Morgunblaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 32
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Því var fagnað víða um Ísland þegar
hið fornfræga knattspyrnufélag
Leeds Utd. tryggði sér þátttökurétt
í ensku úrvaldsdeildinni um helgina
eftir 16 ára fjarveru.
Áhangendur félagsins hérlendis
skipta þúsundum og hafa þeir haldið
tryggð við félagið þrátt fyrir mis-
jafnt gengi. Í hinum öfluga stuðn-
ingsmannaklúbbi Leeds eru 775
skráðir félagar. Klúbburinn hefur
staðið fyrir samkomum og fjölmenn-
um ferðum á leiki Leeds.
Stuðningsmenn félagsins eru í
daglegu tali kallaðir Leedsarar. Í
þeim hópi eru félagar í knatt-
spyrnuliðinu Uglunni, sem stofnað
var fyrir hálfri öld, eða árið 1969.
Uglumenn höfðu pantað borð á
Rauða ljóninu á sunnudaginn og ætl-
uðu að horfa saman á leik Derby og
Leeds. Fyrirfram var búist við því
að þetta yrði úrslitaleikur fyrir
Leeds en heilladísirnar gripu í taum-
ana. Vegna hagstæðra úrslita í öðr-
um leikjum hafði Leeds tryggt sér
sigur í deildinni og sæti í úrvalsdeild
áður en flautað var til leiksins.
Uglumenn mættu engu að síður á
Rauða ljónið til að fagna áfanganum.
Reyndar var minna horft á leikinn
en efni stóðu til enda ekkert í húfi.
Þess í stað var mikið rætt um Leeds
og rifjaðar upp gamlar minningar.
Uglan var dæmigert lið síns tíma,
stofnað af strákum sem áttu heima á
Rauðalæk og Bugðulæk, segir Er-
ling Ó. Aðalsteinsson ljósmyndari,
aðspurður um tilurð félagsins.
Leeds var á toppnum á Englandi á
þessum árum og því ákváðu dreng-
irnir að styðja það félag. Nafnið Ugl-
an var sótt í merki félagsins, sem
skartaði uglu. „Þá var ekki hægt að
kaupa búninga svo við keyptum tau-
merkin í Hellas á Skólavörðustíg.
Svo voru keyptir hvítir bolir og
mæður okkar saumuðu merkin á
þá,“ segir Erling. Þeir Uglumenn
skarta búningunum á minni mynd-
inni. Til að fagna áfanganum voru
pantaðir alvörubúningar frá Leeds,
sem þeir klæðast á stærri myndinni.
Liðsmenn Uglunnar hafa alltaf
haldið tryggð við Leeds í meðbyr og
mótbyr og eru vongóðir um gott
gengi á næstu árum. „Við verðum
alltaf Leedsarar,“ segir Erling.
Ljósmynd/Aðalsteinn Dalmann Gylfason
Uglan á Ljóninu 2020 Frá vinstri: Brynjar Jóhannesson, Jens Ágúst Jóhannesson, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson,
Aðalsteinn Dalmann Októsson (faðir Erlings og Gylfa), Erling Ó. Aðalsteinsson og Þorgeir Jóhannesson.
Leedsarar í sigurvímu
Liðsmenn
Uglunnar fögnuðu
áfanganum vel
Uglan 1970 Efri röð frá vinstri: Óskar Hlynsson, Erling Ó. Aðalsteinsson,
Lýður Pétursson og Tryggvi Stefánsson. Neðri röð: Gylfi Dalmann Aðal-
steinsson, bræðurnir: Brynjar Jóhannesson, Jens Ágúst Jóhannesson og
Þorgeir Jóhannesson. Myndina tók faðir þeirra bræðra, Jóhannes.
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Guðjón Baldvinsson, sem er leikmaður sjöundu um-
ferðar Pepsi Max-deildar karla í fótbolta hjá Morg-
unblaðinu, segir að Stjörnumenn hafi ekki látið sóttkví
í tvær vikur slá sig út af laginu en þremur leikjum liðs-
ins frestað. „Við æfðum hrikalega vel í samkomubann-
inu og það má eiginlega segja að þetta hafi verið þrjú
undirbúningstímabil; fyrir áramót, eftir kórónuveiruna
og svo erum við aftur sendir út að hlaupa þegar mótið
er hafið!“ segir Guðjón en í blaðinu í dag má einnig sjá
úrvalslið 7. umferðar hjá Morgunblaðinu. »27
Vorum sendir aftur út að hlaupa
eftir að mótið var hafið
ÍÞRÓTTIR MENNING
Myndlistarmaðurinn
Guðmundur Óli Pálmason
stendur þessa dagana að
verkefni sem nefnist Yfir-
gefin list og felst í því að
listamaðurinn skilur verk
sín eftir á víðavangi víðs
vegar um landið. Guð-
mundur tekur ljósmyndir og vinnur eingöngu með
sjaldgæfa tegund útrunninna polaroidfilma. Viðfangs-
efni hans eru að mestu leyti náttúra Íslands og segir
hann um verkefnið að hann vilji að list sín fari heilan
hring. „Ég skil verkin eftir á eða rétt hjá þeim stöðum
þar sem myndirnar voru teknar, eða í það minnsta á
stöðum sem hafa einhverja tengingu við þann stað þar
sem myndin var tekin. Til dæmis hef ég skilið eftir tvær
myndir sem voru teknar á sama eyðibýlinu, en aðeins
önnur þeirra var skilin eftir þar, en hin var skilin eftir á
öðru eyðibýli,“ segir Guðmundur sem mun næstu vikur
og mánuði fara um landið og skilja verk sín eftir hér og
þar. Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á vef-
slóðinni kuggur.com/2020/07/06/leaving-art/.
Skilur verk sín eftir á víðavangi