Morgunblaðið - 28.05.2020, Side 61
MENNING 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
GÓÐ GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MEÐ ÍSLENSKU TALI.
AFMÆLISVEISLA Í ÁLFABAK
Tvær frábærar eftir sögu Stephen King
EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI.
JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN
ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR
KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndagerðarmennirnir og
-framleiðendurnir Þorkell Harðar-
son og Örn Marinó Arnarson, sem
kalla sig Markelsbræður, láta ekki
deigan síga frekar en fyrri daginn
og eru með margar kvikmyndir í
pípunum. Síðasta veiðiferðin,
gamanmynd þeirra félaga sem
frumsýnd var 6. mars, hefur slegið í
gegn í bíóhúsum landsins þótt kór-
ónuveirukófið hafi auðvitað sett
strik í reikninginn, fyrst með lok-
unum kvikmyndahúsa og nú tak-
mörkuðum hámarksfjölda bíógesta.
Blaðamaður frétti af því að þeir
bíóbræður væru þegar farnir að
leggja drög að framhaldsmynd og
ákvað að slá á þráðinn til Þorkels.
Hafði hann heldur betur fréttir að
færa og þá ekki aðeins af framhalds-
myndinni því Markelsbræður eru
framleiðendur gamanmyndar um
konur sem fara saman í sumarbú-
staðarferð sem tökur hefjast á í
sumar og einnig gamanmyndar sem
tekin var upp snemma árs og er með
Ladda og Eddu Björgvins í
aðalhlutverkum.
Fjórar í viðbót
Þorkell segir að framhald Síðustu
veiðiferðarinnar verði tekið upp
næsta sumar en sú fyrri segir af sex
félögum sem fara saman í veiði og
sletta ærlega úr klaufunum og þá
oftar en ekki með skelfilegum afleið-
ingum. Myndin hefur frá upphafi
sýninga notið mikillar aðsóknar og
þegar samkomubann skall á með
lokunum kvikmyndahúsa höfðu um
tólf til þrettán þúsund manns séð
myndina, að sögn Þorkels. Hann
segir myndina malla núna, en aðeins
tvö kvikmyndahús eru opin á
höfuðborgarsvæðinu eins og er.
„Við lögðum alltaf upp með að
þetta yrðu fimm myndir um þessa
kumpána og vorum búnir að leggja
niður söguþráðinn í þeim öllum áður
en við byrjuðum. Þetta eru Síðasta
veiðiferðin, Allra síðasta veiðiferðin,
Langsíðasta veiðiferðin, Lang-,
lang-, langsíðasta veiðiferðin og svo
ein í viðbót sem við erum ekki búnir
að ákveða hvað heitir en gæti heitið
Næstsíðasta veiðiferðin,“ segir Þor-
kell en Allra síðasta veiðiferðin
verður tekin upp næsta sumar.
Svar kvenna við karlamynd
Síðasta veiðiferðin er karlamynd,
fjallar um karla og heimskupör
þeirra og er bæði skrifuð og leik-
stýrt af körlum, en í sumar verður
blaðinu snúið við og tekin upp kvik-
mynd sem snýst alfarið um konur og
er leikstýrt af konu. „Það er svar
kvenþjóðarinnar við Síðustu veiði-
ferðinni, heitir Síðasti saumaklúbb-
urinn og fjallar um fimm konur á
besta aldri sem fara saman í sumar-
bústað og ætla að gera vel við sig.“
– Var þetta ákveðið eftir að þið
frumsýnduð Síðustu veiðiferðina?
„Nei, við höfum alltaf talað um
þetta, ætluðum að gera veiðimynd
þar sem konurnar fá á baukinn af
því að nú erum við búnir að útdeila
okkar réttlæti gagnvart karlþjóð-
inni,“ segir Þorkell.
„Okkur finnst gott að hugsa í
stórum dráttum, sjá stóru myndina.
Fólk heldur alltaf að við séum að
grínast þegar við segjumst hafa
teiknað upp fimm myndir, finnst
nógu flókið að hugsa um eina, en
þetta er ekkert grín. Þessi kvenna-
mynd var eiginlega möst, þurfti að
gerast.“
Þorkell segir að þeir Örn hafi far-
ið í ákveðna átt með Síðustu veiði-
ferðina, einblínt á karlana og verið
gagnrýndir fyrir kvennaleysið í
myndinni. „En við vorum alltaf með
þetta á teikniborðinu líka, að það
kæmi kvennamynd ári seinna,“
segir Þorkell og að sú mynd verði að
öllum líkindum frumsýnd í febrúar
eða mars á næsta ári. Leikstjóri
myndarinnar verður vinkona þeirra
félaga, Rannveig „Gagga“ Jóns-
dóttir.
Þorkell og Örn framleiða myndina
og segir Þorkell þá hafa búið til
ákveðið módel í kringum framleiðsl-
una á Síðustu veiðiferðinni, þar sem
þeir hafi ekki fengið neina opinbera
framleiðslustyrki. Þeir hafi þurft að
leita lausna og sníða sér stakk eftir
vexti. Þá hafi komið sér vel að hafa
verið í bransanum í 30 ár. „Við smíð-
uðum módel sem við setjum þessa
framleiðslu í, komum inn með það
og fáum Göggu og Snjólaugu Lúð-
víksdóttur til að vinna með okkur.
Þær skrifa handritið, Gagga leik-
stýrir og við verðum á kantinum,“
útskýrir Þorkell og segir ekki tíma-
bært að greina frá því hvaða leik-
konur muni fara með aðal-
hlutverkin. Næsta sumar muni þeir
svo taka upp framhald Síðustu veiði-
ferðarinnar.
Laddi og Edda ræna banka
„Svo gerðum við aðra mynd í jan-
úar. Hún heitir Amma Hófí og er
bankaránsmynd með Ladda og
Eddu Björgvins. Þau eru ellilífeyris-
þegar sem ræna banka til að komast
út af elliheimilinu,“ heldur Þorkell
áfram. Leikstjóri og handritshöf-
undur þeirrar myndar er Gunnar
Björn Guðmundsson sem á m.a. að
baki kvikmyndirnar Astrópíu og
Gauragang. Einvalalið leikara er í
myndinni auk þeirra Ladda og
Eddu, m.a. Sveppi, Steindi Jr., Anna
Svava Knútsdóttir, Pétur Jóhann
Sigfússon og Þorsteinn Guðmunds-
son. Amma Hófí verður frumsýnd í
júlí, að sögn Þorkels.
Saumaklúbbur, veiði og bankarán
Markelsbræður leggja drög að framhaldi Síðustu veiðiferðarinnar og framleiða gamanmyndir
um sumarbústaðarferð kvenna og bankarán eldri borgara Síðasta veiðiferðin hefur slegið í gegn
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Akastamiklir Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson hafa verið lengi í kvikmyndabransanum.
Glæpagrín Edda Björgvins og Laddi við tökur á Ömmu Hófí í ársbyrjun. Veiðigrín Úr Síðustu veiðiferðinni.