Morgunblaðið - 21.07.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 21.07.2020, Síða 24
Sólfríður Lilja Bjarkadóttir, Matthías Þór Bjarkason, Margrét Emma Gunnars- dóttir, Katrín Hlynsdóttir, Lísa Hauth og Guðmundur Hersir Jónsson héldu tom- bólu í Áslandi í Hafnarfirði til styrktar Rauða kross- inum. Þau komu með af- raksturinn þann 13.júlí, heilar 30.000 krónur, og af- hentu Rauða Krossi Íslands. Hlutavelta 24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2020 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Opið mán.-fös. 10-18 | Við sérsmíðum gluggatjöld sem passa fullkomlega fyrir þig og þitt heimili Z-Brautir og gluggatjöld Allt fyrir gluggana á einum stað Íslensk framleiðsla 50 ára Þórlindur er frá Neskaupstað en býr á Akureyri. Hann er vélvirki án sveins- prófs og er bílasali hjá Bílasölu Akur- eyrar. Maki: Hildigunnur Jörundsdóttir, f. 1977, ferðamálafræð- ingur. Börn: Magnús Bjarki, f. 1995, Eyþór, f. 1998, Bergdís Anna, f. 2005, og Kári Wilhelm, f. 2009. Foreldrar: Magnús Bjarki Þórlindsson, f. 1933, d. 1987, vélstjóri og vélvirki, og Anna Sveinsdóttir, f. 1930, d. 2003, húsmóðir og fiskverkakona. Þau voru búsett í Neskaupstað. Rúnar Þórlindur Magnússon Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Allir hlutir þurfa sinn undirbúning því flas er ekki til fagnaðar. Hleyptu samt ekki of mörgum að þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að taka frumkvæðið og kýla áfram þau verkefni sem þér og samstarfs- mönnum þínum hafa verið falin. Njóttu vel- gengninnar á meðan þú hefur byr í seglin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hamingjan felst ekki síst í litlu hlutunum, að ná góðu bílastæði, vera með skiptimynt og hafa eitthvað gott í kvöld- matinn. Notaðu tímann til að hvíla þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Alvarleg samtöl við foreldra eða fjölskyldu gætu dregið úr þér kjark, en láttu það ekki á þig fá. Dagurinn verður spennandi og ófyrirsjáanlegur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er freistandi að rifja upp einfald- ari og auðveldari tíma. Gerðu þér grein fyr- ir því hvar þú stendur í þessum efnum og gríptu til viðeigandi ráðstafana. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhver sýnir óþolinmæði og fljót- færni í dag og vill æða umhugsunarlaust áfram. Ekki taka áhættu til þess eins að græða. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér verður nokkuð ágengt með því að ræða sameiginlega ábyrgð eða eigur. Láttu umferðaræðar, sjónvarp og tónlist eiga sig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú leitar í fólk sem styður þig í að bæta þig, verða meira þú sjálfur. Taktu það rólega og gefðu hverjum og einum þann tíma sem hann þarf. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er rétti tíminn til þess að gera vel við sjálfan sig og næra líkama og sál. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú vilt gefa öðrum ráð eða deila reynslu þinni með þér yngra fólki. Haltu áfram að gefa eftir að sólin er sest. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Reyndu að forðast rifrildi um sameiginlegar eigur og fasteignir. Gefðu þér tíma til að greiða úr flækjunni og þá leysast allir hlutir auðveldlega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að læra að nýta þér þann eiginleika sem fær fólk til þess að opna hjarta sitt fyrir þér. Losaðu þig við óþarfa og hnýttu lausa enda varðandi sameig- inlegar eigur. ég sé í þessu ljósi langskólagenginn sjálfmenntaður myndlistarmaður. Ég lauk námi vorið 1990 og við tók mjög viðburðaríkt ár. Ég var varla lentur þegar ég var boðaður á aðalfund í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík og var tekinn inn í félagið og gerður að formanni á einum og sama fund- inum.“ Kristinn sat einnig í undirbún- ingsstjórn að stofnun Listaháskóla Íslands. „Það var mjög skemmtilegt verkefni og næsta áratuginn sat ég í stjórn skólans og tók þátt í ótrúlegri uppbyggingu hans. Sjálfur lagði ég mikið á mig til að koma arkitektúr- námi að við skólann. Nú er ég hættur öllu félagsmálabrölti. Ég fór að kenna um leið og eftir því var leitað hjá mér og kenndi þar til ekki var lengur leitað eftir því. Þar á milli liðu hátt í 30 ár og fjöldi nem- enda minna er nú ágætir kollegar. Það er bónusinn úr kennslunni. Ég sýndi eitthvað á námsárunum og mér er sérstaklega í minni útisýning sem Þórdís Alda Sigurðardóttir og Gunn- ar Dungal stóðu fyrir í Dallandi í Mosfellssveit árið 1984. Það er líklega fyrsta opinbera samsýningin sem ég tók þátt í.“ Fyrsta einkasýning Kristins var hins vegar á Kjarvalsstöðum árið 1990 og kallaðist STAÐIR. Þetta ég vann ýmist fyrir mig eða hann eða einhvern annan.“ Langskólagenginn sjálfmennt- aður myndlistarmaður Kristinn útskrifaðist frá MHÍ 1986 og fór þá um haustið til München í Suður-Þýskalandi í Akademíið. „Ég hef ýmist fagnað þeirri ákvörðun eða harmað hana í gegnum tíðina. Ég var hjá áhugaverðum prófessor, en hann var hins vegar ekki mikill kennari og ekki svo forvitinn um annarra hag eða hugmyndir. Þetta afskiptaleysi þótti mér á stundum algerlega von- laust, en annars mikið happ, en ég á það til að hverfa til einrænna og jafn- vel melankólískra lifnaðarhátta og lét það oft og lengi ráða för. Ég held að K ristinn Eiríkur Hrafns- son er fæddur 21. júlí 1960 á Ólafsfirði. „Ég er fæddur heima hjá Líneyju ömmu minni í risinu á Kambi. Foreldrar mínir voru þá að efna saman í sinn búskap, en lengst af bjó fjölskyldan á Aðalgötu 26 og þar var ég alla mína æsku og fram að því að ég yfirgaf foreldrahús laust fyrir tvítugt. Ég er af svokall- aðri Miðbæjarætt, sem eru niðjar langömmu og langafa sem byggðu húsið Miðbæ á Ólafsfirði. Það er dá- góður hópur sem tengist þessu húsi beint og óbeint í dag og það fólk er dreift um allt land og kennir sig við húsið. Ég er að gera það upp en ég hef fjórum sinnum keypt gömul hús og gert þau upp og það hafa alltaf verið skemmtileg verkefni. Kristinn á góðar minningar frá Ólafsfirði. „Ég held að ég hafi verið athafnasamur í leikjum og háskalegu bryggjulífi. Pabbi tók mig snemma með til sjós, en hann var lengi skip- stjóri á Guðbjörgu ÓF, en ég á mjög bjartar minningar úr þeim túrum. Síðar var ég nokkur sumur með hon- um á Arnari, sennilega frá 14-18 ára og í frystihúsa- og hafnarvinnu eins og flestir strákar. Ég held að ég hafi verið ágætt sjómannsefni.“ Ekki segist Kristinn hafa verið sérstakur námsmaður, en verið virk- ur í félagslífi og hann var mikið á skíðum. „Í gagnfræðaskóla komst ég í svolítil tengsl við myndlist, en lík- lega hafði fátt eins mikil áhrif á mig og þegar ég sá í fyrsta skipti katalóg- inn frá SÚM ’72 en mér er algerlega hulið hvernig hann komst þangað norður í listleysið. Sá katalógur er múrbrjótur.“ Kristinn fór til Akureyrar og klár- aði MA 1981. „Það er eftirminnilegur tími, en alla mína menntaskólagöngu var ég einnig í Myndlistaskólanum. Eftir stúdentsprófið vann ég eitt ár í landmælingum og ári síðar fór ég suður í Myndlista- og handíðaskól- ann, skúlptúrdeildina. Ég var eini nemandinn sem byrjaði það árið og Jón Gunnar Árnason, sem þá var með deildina, tók vel á móti mér. Síðasta árið fluttum við okkur meira og minna upp á Korpúlfsstaði þar sem voru skúlptúrar sem hann gerði á Korpúlfsstöðum um vorið og sumarið, en fyrir þá sýningu fékk Kristinn Menningarverðlaun DV. „Þetta var mjög erfiður tími fjárhagslega og ég var oft og lengi með tóma vasa og sættist á lág laun og stundum engin í alls konar vinnu fyrir listamenn. Ég seldi mjög lítið fyrstu árin og þessi blankheit fylgdu mér lengi og hafa sjálfsagt sett sitt mark á mig, en þetta er nú almennt orðið skárra, þó að þetta árið sé með því verra sem ég man eftir í þessu tilliti.“ Kristinn hefur haldið í kringum 25 einkasýningar og fjölda samsýninga. „Það sem hefur haldið mér á floti eru alls konar verkefni sem ég hef lent í. Ég vann samkeppni um listaverk við Borgarleikhúsið árið 1988, en það verkefni gleymdist þar til Steve Christer og Margrét Harðardóttir í Studio Granda mundu eftir því og drógu mig að sínu vinnuborði nálægt aldamótum. Það var upphafið að sam- starfi okkar sem staðið hefur síðan og leitt okkur á ýmsar brautir. Það er gæfa fyrir myndlistarmann að vinna með slíku fólki og eiga að vinum.“ Fjölskylda Eiginkona Kristins er Anna Björg Siggeirsdóttir, f. 30.4. 1961, fv. rit- stjóri VR-blaðsins. Þau eru búsett á Seltjarnarnesi. „Við kynntumst árið 1996 og ég þakka Birgi Andréssyni fyrir þá lífgjöf.“ Foreldrar Önnu voru hjónin Margrét Kristín Jónsdóttir, f. 2.9. 1919, d. 16.4. 2015, húsfreyja í Holti á Síðu, og Siggeir Björnsson, 15.1. 1919, d. 29.1. 2004, bóndi í Holti og hreppstjóri. Dóttir Kristins úr fyrra sambandi með Margréti Blöndal, f. 1961, dag- skrárgerðarmanni á RÚV, er Sigyn Blöndal, f. 17.10. 1982, þáttastjórn- andi á RÚV, búsett í Garðabæ. Eigin- maður hennar er Egill Arnar Sigur- þórsson og börn þeirra eru Breki og Ylfa. Dóttir Kristins og Önnu er Lilja, f. 28.9. 1999, háskólanemi, bú- sett á Seltjarnarnesi. Maki hennar er Andri Snær Haraldsson. Stjúpdóttir Kristins og dóttir Önnu er Una Mar- grét Árnadóttir, f. 8.11. 1985, mynd- listarmaður, búsett í Reykjavík. Sam- býlismaður hennar er Örn Alexander Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður – 60 ára Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson Á Kjarvalsstöðum 1990 Kristinn fyrir framan verk sitt, Tímabil. Var ágætt sjómannsefni Hjónin Kristinn og Anna Björg. 40 ára Rhea-Mee er frá Panay Sto. Nino, South Cotabato á Mindanao-eyju á Fil- ippseyjum. Hún er með Bs.ed. í líffræði frá University of San Carlos í Cebu-borg. Hún fluttist til Íslands árið 2014 og starf- ar hjá Lagardere Travel Retail. Maki: Karvel Aðalsteinn Jónsson, f. 1977, deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg. Dóttir: Áróra Svala Panadero Karvels- dóttir, f. 28.2. 2017. Stjúpdóttir er Hjör- dís Silja Karvelsdóttir, f. 2004. Foreldrar: Isidro Panadero, f. 1943, og Fe Gilza Panadero, f. 1943, búsett á Mindanao. Rhea-Mee Gilza Panadero Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.