Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur
Óhrein eða gróf húð?
Húðslípun
Einstök húðmeðferð sem
lætur húð þína líta betur út!
g Vinnur burt unglingabólu
g Gerir áferð húðar fallegri
Páll Guðmundsson
palli@fi.is
Heiðmörk er stærsta útivistar-
svæðið á höfuðborgarsvæðinu og
eitt það vinsælasta og stöðugt
fleiri njóta þar fjölbreyttrar úti-
vistar og náttúru. Í gegnum tíðina
hafa ótal stígar verið lagðir um
svæðið og góð aðstaða byggð upp
fyrir útivistarunnendur. Heiðmörk
einkennist meðal annars af skóg-
lendi sem þekur tæpan þriðjung
svæðisins en að auki er þar að
finna áhugaverðar jarðmyndanir,
viðkvæmt votlendi og lyngmóa.
Dýralíf er fjölbreytt í Heiðmörk
og þar má einnig finna mannvist-
arleifar, allt frá fyrstu tíð Íslands-
byggðar til okkar daga.
Sögu Heiðmerkur sem útivistar-
svæðis má rekja aftur til ársins
1947 þegar bæjarstjórn Reykja-
víkur samþykkti að stofna friðland
og skemmtigarð fyrir Reykvík-
inga í Heiðmörk. Svæðið var vígt
árið 1950 og sama ár hóf
Skógræktarfélag Reykjavíkur
skógrækt þar. Upphaflega var
friðlandið stofnað úr landi Elliða-
vatnsbæjar og úr hluta af landi
Hólms og Vatnsenda. Árið 1957
bættist við sá hluti Heiðmerkur
sem nú er innan Garðabæjar en
tilheyrði þá Vífilsstöðum og afrétti
Garðatorfu. Skógræktarfélag
Reykjavíkur fer enn með umsjón
svæðisins, í góðu samstarfi við
Reykjavíkurborg, Orkuveitu
Reykjavíkur og Garðabæ. Á
heimasíðu Skógræktarfélags
Reykjavíkur, www.heidmork.is, má
finna góðar upplýsingar um Heið-
mörk og kort af svæðinu.
Á meðal áhugaverðra áning-
arstaða í Heiðmörk má nefna:
Helluvatn
Á áningarstaðnum við Helluvatn
er grillaðstaða undir þaki.
Vígsluflöt – Rariklundur
Heiðmörk var stofnuð formlega
25. júní 1950 á Vígsluflöt. Á
vígsluhátíðinni gróðursetti þáver-
andi borgarstjóri, Gunnar Thor-
oddsen, sitkagreniplöntu sem í dag
er myndarlegt tré.
Símamannalaut
Símamannalaut er afrakstur
kraftmikils landnemastarfs en Fé-
lag íslenskra símamanna hóf gróð-
ursetningu þá strax eftir friðun
Heiðmerkur árið 1950. Í Síma-
mannalaut eru grill,borð og bekk-
ir.
Furulundur – Dropinn
Furulundur var gerður árið 2000
í tengslum við að Reykjavík var
kjörin Menningarborg Evrópu.
Þetta er fjölskyldulundur búinn
leiktækjum, blakvelli og grill-
aðstöðu. Inn af Furulundi er Drop-
inn, áningarstaður með grilli, borð-
um og bekkjum.
Grenilundur
Grenilundur er fjölskyldurjóður
frá 2005. Þar er grillaðstaða, bíla-
stæði og leik- og klifurtæki. Greni-
lundur rúmar um 50 manns.
Þjóðhátíðarlundur
Skógræktarfélag Reykjavíkur
stofnaði Þjóðhátíðarlund árið 1974
til að minnast 1100 ára afmælis
Íslandsbyggðar og jafnframt 75
ára afmælis skógræktar á Íslandi.
Þjóðhátíðarlundur er í Löngu-
brekkum og skammt frá eru
Hulduklettar. Í Þjóðhátíðarlundi
er grill, borð og bekkir, bílastæði,
leiktæki og fótboltavöllur.
Vífilsstaðahlíð
Árið 1958 varð Vífilsstaðahlíð
hluti af Heiðmörk eftir samninga
milli Skógræktarfélags Reykja-
víkur og stjórnar ríkisspítalanna.
Þá var strax hafist handa við
gróðursetningu þar. Í Vífils-
staðahlíð er einnig að finna trjá-
safn sem Skógræktarfélag
Reykjavíkur byrjaði að gróð-
ursetja árið 1990. Í Vífilsstaðahlíð
er yfirbyggt grill og bílastæði.
Hjallaflatir
Hjallaflatir eru stærsti áningar-
staður Heiðmerkur. Þar er fót-
boltavöllur og grillaðstaða.
Fræðslurjóður
Fræðslurjóðrin eru austan við
Elliðavatnsbæinn. Í fræðslurjóðr-
unum fer fram náttúru- og um-
hverfiskennsla fyrir börn og ung-
linga.
Það er vel við hæfi að hvetja
alla til að leggja leið sína í Heið-
mörk, ekki síst nú á 70 ára afmæli
Heiðmerkur sem friðlands og
skemmtigarðs, og njóta þar úti-
vistar og náttúru. Í sérstökum
landnemareitum sem Skógrækt-
arfélag Reykjavíkur hefur í gegn-
um tíðina úthlutað til félaga-
samtaka, fyrirtækja og
einstaklinga til skógræktar er
reitur Ferðafélags Íslands nr. 24 í
svæði h. Þar má finna skemmti-
legan ratleik sem öllum er vel-
komið að taka þátt í. Góð stund í
Heiðmörk fyllir fólk af orku, gleði
og hamingju og veitir hvíld og
slökun.
Náttúruperlur í nærumhverfinu
Íslensk náttúra hefur mikið
aðdráttarafl og stöðugt
fleiri stunda útivist sér til
ánægju og heilsubótar. Að
ferðast um landið er bæði
gefandi og skemmtilegt og
við kynnumst náttúru
landsins, sögu, menningu,
dýralífi og þannig mætti
lengi telja. Þó svo að það sé
gaman að ferðast um land-
ið og heimsækja þekkta
ferðamannastaði þarf ekki
alltaf að leita langt yfir
skammt. Víða í nær-
umhverfinu má finna nátt-
úruperlur, kyrrð og fegurð.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Einstakt umhverfi Hér má sjá Heiðmörk í haustlitunum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Allt á útopnu Hér má sjá mynd sem tekin var á Skógarleikunum í Furulundi 2019.
Fegurð Hér má sjá
Helluvatn í Heiðmörk.
Ferðalög á