Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020 53 Komdu að vinna með okkur! Vallaskóli - Sveitarfélaginu Árborg, íþróttakennsla • Íþróttakennara vantar í íþróttakennarateymi Vallaskóla, 100% staða. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki. Viðkomandi þarf að hafa kennsluréttindi grunnskóla. Í Vallaskóla eru yfir 640 nemendur í 1.-10. bekk og yfir 100 starfsmenn, sjá www.vallaskoli.is. Sækja skal um starfið á starfavef Árborgar, starf.arborg.is. Nánari upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri - gudbjartur@vallaskoli.is eða í síma 480 5800. Umsóknarfrestur er til 27. október 2020. Ráðið verður í starfið frá og með 1. nóvember nk. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttar- félags. Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýs- ingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is. Framkvæmdastjóri Selasetur Íslands Laus er staða framkvæmdarstjóra við Selasetur Íslands. Um er að ræða fullt starf í eitt ár með mögu- leika á framlengingu. Selasetur Íslands var stofnað árið 2005 og hlutverk þess er að standa fyrir rann- sóknum á selum og náttúrutengdri ferðaþjónustu. Meginmarkmið setursins er að efla náttúrutengda ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu selaskoðunar á svæðinu og standa fyrir fjölbreyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland. Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Hvammstanga sem er fjölskylduvænt samfélag. Í starfinu felst: • Stefnumótun og stjórnun Selaseturs Íslands • Öflun rannsóknastyrkja og framkvæmd verkefna á fræðasviðum setursins • Uppbyggingu náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra • Móttaka gesta og miðlun þekkingar • Rekstrar- og fjármálastjórnun setursins Við leitum að einstaklingi með: • Meistarapróf á fræðasviði sem nýtist til uppbygging- ar starfsemi Selaseturs Íslands en doktorsmenntun er æskileg • Reynslu af stjórnun, rannsóknum og þróunarstarfi • Leiðtogahæfileika, ábyrgð, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. janúar 2021 og er krafist búsetu í Húnaþingi vestra. Umsóknir berist fyrir 1. nóvember 2020 ásamt afritum af próf- skírteinum, ferilskrá og nöfnum tveggja meðmæl- enda. Umsóknir sendist til Guðmundar Jóhannes- sonar, gummijo@simnet.is Director of the Icelandic Seal Center The Icelandic Seal Center invites applications for the full time position of a director of the center. The Icelandic Seal Center was founded to foster pinniped research in Iceland, to promote sustainable tourism in the area, and to educate the general public about seals. The Center was originally established in 2005 in the interests of further reinforcement of sustain- able tourism in Húnaþing vestra region. The Seal Center is located in the village of Hvammstangi, which is a family friendly community with excellent educational and healthcare facilitie. The location offers great access to nature. See our websites: www.selasetur.is The position entails: • Goal setting and leadership of the institute • Leadership in developing and implementing new research projects • Involvement in the development of local nature- based and rural tourism related to seals • Hosting and teaching student groups and visitors • Financial and management leadership We are looking for a person with: • Master degree in tourism studies or fields related to the research focus of the Seal Center is required, but Ph.D. is beneficial • Experience in project management, research, teaching, and tourism development • Leadership qualities, and who is responsible with good personal skills and able to manage diverse collaborations The position starts January 1st 2021; application deadline is November 1st 2020. Applications, including a CV, academic records, and two letters of recommendation should be sent to: Guðmundur Jóhannesson gummijo@simnet.is Áhættustýring og eftirlit ÍV sjóðir hf. leita að sérfræðingi í áhættustýringu, áhættueftir- liti og greiningu fjárfestinga og markaða. Viðkomandi heyrir beint undir framkvæmdastjóra félagsins og starfar náið með sjóðstjórum. Starfið er á Akureyri. Leitað er eftir einstaklingi með áhuga og þekkingu á fjármálamörkuðum, greiningarhæfni og innsæi hvað viðkemur fjárfestingarkostum. Helstu verkefni og ábyrgð • Áhættueftirlit og stýring ÍV sjóða hf. • Áhættueftirlit og stýring sjóða í rekstri ÍV sjóða hf. • Áhættugreining og áhættueftirlit sértækra fjárfestinga, markaða og eignarflokka. • Aðkoma að ferli fjárfestingarákvarðana út frá áhættu- sjónarmiði. • Greining viðskiptatækifæra í samhengi við áhættustefnu ÍV sjóða eða sértækra sjóða í rekstri félagsins. • Aðkoma að mótun áhættustefnu félagsins eða sértækra sjóða í rekstri þess og eftirfylgni með hlýtni. • Skýrslugerð. Menntunar- og hæfniskröfur • Reynsla, þekking eða menntun sem nýtist í starfi. • Áhugi á fjármálamörkuðum. • Þekking á virkni fjármálamarkaða. • Greiningarhæfni og innsæi. ÍV sjóðir hf. eru fjármálafyrirtæki sem rekur verðbréfasjóði, fjár- festingarsjóði og aðra sérhæfða sjóði. Félagið er með u.þ.b. 40 ma.kr. í stýringu og viðskiptavinahópurinn er allt frá almennum fjárfestum til fag- og stofnanafjárfesta. Félagið er dótturfélag Íslenskra verðbréfa hf. og höfuðstöðvar þess eru á Akureyri. Umsóknir skulu berast á netfangið starf@iv.is fyrir 20. október 2020. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri ÍV sjóða hf. REKSTRARSTJÓRI ORA Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. ORA, sem er eitt elsta og rótgrónasta matvælafyrirtæki landsins, var stofnað 1952 og er nú hluti af ÍSAM. ORA framleiðir mikið úrval matvæla fyrir innlendan markað og einnig til útflutnings. Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2020 og skulu umsóknir berast rafrænt á heimasíðu www.isam.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Við leitum að öflugum og metnaðarfullum aðila í starf rekstrarstjóra ORA. Starfið er í senn fjölbreytt og krefjandi. Leitað er að aðila með brennandi áhuga á innlendri framleiðslu matvæla og reynslu af stjórnun. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og faglegur, auk þess að búa yfir getu til að forgangsraða verkefnum og fylgja þeim eftir. Umfram allt, leitum við þó að aðila sem er tilbúinn að leggjast á árarnar með okkur í krefjandi umhverfi innlendrar framleiðslu, tekur upp símann frekar en að senda tölvupóst og er tilbúinn að fara í slopp af og til. STARFSSVIÐ • Umsjón og ábyrgð á daglegri starfsemi • Umsjón og ábyrgð á framleiðslunni • Umsjón og ábyrgð á starfsmannahaldi • Umsjón og ábyrgð á birgðahaldi • Umsjón og ábyrgð á öryggismálum • Umsjón og ábyrgð á upplýsingakerfi • Gerð framleiðsluáætlana • Kostnaðarverðsútreikningar • Þátttaka í starfi gæðadeildar • Þátttaka í vöruþróunarstarfi • Umsjón og ábyrgð á húsnæði, lóð og vélbúnaði • Stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi MENNTUNAR – OG HÆFNISKRÖFUR • Reynsla af stjórnun er skilyrði • Háskólapróf sem nýtist í starfi er kostur • Þekking á matvælaframleiðslu er kostur • Skipulag og drifkraftur • Góð almenn tölvufærni og góð kunnátta á Excel er skilyrði • Góð samskiptafærni og reynsla af teymisvinnu • Frumkvæði og áreiðanleiki • Ákveðin og fagleg vinnubrögð Nánari upplýsingar: Elísabet Þóra Jóhannesdóttir, mannauðsstjóri elisabet@isam.is eða í síma 522 2703 atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.