Morgunblaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 9
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Rósaræktin gengur alveg ótrúlega vel þegar
haft er í huga að Ísland er við heimskautsbaug
og hér er oft svalt og sviptingar miklar í veðri.
Þetta sumar hefur líka verið einstaklega
gróskumikið og garðurinn hér er fallegur yfir
að líta,“ segir Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræð-
ingur og ræktunarkona.
Sjö tegundir sendar frá Póllandi
Í kvöld, þriðjudagskvöldið 21. júlí kl. 20, er í
boði fræðsluganga um Grasagarð Reykjavíkur
og Rósagarðinn í Laugardal – Borgargarðinn
– þar sem skoðaðar verða og sagt frá algeng-
ustu rósategundum og -yrkjum sem finnanleg
eru á Íslandi. Ásta verður þar til frásagnar
ásamt Hirti Þorbjörnssyni, forstöðumanni
Grasagarðsins. Í fræðslugöngu kvöldsins mæt-
ir fólk við aðalinngang Grasagarðsins, en
Borgargarðurinn er þar skammt frá. Innan
hans eru svo rósabeðin góðu, þar sem í sumar
voru gróðursett ný yrki rósa sem Lukasz Roj-
ewski í Konstantynów Łódzki í Póllandi gaf Ís-
lendingum nýlega.
„Við vorum nokkur héðan frá Íslandi sem
fórum til Kaupmannahafnar fyrir tveimur ár-
um á alþjóðlega ráðstefnu rósaræktenda. Þar
hittum við Rojewski og sendingin frá honum
kom í vor. Rósirnar hans, alls sjö tegundir,
voru settar niður snemma sumars og dafna
vel,“ sagði Ásta í gær, þegar Morgunblaðið
hitti hana í Rósagarðinum. Þar blómstra nú
fallega til dæmis Ivona og Spanish Caravan,
hvoru tveggja yrki frá Póllandi sem eru ný á
Íslandi. Garðurinn er fallegur yfir að líta – fal-
in perla í miðri borginni. Grasagarðurinn er
svo í raun heill heimur út af fyrir sig, fjöl-
breytt flóra og þar koma margir til þess að sjá,
njóta og upplifa. Vinsælt kaffihús er í garð-
inum og margt fleira skemmtilegt sem gefur
fólki ástæðu til þess að njóta.
Betri skilyrði
„Samfélag rósaræktenda á Íslandi er stórt.
Hundruð tilheyra Rósaklúbbnum, Facebook-
hópi fólks sem hefur yndi af þessari rækt. Við-
burðurinn nú er kærkomið tækifæri þess fólks
til þess að hittast og bera saman bækur sínar.
Og það er um margt að ræða. Gróskan er mik-
il og rósaræktun verður sífellt auðveldari og
þar hefur hlýnun andrúmsloftsins áhrif. Þó að
við gleðjumst yfir betri skilyrðum til rósa-
ræktunar er ekki gert lítið úr afleiðingum
loftslagsbreytinga annars staðar í heiminum,
svo sem að ný skordýr herja á plöntur,“ segir
Ásta Þorleifsdóttir.
Rósarækt verður
sífellt auðveldari
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rósir Björk Þorleifsdóttir, fræðslustjóri í Grasagarðinum í Laugardal, til vinstri, og Ásta, systir
hennar, sem í kvöld ætlar að segja gestum Grasagarðsins frá því helsta um rósarækt.
Fræðsluganga í Laugardal í kvöld
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2020
Afkoma ríkissjóðs var neikvæð um 39
milljarða króna á árinu 2019, en fjár-
lög ársins höfðu hins vegar gert ráð
fyrir 29 milljarða króna afgangi. Var
niðurstaða ríkissjóðs því 68 milljörð-
um króna lakari en gert hafði verið
ráð fyrir. Þetta kemur fram í endur-
skoðuðum ríkisreikningi ársins 2019
sem Fjársýsla ríkisins birti á dögun-
um.
Þar kemur einnig fram að skatt-
tekjur ríkisins námu 654 milljörðum
króna, en það er 44 milljörðum minna
en áætlað var í fjárlögum. Þá námu
tryggingagjöld tæpum 97 milljörðum
samanborið við 101 milljarð sam-
kvæmt fjárlögum. Aðrar tekjur skil-
uðu ríkinu 76 milljörðum, samanborið
við 93 milljarða samkvæmt fjárlög-
um. Alls voru tekjur ríkisins því 64
milljörðum minni en áætlanir gerðu
ráð fyrir. Þá voru gjöld ríkisins fjór-
um milljörðum yfir áætlun.
Stjórnvöld sýnt fyrirhyggju
Í inngangi Bjarna Benediktssonar,
fjármála- og efnahagsráðherra, að
reikningnum segir að á árinu 2019
hafi liðið að lokum lengsta hagvaxt-
arskeiðs í hagsögu Íslands, en það
hafi varað samfellt í níu ár.
Segir Bjarni að hraður uppgangur
ferðaþjónustu
hafi þar átt stóran
hlut að máli, og að
stjórnvöld hafi
sýnt þá fyrir-
hyggju að styrkja
mjög fjárhag hins
opinbera með
ábyrgri fjármála-
stefnu.
Blikur hafi hins
vegar verið á lofti
á fyrri hluta ársins 2019 og ferðaþjón-
ustan hafi mætt mótbyr sem nú sé
ljóst að hafi einungis verið forleikur-
inn að þeim þrengingum sem heims-
faraldurinn hefur haft í för með sér.
Engu að síður telji flestir spáaðilar að
kreppan verði skammvinn og að efna-
hagsbatinn muni hefjast þegar á
árinu 2021.
„Miklu varðar við þessar aðstæður
að traust fjárhagsstaða ríkissjóðs og
tiltrú á umgjörð efnahagsmála gera
stjórnvöldum fært að bregðast við
áfallinu af miklum þunga og mynda
mótvægi og skjól fyrir fyrirtæki og
heimili,“ segir Bjarni meðal annars í
inngangi sínum og bætir við að ein
helsta áskorun stjórnvalda verði að
skapa góð skilyrði fyrir efnahagsbata
og nýju hagvaxtarskeiði.
Afkoman lakari
um 68 milljarða
Lengsta hagvaxtarskeiðinu lokið
Bjarni
Benediktsson
Þó það kunni að vera um einhver
líkindi að ræða milli listaverks
Marcus Lyall og herferðar Ís-
landsstofu fær stofan ekki séð
hvernig tímasetningar erindisins
ganga upp.
„Það er mjög erfitt að sjá
hvernig verkefni sem hefur verið
í vinnslu frá því um miðjan apríl
getur byggt á hugverki sem var
fyrst kynnt þann 16. júní,“ segir í
tilkynningu frá Íslandsstofu, sem
hefur borist erindi frá Lyall þess
efnis að markaðsaðgerðin Let it
Out byggi á hugverki hans
Scream the House Down sem
staðið hefur yfir í London frá 16.
júní.
Í tilkynningu Íslandsstofu seg-
ir að kynningum fyrir útboð
markaðsverkefnisins Saman í
sókn hafi verið skilað til Ríkis-
kaupa 30. apríl, og stofan fengið
kynningu á verkefninu þann 6.
maí. Ljóst hafi mátt vera að þá
hafi verið unnið að verkefninu í
talsverðan tíma.
Tímasetningarnar
gangi ekki upp
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU