Morgunblaðið - 21.07.2020, Page 29

Morgunblaðið - 21.07.2020, Page 29
Ljósmynd/Þorbjörn Þorgeirsson Í beinni Rúmenski leikstjórinn Alexander Nanau þakkar fyrir sig. Heimildarmyndahátíðin Iceland Documentary Film Festival, eða IceDocs eins og hún heitir í styttri útgáfu, fór fram á Akranesi 15.-19. júlí og var bæði boðið upp á gæða- myndir, stuttar og langar, og ýmsa viðburði á borð við tónleika, uppi- stand, jóga og barnadagskrá. Ice- Docs var nú haldin í annað sinn en stofnendur hennar eru Ingibjörg Halldórsdóttir, Heiðar Már Björns- son og Hallur Örn Árnason. Heimildarmyndin Collective eftir rúmenska leikstjórann Alexander Nanau var í lok hátíðar valin besta heimildarmyndin og segir í umsögn dómnefndar að í henni sé farin ný leið að viðkvæmum efnistökum sem séu spilling og lítilsvirðing við mannslíf. Nanau rannsakar í mynd- inni bruna í næturklúbbinum Coll- ectiv í Rúmeníu sem kostaði mörg mannslíf. Nanau þakkaði fyrir sig í beinni netútsendingu sem varpað var á vegg í lokahófi hátíðarinnar. Sérstaka viðurkenningu dóm- nefndar hlaut heimildarmyndin Scheme Birds sem er frumraun leikstjóranna Ellen Fiske og Ell- inor Hallin og er í tilkynningu lýst sem tilfinningalega hráu portretti af ungri skoskri konu af verka- mannastétt sem tekið er frá ljóð- rænu sjónarhorni. Besta stutta heimildarmynd hátíðarinnar var myndin Carne eftir brasilíska leik- stjórann Camilu Kater. Í henni er notast við marga ólíka miðla við að segja sögur af hlutgervingu kven- líkamans og hvernig virði líkam- anna breytist á mismunandi lífs- skeiðum, eins og því er lýst í tilkynningu. mynda hátíðarinnar. Enn er hægt að kaupa passa á hátíðina á vef hennar, icedocs.is, og horfa á myndirnar á netinu næstu þrjár vikur. Frekari upplýsingar má finna á fyrrnefndum vef hátíðar- innar. Hátíðarstund Hátíðin var sett með pomp og prakt á miðvikudegi og þá m.a. með sápukúlum og harmonikkuleik. Stjórnin Ingibjörg Halldórsdóttir, Heiðar Már Björnsson og Hallur Már Árnason, stofnendur og stjórnarmenn IceDocs á Akranesi. Rúmensk heimildarmynd sú besta  Iceland Documentary Film Festival var haldin í annað sinn á Akranesi dagana 15.-19. júlí Ljósmyndir/Þorbjörn Þorgeirsson Gleði Gestir hátíðarinnar í lokahófi hennar sem haldið var á sunnudegi. Dómnefnd hátíðarinnar skipuðu kvikmyndagagnrýnandinn Marina Richter og Anna Zamecka kvik- myndagerðarmaður. Kvikmynda- gerðarmennirnir Gunnar Eggerts- son, Anka Paunescu og Yrsa Roca Fannberg skipuðu dómnefnd stutt- Ljósmynd/Þorbjörn Þorgeirsson Ljósmynd/Anna Margrét Björnsson MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson Sýndmeð íslensku tali Í TILEFNI AF 40 ÁRA AFMÆLI FRÁBÆR NÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. 90% Variety

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.