Morgunblaðið - 28.05.2020, Qupperneq 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
„HANN VILL BORGA OKKUR HUNDRAÐ
ÞÚSUND FYRIR AFNOT AF TUNGLINU Í
NOKKRA DAGA!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að passa
barnabörnin.
IRMA, MEÐ HVAÐA RÉTTI
MÆLIR ÞÚ Í DAG?
KRANSÆÐASTÍFLU-
VEFJUNNI
ÞÚ ÞARFT AÐ
UNDIRRITA
SKAÐLEYSIS-
YFIRLÝSINGU
VOGUN VINNUR,
VOGUN TAPAR
ÉG ER MEÐ FLAUTU TIL AÐ
KALLA Á ENDUR, AÐRA FYRIR
ELGI OG ENN AÐRA FYRIR
ÚLFA!
VÁ! ER EINHVER
ÞEIRRA Í
UPPÁHALDI?
JÁ! FLAUTAN
HENNAR HELGU!
HRÓLFUR!
MATUR!
„ÉG LÁI ÞÉR EKKI, VINUR. ÞAÐ GETUR
ENGINN STAÐIÐ UNDIR ÞESSUM
KRÖFUM.”
skólanemi í Reykjavík; 3) Elenóra
Mist, f. 23.10. 2005; 4) Guðmundur
Ari, f. 16.7. 2009.
Systkini Jóns Birgis eru Lilja
Sigríður Guðmundsdóttir, f. 27.1.
1949, húsmóðir í Borgarnesi og fv.
bankastarfsmaður; Steinunn Oddný
Guðmundsdóttir, f. 4.10. 1953,
grunnskólakennari á Akranesi;
Guðmundur Finnur Guðmundsson,
f. 13.10. 1956, verkefnastjóri hjá
Vegagerðinni í Borgarnesi; Kristín
Björk Guðmundsdóttir, f. 3.12.
1958, vinnur á Heilsugæslunni
Hamraborg í Kópavogi.
Foreldrar Jóns Birgis voru hjón-
in Guðmundur Sigurjón Finnsson,
f. 24.1. 1925 á Ytri-Á, d. 4.3. 2009,
bifvélavirki á Akureyri og verk-
stæðisformaður í Borgarnesi, og
Stefanía Guðlaug Steinsdóttir, f.
28.9. 1928 á Knappsstöðum, d. 20.1.
2007, húsmóðir á Akureyri og í
Borgarnesi.
Jón Birgir
Guðmundsson
Sigurbjörg Marteinsdóttir
húsfreyja í Skeggjabrekku
Jón Marteinn
Gunnlaugsson
bóndi í Skeggjabrekku
í Ólafsfirði
Oddný Jónsdóttir
húsfreyja á Bakka ogAkureyri
Steinn Jónasson
bóndi á Bakka í Ólafsfirði og
iðnverkamaður áAkureyri
Stefanía Guðlaug Steinsdóttir
húsmóðir áAkureyri og í Borgarnesi
Lilja Stefánsdóttir
húsfreyja á Knappstöðum
Jónas Jósafatsson
bóndi á Knappstöðum í Stíflu
Árni Helgason
verktaki í Ólafsfirði
FreyrAðalgeirsson
framkvæmdastjóri
Borgarafls
Steinn Oddgeir
Sigurjónsson
b. á Myrká í
Hörgárdal og
sviðsstj. hjá HNE
Aðalgeir Finnsson
fv. byggingaverktaki
áAkureyri
FinnurAðalbjörnsson
eigandi Finnur ehf.
og Motul áAkureyri
Stefanía
Guðlaug
Steinsdóttir
prestur í
Gelárkirkju
Sigurjón
Steinsson
ráðunautur
áAkureyri
Guðrún Finnsdóttir
fv. bóndi í Laugarholti
í Eyjafjarðarsveit
Anna Gunnlaugsdóttir
húsfreyja í Ólafsfirði
Þorlákur Kristinn Ólafsson
sjómaður í Ólafsfirði
Mundína Freydís Þorláksdóttir
húsfreyja á Ytri-Á
Finnur Björnsson
útvegsbóndi á Ytri-Á
á Kleifum, Ólafsfirði
Kristín Bjarnadóttir
húsfreyja á Ytri-Á
Björn Baldvinsson
bóndi á Ytri-Á
Úr frændgarði Jóns Birgis Guðmundssonar
Guðmundur Sigurjón Finnsson
bifvélavirki áAkureyri og
verkstæðisformaður í Borgarnesi
Pétur Stefánsson yrkir á Boðn-armiði:
Kveðskaparlistin er krefjandi sport
með krassandi reglum og lögum.
Mest er ég hissa hve mikið er ort
af mögnuðum kvæðum og bögum.
Á Fróni er hópur af ljóðelsku liði
sem lepur heil ósköp af Boðnar-
miði.
Morgunstundin indæl er,
ómar fuglakliður.
Ágrip þetta orti hér
aumur vísnasmiður.
Veðrið hefur verið fallegt, milt
og gott, – Guðmundur Arnfinnsson
yrkir Kvöldvísu:
Kvöldsól kyndir elda,
kliðar blær í viði,
greinar bærir grænar,
glóa nes og flóar,
syndir fugl á sundi,
seiða hafsins leiðir,
bárur fleyið bera,
blika hrannir kvikar.
Úr allt annarri átt. Helgi R. Ein-
arsson hefur verið duglegur að
svara vísnagátunum í Vísnahorni,
en nú spyr hann: „Hver er mað-
urinn?“ Og má vera að leita þurfi
svara út fyrir landsteinana:
Háralitur hausnum á
helst minnir á gyllingu
og andinn bak við augun blá
er eins og tungl í fyllingu.
Að eigin mati allt skal fá
og á víst skilið hyllingu.
Sem hljóðfæri í hann má spá,
sem heldur ekki stillingu.
Magnús Halldórsson yrkir um
„morgunstúss á sauðburði“:
Liggja sá ég eina á,
eta strá sem þar hjá greri
Við mitt stjá í brún svo brá,
að burtu frá því hún þá sneri.
Jón Atli Játvarðarson er hér með
áhugaverðar hugleiðingar: „Á bak
við umhverfismetnaðinn í þessari
vísu liggur líka vitneskjan um
hvernig íslenskan líkist húðinni;
málþroskinn. Unglingabólurnar
hverfa ef menn passa sig á sætind-
unum, oftast. Hér er ég, eins og
stundum áður, að hugsa um Hval-
árvirkjun, nema hvað“:
Montið hófst í litlum læk,
sem lofar hinn og þessi.
Fram nú áin frussast spræk,
sem fílapensli úr vessi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af kveðskaparlistinni
og fallegu vorkvöldi