Morgunblaðið - 28.05.2020, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
Tímapantanir á
opticalstudio.is
og í síma 511 5800
SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK
Sjónmælingar
eru okkar fag
„Ég var á spjalli við Sigga og Loga um daginn og þá datt
þessi hugmynd upp, hvort ég myndi ekki taka slaginn á
K100,“ segir tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson.
„Siggi skoraði hálfpartinn á mig að koma og ég bara ætla
ekkert að skorast undan því og mæti á sveitaball og ætla
að gera það vel,“ bætir hann við kíminn í bragði.
Hreimur hefur ekki setið auðum höndum í samkomu-
banninu en hann vinnur nú að nýrri plötu sem hann mun
gefa út í haust og ætlar að halda nokkra tónleika í að-
draganda útgáfunnar.
„Mig langaði svo að halda tónleika úti um allt land en
það er náttúrlega búið að vera mjög erfitt út af þessu
ástandi. En það er nú allt að slakast,“ segir Hreimur og
bætir við að þegar séu tónleikar komnir á sölu á tix.is/
hreimur og á vefsíðu Græna hattsins.
Hreimur leggur áherslu á að þótt hljómsveitin heiti
eftir honum sjálfum, Hreimur, sé hann ekki einn í henni.
„Hreimur er miklu meira. Við erum átta saman í
hljómsveit þannig að ég er með sjö manna band á bak við
Hreim. Það sem við erum að gera er að flytja öll þessi lög
sem ég hef samið í gegnum tíðina, lögin sem gerðu Land
og syni að því sem þeir voru á sínum tíma og þessi
þjóðhátíðarlög. Maður vaknar upp einn daginn og á alveg
rosalega mikið af skemmtilegum og vinsælum lögum
sem maður hefur eiginlega ekkert fylgt eftir að ráði,“
segir hann.
Fjórir meðlimir hljómsveitarinnar munu koma í stúdíó
K100 á morgun en Hreimur staðfestir að eitt glænýtt lag
verði frumflutt sérstaklega um kvöldið. Annars munu
tónleikarnir aðallega samanstanda af þekktum lögum.
„Þetta verður rosa mikið partí. Ég er náttúrlega
stemningspési og hef alla tíð verið, þannig að það er það
sem við erum að fara að keyra svolítið á,“ segir Hreimur.
„Fólk er orðið þyrst í að gera eitthvað og vera með smá
partí.“
Hlustaðu eða horfðu á Sveitaballið með Hreimi á
morgun, 29. maí, klukkan 20:00 á K100, K100.is, á Nova
TV sem er opið öllum eða á rás 9 á Sjónvarpi Símans.
Alvörusveitaballs-
stemning í beinni á K100
Sveitaball Mikil stemning verður á K100 annað kvöld
þegar Hreimur mætir ásamt hljómsveit og heldur uppi
alvörusveitaballsstemningu í beinni útsendingu.
Tónlistarmaðurinn Hreimur mun slá
upp sveitaballi og stemningstón-
leikum ásamt hljómsveit í beinni út-
sendingu á K100 annað kvöld og
flytja öll sín bestu lög frá ferlinum.
Stjórnendur útvarpsþáttanna Ísland
vaknar og Síðdegisþáttarins ætla að
gerast ferðamenn í eigin landi og
ferðast um landið með hlustendum í
sumar en næsti áfangastaður K100 er
Reykjanesbær. Dagskrá K100 á
morgun verður öll úr hjólhýsi fyrir
utan Hljómahöllina en þangað munu
koma ýmsir góðir gestir af svæðinu.
Morgunþáttur stöðvarinnar, Ísland
vaknar, með þau Ásgeir Pál, Jón Axel
og Kristínu Sif innanborðs, hefst
stundvíslega kl. sex að morgni. Auð-
un Georg miðlar fréttum frá því
helsta sem er að gerast í sveitar-
félaginu og Síðdegisþátturinn með
þeim Loga Bergmann og Sigga
Gunnars mun fjalla um það hvað ger-
ir Reykjanesbæ að áhugaverðum
stað til að heimsækja, starfa á og búa.
„Við erum mjög spennt fyrir því að
heimsækja Reykjanesið. Ég er mikill
aðdáandi þess enda einstök nátt-
úruperla,“ segir Siggi Gunnars í sam-
tali við Morgunblaðið og K100.is. „Ég
er mikill Reykjanesmaður og hlakka
til að beina sjónum K100 að þessu
svæði.“
Hjólhýsi Logi og Siggi verða fyrir utan Hljómahöllina á morgun.
K100 í Reykjanesbæ
Útvarpsstöðin K100 ætlar að kynnast landinu betur
í sumar og kynna þá stórkostlegu staði sem eru í
boði fyrir landsmenn innanlands. Á föstudaginn
verður öll dagskráin í beinni frá Reykjanesbæ.