt
samstarfsverkefni ferðaþjónust-
unnar á svæðinu þar sem ferða-
langar geta fengið hagstæð tilboð og
afslætti hjá mörgum fyrirtækjum á
svæðinu með því að framvísa hót-
ellykli sínum. „Það má alveg lofa því
að fólk snýr heim alveg jafn sælt og
glatt úr ferðalagi til Reykjaness og
ef farin hefði verið helgarferð til út-
landa,“ segir Steinþór og minnir á að
Reykjanesið er jú rétt hjá útlöndum.
ai@mbl.is
Geta átt eftirminnilega ferð
● Moët-kampavínssjálfsali verður á nýjum Diamond Bar
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Uppbygging Steinþór ákvað að halda hótelinu opnu þátt fyrir veirufar-
aldur, til að hýsa áhafnir og vernda störf. Ekki vantar lúxusinn.
Á ferðalögum sínum um heiminn
hafa margir Íslendingar uppgötvað
hvað köfun er skemmtilegt sport, og
ævintýri líkast að skoða kóralrif og
litríka fiska í hlýjum sjó Kyrrahafsins
eða Karíbahafsins. En þeir sem vilja
ferðast alla leið til Taílands eða Belís
til að kafa eru að leita langt yfir
skammt því Ísland hefur upp á marga
framúrskarandi köfunarstaði að
bjóða.
Signý Hermannsdóttir er sölu- og
markaðsstjóri h já Dive.is sem bæði
rekur Sportköf-
unarskóla Íslands
og skipuleggur
köfunarferðir í
Silfru á Þingvöll-
um og í Kleifar-
vatn á Reykjanesi.
Hún segir marga
ferðast gagngert
yfir hálfan hnött-
inn til að kafa á Ís-
landi enda þyki
Silfra einstakur
köfunarstaður og vatnið svo tært að
sjá má langar leiðir. „En Kleifarvatn
er ekki síður skemmtilegur staður
fyrir kafara að heimsækja, því undir
vatninu leynist hver og krauma loft-
bólur upp úr botni vatnsins svo að lík-
ist því að synda í risastóru kampa-
vínsglasi.“
Fyrir þá sem vilja nota sumarið til
að láta drauminn rætast og læra að
kafa eru nokkrir valmöguleikar í
boði. Bæði í Silfru og Kleifarvatni má
stunda yfirborðsköfun (e. snorkel)
sem kallar ekki á sérstaka þjálfun
umfram stutta leiðsögn sérfræðings
sem m.a. kennir hvernig má blása
vatni úr öndunarpípunni ef hún fyll-
ist. Þeir sem vilja festa á sig súrefn-
iskút og vera undir vatnsyfirborðinu í
lengri tíma þurfa aftur á móti að fá
köfunarréttindi og býður Dive.is upp
á pakka sem inniheldur bæði köf-
unarkennslu og köfunarferð. „Sumir
eru þegar með PADI-köfunarréttindi
frá erlendum köfunarskólum en hafa
þarf í huga að á stöðum eins og Silfru
er líka gerð krafa um að fólk hafi lok-
ið sérstöku námskeiði í köfun í þurr-
búningi.“
Hverir, köfun og
grillað við Kúlurnar
Hitastigið ofan í Silfru er á bilinu
2-4 °C en í Kleifarvatni 6-10 °C. Í ferð-
um Dive.is fá þátttakendur þurrbún-
inga og undirgalla sem halda hita á
búki og útlimum og segir Signý að
fólk finni aðeins fyrir kuldanum á
höndum og í andliti, en það valdi eng-
um sérstökum óþægindum. „Eftir
köfunina hitum við fólk upp með
bolla af heitum drykk og kannski að
þurfi að leyfa mesta kuldanum að
fara úr fingrunum áður en byrjað er
að eiga aftur við snjallsímann,“
gantast hún og segir engan þurfa að
hafa áhyggjur af að vatnið sé of kalt
til að kafa í. Né heldur er hætta á of
miklum hita í Kleifarvatni, þó að
hverinn kraumi þar undir. „Við höf-
um komið fyrir línu sem fest er við
botninn svo að þeir sem snorkla eigi
auðveldara með að toga sig nær botn-
inum og skoða hverinn í návígi.“
Signý mælir sérstaklega með
pakkaferð sem Dive.is býður upp á
þar sem er tvinnað saman að
snorkla eða kafa í Kleifarvatni,
skoða hverina í Krýsuvík og hellinn
Leiðarenda og svo slaka á hjá Au-
rora Basecamp sem er þar skammt
frá: „Þetta systurfyrirtæki okkar
hefur sett upp Kúlurnar, sem er
norðurljósasetur á veturna, og er
vinsælt hjá hópum að enda daginn
þar, snæða grillmat við varðeld í
hrauninu og njóta útsýnisins.“
ai@mbl.is
Eins og að synda
í kampavínsglasi
● Kleifarvatn góður köfunarstaður
Signý
Hermannsdóttir
MVið elskum Ísland »43
Reykjanesskaginn er mikil náttúruperla og segir Þórdís að enn eigi
margir eftir að upplifa töfra svæðisins og þau undur sem svæðið hef-
ur upp á að bjóða. „Sjálf flutti ég hingað fyrir aðeins sjö mánuðum
og það hefur komið mér mjög á óvart hve mikið er hér af einstökum
perlum og fallegu umhverfi sem ég hafði ekki hugmynd um, hafandi
búið áður í Reykjavík. Ferðaðist ég t.d. með gönguhópi Suðurnesja
frá Vogum yfir í Grindavík eftir 17 km löngum stíg sem heitir Skóg-
fellsvegur og fáir vita af. Var náttúrufegurðin þar hreint út sagt
ótrúleg.“
Meðal staða sem allir ættu að heimsækja nefnir Þórdís Garð-
skagavita, Reykjanesvita, Brimketil, Gunnuhver og brúna á milli
heimsálfa sem öll eru í stuttri akstursfjarlægð frá Reykjanesbæ. Þá
segir Þórdís fyrirtaks golfvelli á svæðinu og úrval gönguleiða, og
upplagt að enda dag á golfvellinum eða í göngutúr með viðkomu á
einhverjum af þeim fjölbreyttu veitingastöðum sem starfræktir eru á
Reykjanesi. „Flóran spannar allt frá matarvögnum af allra bestu
gerð yfir í fína veitingastaði sem bjóða upp á fyrsta flokks matar-
upplifun. Sveitarfélögin á svæðinu eru einmitt að hefja nýtt sam-
starfsverkefni undir yfirskriftinni Matarkistan, þar sem veitinga-
staðir á Reykjanesi taka höndum saman um að bjóða upp á smárétti
á mjög hagstæðu verði og er hugmyndin sú að fólk fari á rúntinn, líti
inn á nokkrum stöðum til að smakka og njóta sem víðast.“
Ótrúleg náttúrufegurð