Morgunblaðið - 12.09.2020, Side 52

Morgunblaðið - 12.09.2020, Side 52
Unnur Birna Björnsdóttir, Björn Thoroddsen og Sigur- geir Skafti Flosason leika blús, djass og rokk á tón- leikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði á morgun, sunnudag, kl. 14. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð til styrktar Hallgrímskirkju í Saurbæ. Markmið tón- leikanna er einnig að viðhalda staðnum sem menning- arstað. „Allur ágóði rennur til styrktar staðnum sem með tímanum mun vonandi verða aðdráttarafl fyrir landsmenn sem og erlenda ferðamenn,“ segir í tilkynn- ingu frá skipuleggjendum. Djass í Hallgrímskirkju í Saurbæ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 256. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í fyrsta skipti í þrjátíu ár stendur Liverpool frammi fyrir því verkefni að eiga meistaratitil að verja í ensku knatt- spyrnunni. Það hefst í dag þegar nýliðarnir í Leeds mæta á Anfield í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar. Liverpool og Manchester City hafa verið langbestu lið deildarinnar undanfarin tvö ár og nú er spurningin hvort einhver lið, og þá helst Chelsea og Manchester United, nái að veita þeim keppni á komandi tímabili. »44 Verður Liverpool og Manchester City ógnað í vetur? ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kórónuveirufaraldurinn bitnar mis- jafnlega á fólki og Margrét Soffía Björnsdóttir, listmálari í Reykja- nesbæ, Sossa, kvartar ekki. „Ég er mikið ein, vinn ein, geng ein, og far- aldurinn hefur þannig séð ekki haft nein áhrif á mig, nema hvað ég hef fengið meira næði en áður til að mála.“ Mörg undanfarin ár hefur Sossa opnað vinnustofu sína fyrir gestum og gangandi á Ljósanótt og sýnt verk sín. Vegna faraldursins var engin há- tíð um liðna helgi, en Sossa lét það ekki stöðva sig, fylgdi ráðleggingum þríeykisins í hvívetna og var með sýn- inguna „Tveir metrar“ á vinnustof- unni við Mánagötu 1. „Ég ætlaði ekki að vera með sýn- ingu,“ segir Sossa, „en þar sem fresta varð fyrirhugaðri afmælissýningu í Kaupmannahöfn nú í september vegna veirunnar ákvað ég að opna vinnustofuna og sýna verkin, sem ég hef unnið í ár.“ Sossa ætlaði að sýna um 20 verk á 25 ára afmælissýningunni í Gallerí Sct. Gertrud um næstu helgi. Mörg þeirra seldust um helgina og því þarf hún að safna í sarpinn á ný, en gert er ráð fyrir því að sýningin ytra verði í vor. Ástand og upplifun Fólk er áberandi í verkum Sossu og heiti sýningarinnar var nærtækt. „Ég litast af ástandinu og það sem ég upplifi endar í málverkum,“ segir hún. „Ég mála gjarnan fólk og per- sónurnar eru venjulega þétt saman en nú var langt á milli þeirra. Eðli- lega.“ Myndlist hefur fylgt Sossu frá barnsaldri. „Bestu myndirnar mínar gerði ég þegar ég var fimm ára og þær hanga uppi á vegg hjá mér,“ seg- ir hún sposk. Bætir við að mikill list- áhugi hafi verið og sé í fjölskyldunni og faðir hennar, séra Björn Jónsson, hafi hvatt hana manna mest í list- sköpuninni. „Ég ólst upp á miklu menningarheimili og þótt hann hafi fyrst og fremst safnað bókum á ég einn stein sem hann tálgaði í sem strákur.“ Eftir útskrift frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands fór Sossa í framhaldsnám í listaháskóla í Kaup- mannahöfn og tók síðan masterinn við listaháskóla í Boston. Hún hefur haldið margar sýningar heima og er- lendis og verið verðlaunuð í bak og fyrir. Hún var á Fulbright-styrk fyrir fjórum árum og kenndi málun, eina önn við Green River College í Au- burn. Hún fékk Súluna 2018, menn- ingarverðlaun Reykjanesbæjar, sem veitt eru árlega fyrir stuðning við menningarlíf sveitarfélagsins. „Til að byrja með var ég aðallega í grafík, fyrsta sýningin mín var grafíksýning, en þegar ég fór í mastersnámið 1990 byrjaði ég að mála með litum. Fram að því var ég bara svarthvít.“ Sossa segir að mjög gaman sé að mála, það sé meira lifandi en grafíkin. Hins vegar hafi hún hug á að fara aft- ur í grafíkina með það sem hún hafi lært, sé komin með pressu og sé í startholunum. „Málverkið á samt bet- ur við mig,“ áréttar hún. Hún vilji liti og húmor, því nóg sé af hinu í sam- félaginu. „Maður á að vera glaður þegar maður horfir á myndlist, jafn- vel brosa. Ég mála það sem ég upplifi, mikið konur. Ætli ég sé ekki alltaf að mála sjálfa mig!“ Tveir metrar hjá Sossu Morgunblaðið/Björn Jóhann Tveir metrar Sossa fer að ráðleggingum þríeykisins í þessu verki sínu.  Listakonan fer að ráðleggingum þríeykisins í sköpuninni  Vill gleðja fólk með myndlistinni og fá það til að brosa List Sossa og Viggó, barnabarn hennar, á fullu í vinnustofunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.