Skessuhorn - 22.04.2020, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 20206
Styrkja skátana
BORGARBYGGÐ: Sveit-
arstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum 8. apríl
styrkveitingu til Skátafélags
Borgarness, að fenginni til-
lögu byggðarráðs. Styrkurinn
hljóðar upp á 250 þúsund krón-
ur. Jafnframt var samþykkt að
styrkveitingar til skátafélagsins
verði frá árinu 2020 í samræmi
við styrki til UMSB og úthlut-
unarreglur þeirra. -kgk
Hraðabrotum
fjölgar
VESTURLAND: lögregl-
an á Vesturlandi hefur orðið
þess vör að umferð sé farin að
aukast miðað við það sem verið
hefur undanfarnar vikur. Fylgi-
fiskur þess er að hraðakstursmál
eru töluvert fleiri en verið hefur
upp á síðkastið. Einn ökumaður
var tekin á 127 km hraða á klst.
á Vesturlandsvegi á móts við
Munaðarnes og þarf að reiða
fram 120 þús. krónur í sekt og
fleiri voru stöðvaðir á um og
yfir 120 km hraða í vikunni.
Tilkynningar hafa borist um
ölvun í heimahúsum, ágrein-
ingsmál, ónæði og beiðnir um
að fjarlægja fólk úr heimahús-
um. lögregla sinnir þeim mál-
um sem öðrum og vísar fólki út
úr heimahúsum eftir atvikum ef
það er ekki velkomið þar. Einn-
ig hefur lögregla fengið nokkr-
ar tilkynningar um ógætilegt
aksturslag á götum úti í vik-
unni. Til að mynda einn sem
ók milli kanta og mjög rásandi á
fimmtudaginn. lögregla kann-
aði málið og reyndist ástand
ökumannsins vera í lagi. Einn
ökumaður var stöðvaður í um-
dæminu í vikunni sem leið, þar
sem hann ók sviptur ökurétt-
indum. Málið er til meðferðar
hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu, þar sem viðkomandi
á lögheimili. Tilkynnt var um
hugsanlega ölvaðan ökumann
í Borgarnesi á miðvikudag en
þegar lögregla kannaði málið
reyndist ökumaðurinn allsgáð-
ur. -kgk
Samfés þessa árs
hefur verið aflýst
LANDIÐ: Stjórn Samfés,
samtaka félagsmiðstöðva og
ungmennahúsa á íslandi, hef-
ur tekið þá ákvörðun að aflýsa
SamFestingnum 2020 vegna
COVID-19. „í byrjun mars
var ákveðið að fresta viðburð-
inum til 22.-23. maí í þeirri
von um að aðstæður yrðu þá
aðrar. Þrátt fyrir ánægjuleg-
ar fréttir um að dregið verði
úr takmörkunum á samkom-
um og skólahaldi næstu vik-
ur leggur sóttvarnarlæknir í
minnisblaði til heilbrigðis-
ráðherra til að fjöldasamkom-
ur hér á landi verði takmark-
aðar við að hámarki tvö þús-
und manns, að minnsta kosti
út ágúst. Ungmennaráð Sam-
fés, sem er skipað 27 lýðræð-
islega kjörnum fulltrúum af
öllu landinu hefur haft veg og
vanda að dagskránni þar sem
um 4500 ungmenni af öllu
landinu koma saman á tónleik-
um, leiktækjamóti og Söng-
keppni Samfés. Ungt fólk af
öllu landinu hefur verið að
taka virkan þátt í starfi félags-
miðstöðva til að tryggja sér
miða á viðburðinn sem einn-
ig er mjög mikilvægur í rekstri
samtakanna. Við hlýðum Víði
og hlökkum til sjá unga fólkið
á SamFestingnum 2021,“ seg-
ir í tilkynningu. -mm
Samþykktu nýj-
an samning
LANDIÐ: Nýr kjarasamn-
ingur landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna
við ríkið var samþykktur síð-
astliðinn föstudag í almennri
atkvæðagreiðslu. Kjörsókn var
70,73%. Já sögðu 58,62%, nei
sögðu 37,93% og 3,45% skil-
uðu auðu. „Samningurinn var
lagður fyrir vegna aðstæðna
í þjóðfélaginu og byggður á
lífskjarasamningunum,“ segir
í tilkynningu. -mm
Spíttaður á
stolnum bíl
BORGARNES: Rétt eft-
ir miðnætti á föstudag-
inn var ökumaður stöðvað-
ur við hringtorgið í Borgar-
nesi. Reyndist hann aka und-
ir áhrifum fíkniefna. Ökumað-
ur viðurkenndi að hafa neytt
fíkniefna. Bíllinn sem hann ók
reyndist vera stolinn, en hann
hafði verið tekinn ófrjálsri
hendi í Reykjavík. Fjórmenn-
ingarnir voru síðan fluttir til
Reykjavíkur og gistu fanga-
geymslur þar. Málið er í rann-
sókn.
-kgk
Alþingi hefur samþykkt að veita
hálfum millarði króna til menn-
ingarstarfs og skapandi greina, með
sérstakri áherslu á sjálfstætt starf-
andi listamenn, og öðrum hálfum
milljarði króna til íþrótta- og æsku-
lýðsstarfs, til að mæta áhrifum CO-
VID-19. Að auki verður 100 millj-
ónum króna varið til varðveislu
menningararfs með sérstöku fram-
lagi í Húsafriðunarsjóð. Stuðning-
ur þessi byggir á þingsályktunar-
tillögu um fjárfestingarátak stjórn-
valda til að vinna gegn samdrætti
í hagkerfinu í kjölfar heimsfarald-
ursins og var samþykkt á Alþingi
30. mars síðastliðinn. Hefðbundin
menningarstarfsemi og íþrótta- og
æskulýðsstarf hefur nánast lagst af á
undanförnum vikum og stór hópur
fólks og félaga orðið fyrir miklum
tekjumissi.
lilja D Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, segir
að mikilvægt sé að fjárveiting þessi
skili sér hratt og vel út í samfélagið,
svo hjólin haldi áfram að snúast
og tjónið af núverandi aðstæðum
verði sem minnst. „Heildaráhrif
COVID-19 eiga eftir að skýrast og
mögulega þarf meiri stuðningur að
koma til svo þessi mikilvæga starf-
semi blómstri. Við munum taka af-
stöðu til þess þegar frekari upplýs-
ingar liggja fyrir,“ sagði ráðherra.
mm
Nýverið fékk hjúkrunar- og dval-
arheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi
tímabundna heimild, til 1. októ-
ber 2020, til að reka fjögur viðbót-
ar hvíldarrými í Brákarhíð þannig
að nú eru rýmin 56 sem má starfs-
rækja á heimilinu, í stað 52 eins og
verið hefur. „Þetta er fagnaðarefni
og bindum við miklar vonir við að
a.m.k. tvö þessara rýma verði gerð
að varanlegum rýmum í haust. í
þeirri trú erum við að hefja undir-
búning að því að taka til lagfæringa
tvö af þeim fjórum rýmum sem við
höfum ítrekað nefnt við stjórn-
völd að hægt væri að útbúa án mik-
ils tilkostnaðar og fyrirvara í sam-
anburði við að byggja ný rými frá
grunni,“ segir Björn Bjarki Þor-
steinsson framkvæmdastjóri í sam-
tali við Skessuhorn.
mm
Fyrstu tvö bráðabirgða rýmin verða innréttuð á neðstu hæð Brákarhlíðar. Björn
Bjarki Þorsteinsson stendur hér við innganginn inn á Tjörn.
Tímabundin heimild til að
fjölga hjúkrunarrýmum
Milljarði varið til skapandi
greina og íþrótta