Morgunblaðið - 24.09.2020, Qupperneq 6
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Allsherjarþing sameinuðu þjóðanna
stendur nú yfir í höfuðstöðvum sam-
takanna í New York. Faraldur kór-
ónuveirunnar setur að sjálfsögðu
sinn svip á þinghaldið. Mun færri
fulltrúar sitja þingið en alla jafna og
viðstaddir bera andlitsgrímu. En það
breytist ekki að fundarhamarinn
Ásmundarnautur er á sínum stað í
þingsalnum, gjöf Íslendinga til sam-
takanna. Hefð er fyrir því að forseti
þingsins hverju sinni taki við hamr-
inum sem tákni um að hann hafi tekið
við stjórn þingsins.
Ráðherravika allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna fer fram með
blönduðum hætti að þessu sinni, sam-
kvæmt upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneytinu. Fastanefnd Íslands
gagnvart SÞ, undir forsæti Jörundar
Valtýssonar fastafulltrúa, sinnir við-
burðum á staðnum en vegna kórónu-
veirufaraldursins stendur ekki til að
ráðherrar í ríkisstjórn Íslands taki
þátt í þinginu nema í gegnum fjar-
fundarbúnað og með myndbands-
ávörpum. Þá munu alþingismenn
ekki sækja þingið að þessu sinni, eins
og venjan hefur verið undanfarna
áratugi.
Ræður ráðherra teknar upp
Ráðherravikan hófst með sér-
stökum 75 ára afmælisfundi Samein-
uðu þjóðanna mánudaginn 21. sept-
ember og var upptaka með ávarpi
Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð-
herra leikin á fundinum. Forsætis-
ráðherra tekur einnig þátt í fundi um
jafnréttismál 1. október nk. en all-
nokkur fjöldi funda og hliðarviðburða
fer fram með þátttöku fulltrúa Ís-
lands.
Guðlaugur Þ. Þórðarson utanríkis-
ráðherra ávarpar allsherjarþingið
venju samkvæmt og verður upptaka
með ávarpinu flutt þar 29. september
nk. Hann tekur einnig þátt í hliðar-
viðburði um málefni hinsegin fólks
miðvikudaginn 23. september á veg-
um sérstaks kjarnahóps um þau mál-
efni, sem Ísland fékk aðild að í maí sl.
Hann mun einnig ávarpa fund sér-
staks bandalags um fjölþjóða-
samvinnu, „Alliance for multilateral-
ism“, sem fer fram rafrænt kl. 14-17
að íslenskum tíma nk. föstudag.
Þá er stefnt að þátttöku Guð-
mundar Inga Guðbrandssonar um-
hverfis- og auðlindaráðherra á ráð-
herrafundi um líffræðilegan fjöl-
breytileika sem fer fram 30.
september.
75. allsherjarþing SÞ var sett með
formlegum hætti í síðustu viku. Við
setninguna var Volkan Bozkir settur
formlega í embætti forseta allsherj-
arþingsins en hann tók við fund-
arhamrinum og gjöf Íslands,
Ásmundarnaut, úr hendi Tijjanis Mu-
hammad-Bandes, fráfarandi forseta.
Ásmundur Sveinsson skar út
Hamarinn er nefndur eftir Ás-
mundi Sveinssyni sem skar út hamar
sem Ísland afhenti Sameinuðu þjóð-
unum að gjöf árið 1952. Sá hamar
brotnaði og árið 2005 færði Ísland SÞ
annan hamar, sem er eftirlíking af
hinum fyrri. Sigríður Kristjánsdóttir,
Sigga á Grund í Villingaholtshreppi,
skar út þann hamar.
„Hann er í notkun og er raunar
ánægjulegt að geta skýrt frá því að
þegar nýr forseti allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna tekur verið
störfum á hausti hverju gerist það
með þeim táknræna hætti að fráfar-
andi forseti þingsins afhendir hinum
nýkjörna hamarinn góða, gjöf Ís-
lands, Ásmundarnaut,“ segir á
heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
Fulltrúar úr fastanefnd Íslands í
New York sitja að þessu sinni í
fremstu röð í sal allsherjarþingsins
en sá háttur er hafður á í aðdraganda
þingsins að dregið er um hvaða ríki
situr fremst í salnum. Önnur ríki rað-
ast svo í stafrófsröð þar á eftir.
Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna,
193 að tölu, eiga öll sæti á þinginu.
Ljósmynd/SÞ
Veifar hamrinum Volkan Bozkir tekur við embætti þingforseta af Tijjani Muhammad-Bande við setningu þingsins.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, fylgist með. Vegna heimsfaraldursins eru viðstaddir með grímu.
Ásmundarnautur á sínum
stað á allsherjarþingi SÞ
Ráðherrar sækja ekki þingið í ár Fastanefnd Íslands situr í fremstu röð
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: Mán-fös: 11-18
Lau: 11-15
www.spennandi-fashion.is
2020
HAUST
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Tvær grímur fóru að renna á konu
nokkra á höfuðborgarsvæðinu þegar
hún fékk skilaboð og hringingar frá
fjölda áhyggjufullra og dómharðra
vina eftir að grín vinkonu hennar fór
úr böndunum. Hafði vinkonan stofn-
að svokallaða hópfjármögnunarsíðu
eftir að konan tjáði vinkonu sinni að
hún þyrfti að selja annan af tveimur
bílum fjölskyldunnar og er bíllinn í
dýrari kantinum. Vinkonan taldi sig
vera að gera augljóst grín ætlað
innsta hring en annað kom á daginn.
„Ég er búin að vera með í mag-
anum síðan í gær. Þetta var rosa-
fyndið í fyrradag þegar ég sagði vin-
konu minni að ég þyrfti að selja
bílinn minn. Hún sagði „guð minn
góður, ég þarf að setja á fót allsherj-
arsöfnun fyrir þig“, segir konan sem
ekki vill láta nafns getið.
Hún segir að hópfjármögnunar-
síðan hafi fengið að standa fram á
kvöld og henni verið deilt á Insta-
gram en svo hafi hún verið tekin nið-
ur. Taldi hún framsetninguna þess
eðlis að allir myndu átta sig á því að
hér væri um grín að ræða. „Ég er í
vinnu og hef það ágætt. Meira að
segja mömmu fannst þetta fyndið
þangað til fólk fór að hringja. Þetta
var einfaldlega grín sem gekk allt of
langt.“
Á hópfjármögnunarsíðunni var
mynd af konunni með börnum sínum
og tekið fram að greiða ætti niður
námslán með söfnuninni en konan
segir að námslán hennar og eigin-
mannsins séu þegar greidd og því
hafi þetta verið algjörlega úr lausu
lofti gripið. „Ég er gjörsamlega í
rusli yfir þessu. Þetta var rosalega
fyndið í svona korter,“ segir konan.
„Gjörsamlega í
rusli yfir þessu“
Grín fór úr böndunum Bjó til
hópfjármögnunarsíðu fyrir námslán
Morgunblaðið/Golli
Netgrín Fólk getur lagt ólíkan
skilning í það sem það sér.
Útgjöld hins opinbera til íþrótta og
tómstundastarfs eru mun hærri hér
á landi en í nokkru öðru Evrópulandi
sem nýbirtar tölur Eurostat, Hag-
stofu Evrópusambandsins, ná til.
Hlutur íþrótta og tómstunda af út-
gjöldum hins opinbera er lang-
hæstur á Íslandi í samanburði við 30
önnur Evrópuríki og var 3,7% af
heildarútgjöldunum á árinu 2018. Ís-
land er einnig í efsta sæti ef útgjöld-
unum er deilt niður á íbúa umreikn-
að í evrur. Hér voru framlögin 963
evrur á íbúa á árinu 2018 og situr
Lúxemborg í öðru sæti með 500 evr-
ur á íbúa. Soffía Ámundadóttir, for-
maður íþróttanefndar menntamála-
ráðuneytisins, segir ánægjulegt að
stjórnvöld styðji svona vel við íþrótt-
ir á Íslandi, þegar tölurnar eru born-
ar undir hana. ,,Á þessum for-
dæmalausu tímum tel ég þetta bestu
leiðina við að vinna gegn þunglyndi
og einangrun landsmanna. Forvörn í
gegnum íþróttir er sterkt vopn,“
segir hún. omfr@mbl.is
Opinber útgjöld til
íþrótta og tómstunda
Evrur á íbúa í löndum Evrópu
Ísland
Lúxemborg
Noregur
Svíþjóð
Sviss
Finnland
Frakkland
Holland
Danmörk
Belgía
Austurríki
ESB-meðaltal
Þýskaland
Spánn
Ítalía
Grikkland
Írland
Bretland
Pólland
Portúgal
Lettland
Litháen
Slóvakía
Rúmenía
Búlgaría
963
500
307
259
245
226
204
202
201
162
122
113 evrur á hvern íbúa
101
100
75
68
64
62
59
52
45
35
31
30
11
H
e
im
ild
: E
u
ro
st
a
t
Framlögin
langhæst
hér á landi