Morgunblaðið - 03.10.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vegagerðin mun halda áfram með
þá vegagerð á Vestfjarðavegi sem
búið er að undirbúa, það er í Gufu-
firði og þverun Þorskafjarðar, og
áfram verður unnið að undirbúningi
nýs vegar yfir Gufufjörð og Djúpa-
förð og um Teigsskóg. Ekki hafa
tekist samningar við landeigendur á
síðastnefnda svæðinu.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála hefur hafnað kæru
nokkurra aðila til ógildingar á fram-
kvæmdaleyfi sem Reykhólahreppur
gaf út til handa Vegagerðinni vegna
nýs vegar á milli Skálaness og
Bjarkalundar. Vegagerðin fagnar
niðurstöðu nefndarinnar.
10 kílómetra stytting
Magnús Valur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri mannvirkjasviðs
Vegagerðarinnar, segir að nú hafi
Vegagerðin gilt framkvæmdaleyfi
og muni vinna í samræmi við það.
Framkvæmdir eru þegar hafnar við
stuttan kafla í Gufufirði, kafla sem
nýtast mun umferðinni að miklu
leyti, hvernig sem fer með aðal-
framkvæmdina. Hann segir stefnt
að því að bjóða út í haust eða fyrri-
hluta vetrar fyrsta stóra áfangann
sem er þverun Þorskafjarðar. Tekur
hann fram að samningum við land-
eigendur sé ekki að fullu lokið en
bindur vonir við að þeir takist á
næstunni. Sú framkvæmd styttir
leiðina um 10 km. Raunar var ætl-
unin að byrja hinum megin frá, á
þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar
og lagningu vegar á strönd Þorska-
fjarðar um Teigsskóg en óvissan um
leyfin breytti forgangsröðun Vega-
gerðarinnar. Magnús segir að enn sé
verið að vinna í samningum við land-
eigendur um stóru framkvæmdina,
við þveranir og veg um Teigsskóg.
Samningar hafi ekki tekist en nú
verði látið á það reyna til þrautar. Ef
samningar nást ekki verði óskað eft-
ir heimild til eignarnáms þess lands
sem þurfi fyrir veginn.
Ekki er víst að öllum hindrunum
hafi verið rutt úr vegi með úrskurð-
inum í fyrradag. Kærendur geta lát-
ið reyna á málið fyrir dómstólum. Þá
geta þolendur hugsanlegs eignar-
náms varist því fyrir dómstólum, ef
þeir telja ástæðu til.
Reynt til þrautar
að ná samningum
Undirbúið útboð á þverun Vestfjarðavegar í Þorskafirði
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Grafarland Birkiskógur og kjarr er
í Teigsskógi og nágrenni.
Dj
úp
ifjö
rð
ur
Gufu-
fjörður
Þor
ska
fjör
ður
Þo
rs
ka
fjö
rð
ur
B
erufjörður
Skálanes
Teigs
skóg
ur
Hja
llah
áls
Gufudalssveit
Grónes
Hallsteinsnes
Ódrjúgs-
háls
Leið Þ-H um
Teigsskóg
Núverandi vegur
Vestfjarðavegur um Gufudalssveit
Loftmyndir ehf.
Alls 37 smit af kórónuveirunni
greindust á landinu í fyrradag, þar af
26 meðal fólks sem var utan sóttkví-
ar. Þrettán úr þessum hópi sýktra
eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjör-
gæsludeild. Fjöldi smita er þessa
stundina í línulegum vexti, það er
svipaður frá degi til dags. Væri fjölg-
unin til dæmis 50% milli daga mætti
tala um veldisvöxt, sagði Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir í samtali
við mbl.is.
Starfsmaður Krabbameinsfélags
Íslands var í gær greindur smitaður
af COVID-19 og átta samstarfsmenn
viðkomandi voru í kjölfarið sendir í
sóttkví. Það var gert í fyrirbyggjandi
skyni.„Smitrakningarteymið hefur
gripið til ráðstafana og þeir sem talið
er að gætu hafa smitast voru sendir
heim,“ segir Sigríður Sólan Guð-
laugsdóttir, kynningarstjóri
Krabbameinsfélagsins.
605 með virk smit
Alls 605 manns voru í gær í ein-
angrun með virk smit og 1.845 í
sóttkví. Í skimunarsóttkví voru 1.577
manns. Til skoðunar er að koma með
hertari reglur um lokanir og fjöl-
dtakmarkanir, líkar því sem gildu á
útmánuðum þegar fyrsta bylgja kór-
ónuveirufaldurs gekk yfir.
Um slíkar ráðstafanir segir Þór-
ólfur Guðnason að fólk sem ráði mál-
um sé núna að bera saman bækur –
og ná þurfi lendingu. Spurður hvort
aðgerðir verði ekki hertar nema
veldisvöxtur komi til eða að ástandið
verði Landspítalanum óviðráðanlegt
segir hann aðgerðir muni væntan-
lega ráðast af þessu tvennu. Horfa
þurfi til margra þátta. Margir séu
veikir og haldi sú þróun áfram verði
meiri þungi í starfsemi sjúkrahús-
anna sem eru í lykilhlutverki í bar-
áttunni.
Veiran er enn þá
í línulegum vexti
Margir smitast ut-
an sóttkvíar 37
greindust í fyrradag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sóttvarnalæknir Þórólfur skoðar
að varnaraðgerðir verði hertar.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Þetta hefur verið alveg ótrúlega
gaman, nýtt og skemmtilegt æv-
intýri og maður að upplifa bæinn á
annan hátt en vant er,“ segja þeir
Sigurður Þorri Gunnarsson og Logi
Bergmann sem sendu síðdegisþátt
sinn á útvarpsstöðinni K100 út frá
veitingastaðnum Verksmiðjunni á
Akureyri í gær. Þeir félagar kölluðu
sig auðvitað son og tengdason Akur-
eyrar og voru hæstánægðir með þá
nafngift.
K100 kynnir um þessar mundir
skemmtilega áfangastaði í öllum
landshlutum undir yfirskriftinni
„Við elskum Ísland“ þar sem út-
varpsmenn stöðvarinnar fara í stutt-
ar helgarferðir og kanna hvað er í
boði fyrir hlustendur á hverjum
stað.
Það væsti ekki um þá félaga á
Verksmiðjunni, matur borinn fram í
stórum stíl og máttu þeir hafa sig
alla við að smakka á herlegheitunum
sem þeir vitanlega luku lofsorði á.
Hinir og þessir gestir mættu hressir
og kátir í útsendinguna og ræddu
málefni tengd Akureyri.
Útvarpsmennirnir voru líka sam-
mála um að ferðin í gamla heimabæ
Sigurðar hefði lukkast einkar vel og
dekrað verið við þá á alla lund, enda
standa nú yfir Dekurdagur í þeim
ágæta bæ og fólk hvatt til að gera
vel við sig af því tilefni.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Stemning Siggi Gunnars og Logi Bergmann á útvarpsstöðinni K100 voru í
góðum gír í útsendingu á veitingastaðnum Verksmiðjunni á Akureyri í gær.
Dekrað við Sigga
og Loga á Akureyri
K100 sendi út frá Akureyri í gær
Karlmaður hefur verið dæmdur í
fimm ára fangelsi og til greiðslu
þriggja milljóna í miskabætur fyrir
að hafa beitt þáverandi sambýlis-
konu sína grófu ofbeldi og nauðgað
henni í íbúðargámi þar sem þau
höfðu dvalarstað. Veittist maðurinn
ítrekað að konunni með ofbeldi og
nauðgun á eins og hálfs sólarhrings
tímabili. Staðfesti Landsréttur með
þessu dóm héraðsdóms í málinu.
Maðurinn sló konuna meðal ann-
ars ítrekuð hnefahögg í andlit, höfuð
og líkama, risti skurð á læri hennar,
ýtti henni og tók hana kverkataki
þar til hún gat ekki andað.
Fimm ára dómur staðfestur í Landsrétti