Morgunblaðið - 15.10.2020, Side 1

Morgunblaðið - 15.10.2020, Side 1
Styrkur sem slær öll met Snorri Másson snorrim@mbl.is Dr. Júlíus Friðriksson talmeina- fræðingur hefur undanfarna tvo ára- tugi stundað rannsóknir á málstoli í kjölfar heilablóðfalls í Bandaríkjun- um með ágætum árangri. Í takt við þann árangur hafa verkefni hans verið ríkulega styrkt í gegnum tíðina og Júlíusi telst til að frá því að hann hóf rannsóknir hafi hann tekið á móti styrkjum fyrir um það bil 41 milljón bandaríkjadala, andvirði 5,7 millj- arða íslenskra króna. „Ég hef verið mjög heppinn. Ég held að ég hafi fengið fyrsta styrkinn minn fyrir 20 árum og síðan hef ég verið að fá stærri og stærri styrki. Þetta er auðvitað fyrst og fremst vegna þess að ég er með mjög góða samstarfsmenn og góða nemend- ur,“ segir Júlíus í samtali við Morg- unblaðið. Í vikunni hlaut rannsóknarverkefni Júlíusar um málstol framhaldsstyrk frá Heil- brigðisstofnun Bandaríkjanna (NIH). Verkefnið hafði þegar fengið 11,5 milljónir dala árið 2016 og nú bættust við aðrar 12,5. Því er alls um að ræða 24 milljónir dala eða rúm- lega 3,3 milljarða íslenskra króna. „Þetta er náttúrlega frábært. Það er erfitt að fá svona styrki til að byrja með en það er enn þá erfiðara að endurnýja þá. En þegar þú færð svona mikinn pening eru vænting- arnar miklar,“ segir hann. Að fá 24 milljónir dala inn í verkefnið sé með hæstu styrkjum sem heilbrigðis- stofnunin gefur og er hún þó með stærstu styrktaraðilum heims á sviði læknavísinda. Styrkupphæðin slær þegar öll met University of South Carolina, þar sem Júlíus hefur unnið frá aldamót- um. „Við erum að rannsaka bata af málstoli eftir heilablóðfall og hvað það er sem við getum gert til að efla þennan bata. Ástæðan fyrir því að við erum að líta á þetta er að við sjáum mikinn mun á því hver nær sér og hver nær sér ekki. Við höfum fundið út að þar hefur almenn heilsa gífurlega mikil áhrif. Fólk sem er við slæma heilsu, með sykursýki eða til dæmis hreyfir sig lítið nær sér mun síður. Fólk sem lifir heilbrigðu lífi nær sér vanalega miklu betur,“ segir Júlíus. Júlíus sér fram á að niðurstöður rannsóknarinnar eigi eftir að breyta því verulega hvernig meðferð við málstoli er háttað og að áherslan muni færast yfir á sérsniðnari lausn- ir fyrir hvern sjúkling.  Hefur rannsakað málstol í meira en 20 ár  Hefur nú fengið styrk sem nemur 3,3 milljörðum króna fyrir rannsókn sem gæti breytt meðferð sjúkdómsins Júlíus Friðriksson F I M M T U D A G U R 1 5. O K T Ó B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  243. tölublað  108. árgangur  GIRNILEG HELGI Í NETTÓ! Nautalund Þýskaland 3.599KR/KG ÁÐUR: 5.998 KR/KG Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 15.—18. október -40% -30%Lambalæri 1.287KR/KG ÁÐUR: 1.839 KR/KG Avókadó 700 gr 365KR/PK ÁÐUR: 729 KR/PK -50%AF NÝSLÁTRUÐU FYNDINN OG HEIMSPEKILEGUR ÚTLENDINGUR 80 ÁR FRÁ HEIMFÖR SINFÓNÍU- HLJÓMSVEIT OG FANGABÚÐIR ESJA FRÁ PETSAMO 26 KYNNTI SÉR SÖGUNA 18bbbbm 64  Blað Geðhjálpar kemur út í dag. Á forsíðu þess er talan 39, sem stendur fyrir þann fjölda Íslend- inga sem féllu fyrir eigin hendi á síðasta ári. Geðhjálp og Píeta sam- tökin hafa opnað síðuna 39.is. Þar er hægt að skrifa undir áskorun um að setja geðheilsu í forgang í sam- félaginu. „Við vitum að fleiri mann- eskjur taka líf sitt á þessu ári,“ seg- ir m.a. í aðsendri grein í blaðinu í dag frá Geðhjálp og Píeta. »35 Morgunblaðið/Hallur Már Átak Áskorunum safnað á 39.is. Fleiri munu svipta sig lífi á þessu ári Prófanir hefjast í næstu viku í nýrri frystigeymslu Eskju á Eskifirði, en fullbúin kostar hún um hálfan annan milljarð króna. Páll Snorrason, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjár- málasviðs Eskju, segir að um löngu tímabæra fjárfestingu sé að ræða, en frystar afurðir hafa verið geymd- ar í frystiklefum á nokkrum stöðum. Þá eru hafnar framkvæmdir við stækkun á höfninni á Eskifirði, en mikil starfsemi fer fram á athafna- svæðinu innarlega í bænum. Kostn- aður við stækkunina er áætlaður um einn milljarður og eru verklok áætl- uð vorið 2022. Að sögn Jóns Björns Hákonarsonar, bæjarstjóra í Fjarðabyggð, eru framkvæmdirnar meðal þeirra umfangsmestu í sveit- arfélaginu í ár og á næsta ári. »30 Ljósmynd/Gungör Tamzok Eskja Iðnaðar- og tæknimenn hafa haft í nógu að snúast undanfarið. Milljarða framkvæmdir á Eskifirði Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu stóð vel í efsta liði heimslistans, Belgum, í Þjóðadeild UEFA á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Birkir Már Sævarsson jafnaði fyrir Ísland í fyrri hálf- leik en Romelu Lukaku tryggði Belgum 2:1 sigur með tveimur mörkum. Þrátt fyrir mikil forföll í íslenska liðinu stóð það sig vel gegn öflugum andstæðingum en Ísland er eftir sem áður áfram án stiga í keppninni. »59 Morgunblaðið/Eggert Íslenska landsliðið stóð vel í sterkasta liði heims

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.