Morgunblaðið - 28.05.2020, Side 58
Knattspyrnumaðurinn Kristófer
Konráðsson hefur skrifað undir
tveggja ára samning við Stjörnuna
en þetta kemur fram á facebook-
síðu Garðbæinga. Kristófer er 21
árs gamall en hann lék síðast með
KFG í 2. deildinni síðasta sumar.
Kristófer hefur verið í námi í
Bandaríkjunum undanfarin ár en
hann á að baki ellefu leiki í efstu
deild með Stjörnunni. Hann lék
með Þrótti Reykjavík í 1. deildinni
sumarið 2018 og þá á hann að baki
22 landsleiki fyrir yngri landslið Ís-
lands.
Skrifaði undir í
Garðabæ
Ljósmynd/Stjarnan
Uppalinn Kristófer Konráðsson
steig sín fyrstu skref í Garðabæ.
58 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
28. maí 1977
Ingunn Einarsdóttir setur Ís-
landsmet í 100 metra hlaupi
kvenna þegar hún sigrar á vor-
móti HSK á Selfossi. Ingunn
hleypur á 11,8 sekúndum og er
fyrsta íslenska konan sem
hleypur vegalengdina á
skemmri tíma en 12 sekúndum.
28. maí 1985
Hinn 18 ára gamli Sigurður
Jónsson er illa meiddur á ökkla
eftir ljóta tæklingu Graeme
Souness í leik Íslands og Skot-
lands í undankeppni HM á
Laugardalsvelli. Ísland tapar
0:1 fyrir Skotlandi en tengda-
sonur Íslands, Jim Bett, skorar
eina markið.
28. maí 1995
Jón Arnar Magnússon hafnar í
fimmta sæti í keppni flestra
bestu tugþrautarkappa heims í
Götziz í Aust-
urríki og setur
nýtt Íslandsmet,
8.237 stig. Hann
bætir eigið met
um 341 stig og
bætir líka eigið
Íslandsmet í 110
metra grindahlaupi þar sem
hann hleypur á 14,32 sek-
úndum.
28. maí 1995
Ísland vinnur stórsigur á Skot-
landi, 111:69, í undankeppni
Evrópumóts karla í körfu-
knattleik í Sviss. Guðmundur
Bragason skorar 21 stig, Marel
Guðlaugsson 18 og Jón Arnar
Ingvarsson 18. Íslenska liðið
skorar 19 þriggja stiga körfur.
28. maí 1997
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
setur Íslandsmet í þrístökki
þegar hún stekkur 13,18 metra
á móti í Óðinsvéum í Dan-
mörku og bætir eigið met um
ellefu sentimetra. Þetta met
hennar stendur
enn.
28. maí 2015
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkast-
ari úr Ármanni, nær lágmarki
fyrir HM 2015
og Ólympíu-
leikana 2016
þegar hún sigr-
ar á Riga Cup í
Lettlandi. Ás-
dís kastar 62,14
metra sem er
hennar næstlengsta kast á ferl-
inum en ólympíulágmarkið er
62 metrar.
Á ÞESSUM DEGI
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Jón Axel Guðmundsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, hefur að
undanförnu fundað með fimm NBA-
liðum sem hafa sýnt honum áhuga
og mun ræða við fulltrúa frá fleiri
liðum á næstunni.
„Ég hef talað við fimm NBA-lið og
á næstu dögum er verið að koma á
fundum með fleiri NBA-liðum. Ég er
búinn að tala við Charlotte Hornets,
Cleveland Cavaliers, Utah Jazz,
Phoenix Suns og Milwaukee Bucks.
Ég á eftir að tala við Miami Heat,
Sacramento Kings, Golden State
Warriors og væntanlega fleiri lið. Ég
reikna með því að funda með þessum
liðum í næstu viku og í næsta mán-
uði,“ segir Jón Axel um gang mála
hjá sér í Bandaríkjunum.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
fyrr í vetur gefur Jón Axel kost á sér
í nýliðavali NBA en skólagöngu hans
hjá Davidson er lokið. Jón metur
stöðuna þannig að hann eigi mesta
möguleika á að komast í NBA nú
þegar hann er að koma beint úr há-
skólakörfuboltanum, NCAA.
„Mér finnst ég vera í góðri stöðu
til að komast að hjá NBA-liði. Ég er
því ekki viss um að ég myndi stökkva
á tilboð frá liði í Evrópu áður en í ljós
kemur hvort ég komist í NBA. Ég er
að eltast við drauminn sem alltaf
hefur verið að komast í NBA og spila
í bestu deild í heimi. Ég tel að þetta
sé mitt besta tækifæri núna.“
Óvissa um nýliðavalið
Ekki hefur verið leikið í NBA-
deildinni síðan í mars vegna kór-
ónuveirunnar. Enn er gælt við þá
hugmynd að ljúka keppnistímabilinu
en það er enn óljóst. Nýliðavalinu
fyrir næsta tímabil hefur því verið
frestað og Jón Axel bíður átekta.
„Ef NBA-deildin fer ekki af stað
aftur þá er líklegt að nýliðavalið
verði í júlí. Ef tímabilið verður klár-
að í NBA þá er nýliðavalið kannski
ekki fyrr en í september. Þetta fer
eftir því hvað gerist varðandi tíma-
bilið 2019-2020.
Það er lítið sem ég get gert í þessu
núna en ég er með umboðsmann sem
sér um þessi mál fyrir mig. En til að
geta rætt við menn frá þeim liðum
sem hafa áhuga þá er fundað í gegn-
um Zoom [fjarfundarbúnað].“
Í venjulegu árferði hefði Jón Axel
æft og spilað vináttuleiki með NBA-
liðum. Til dæmis er staðið fyrir sum-
ardeildum NBA þar sem leik-
mönnum er boðið að sýna sig og
sanna. Tryggvi Snær Hlinason tók
til að mynda þátt í því sumarið 2018.
„Ég hefði farið í einhvers konar
mót þar sem sextíu bestu leikmenn-
irnir sem voru að ljúka háskólaferl-
inum geta verið með. Þessa dagana
hefði ég verið á æfingum með ein-
hverjum liðum og nýliðavalið hefði
verið eftir mánuð eða svo. Manni
heyrist að NBA byrji kannski ekki
aftur fyrr en í desember eða janúar.
Þá yrði væntanlega einhvers konar
haustdeild.“
Er vel kynntur
Fyrir Íslendinga er ef til vill svo-
lítið óraunverulegt þegar fjallað er
um möguleika Íslendings að komast
í NBA. Einungis tveir Íslendingar
hafa fengið samning hjá NBA-liðum,
Pétur Guðmundsson og Jón Arnór
Stefánsson, og Pétur sá eini sem hef-
ur spilað í deildinni.
Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með
umfjöllun um framgöngu Jóns Axels
með Davidson í Bandaríkjunum þá
eru ýmsar ástæður fyrir því að hann
er á radarnum hjá NBA-liðum þótt
samkeppnin sé gífurleg. Eitt sem
vegur þungt er að Jón var valinn
leikmaður ársins í Atlantic 10 deild-
inni í fyrra. Var það mikil kynning
fyrir hann og síðasta haust var Jón á
lista yfir leikmenn sem áhugafólk
var hvatt til að fylgjast með síðasta
vetur. Þar að auki leikur hann með
Davidson í Norður-Karólínuríki.
Mikil körfuboltahefð er í ríkinu og
þá lék Stephen Curry með Davidson
á sínum tíma. Sjálfur bendir Jón
einnig á að þjálfari Davidson, Bob
McKillop, nýtur mikillar virðingar í
bandarískum körfubolta.
„Það skiptir máli að maður hafi
spilað fyrir þennan þjálfara því hann
nýtur virðingar allra í NBA. Í öllum
þeim samtölum sem ég hef átt við
fulltrúa NBA-liðanna er ég spurður
um hvernig það hafi verið að spila
undir hans stjórn.“
Nálægð við Charlotte Hornets
Charlotte Hornets er í Norður-
Karólínu og á þeim bæ vita allir
hverjir eru lykillmenn hjá Davidson.
Þar þarf Jón ekki að kynna sig en
þegar um ýmis önnur NBA-lið er að
ræða þá hafa njósnarar liðanna séð
hann spila.
„Charlotte er bara í þrjátíu mín-
útna fjarlægð og flestallir hjá þeim
hafa séð mig spila. Sem er þægilegt
fyrir mig en á öðrum fundum eru
menn sem hafa kannski lítið séð til
mín. Til dæmis hjá Phoenix þar sem
það tekur sjö eða átta tíma að fljúga
til Charlotte. Hjá þeim höfðu njósn-
ararnir séð mig en ekki þjálfar-
arnir,“ segir Jón sem dvalið hefur
ytra í allan vetur og reynir að halda
sér við með einkaþjálfara.
„Ég hef unnið mikið í bolta-
tækninni og atriðum sem menn telja
að ég þurfi að bæta mig í samkvæmt
því sem fram hefur komið á fundum
með liðunum. Ég er með einkaþjálf-
ara og við höfum sal til að æfa í,“
segir Jón Axel Guðmundsson í sam-
tali við Morgunblaðið.
AFP
NCAA Jón Axel í grannaslag með Davidson gegn North Carolina, liðinu sem Michael Jordan lék með á sínum tíma.
Erfitt að segja til um hvenær nýliðavalið fer fram Heldur sér við í N-Karólínu
Jón Axel fundar með
liðum í NBA-deildinni
Knattspyrnumaðurinn Harley Will-
ard er að öllum líkindum á förum
frá úrvalsdeildarliði Fylkis sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Willard kom til Fylkis frá Víkingi
Ólafsvík í nóvember á síðasta ári en
hann skoraði 11 mörk í 22 leikjum
með Ólsurum í 1. deildinni á síðustu
leiktíð. Fylkir og Víkingur Ólafsvík
eiga nú í viðræðum um leikmann-
inn sem var valinn í lið ársins í 1.
deildinni síðasta sumar af þjálf-
urum og fyrirliðum deildarinnar en
hann skrifaði undir samning við
Fylki til ársins 2021.
Willard líklega á
förum frá Fylki
Ljósmynd/Stjarnan
Ólafsvík Harley Willard er orðaður
við endurkoma á Snæfellsnesið.
Þýskaland
Augsburg – Paderborn........................... 0:0
Alfreð Finnbogason var ekki í leik-
mannahópi Augsburg vegna meiðsla.
Samúel Kári Friðjónsson var ekki í leik-
mannahópi Paderborn vegna meiðsla.
RB Leipzig – Hertha Berlín.................... 2:2
Düsseldorf – Schalke ............................... 2:1
Hoffenheim – Köln ................................... 3:1
Union Berlín – Mainz............................... 1:1
Staðan:
Bayern M. 28 20 4 4 81:28 64
Dortmund 28 17 6 5 74:34 57
RB Leipzig 28 15 10 3 70:29 55
Mönchengladb. 28 16 5 7 53:34 53
Leverkusen 28 16 5 7 53:36 53
Wolfsburg 28 11 9 8 40:34 42
Hoffenheim 28 11 6 11 39:48 39
Freiburg 28 10 8 10 38:40 38
Schalke 28 9 10 9 34:45 37
Hertha Berlín 28 9 8 11 41:50 35
Köln 28 10 4 14 44:52 34
Augsburg 28 8 7 13 40:54 31
Union Berlin 28 9 4 15 33:48 31
E. Frankfurt 27 8 5 14 44:52 29
Mainz 28 8 4 16 37:61 28
Düsseldorf 28 6 9 13 31:53 27
Werder Bremen 27 5 7 15 29:59 22
Paderborn 28 4 7 17 31:55 19
Færeyjar
NSÍ Runavík – ÍF Fuglafjörður ..............5:0
TB Tvoreyri – B36 ....................................1:3