Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra staðfesti í
gær friðlýsingu menningarlands-
lags í Þjórsárdal í Árnessýslu. Frið-
lýsingin sameinar minjar 22 forn-
býla í Þjórsárdal sem eina heild,
auk umhverfis þeirra og annarra
fornminjar á svæðinu og er ætlað
að standa vörð um þau verðmæti
sem felast menningarlandslagi
dalsins. Í tilkynningu frá ráðuneyt-
inu kemur fram að Þjórsárdalur
geymi einstakar minjar sem spanni
tímabilið frá landnámi fram á mið-
aldir og að svæðið sé lítt snortið af
síðari tíma framkvæmdum.
Friðlýsa minjar 22
fornbýla í Þjórsárdal
UNICEF á Íslandi hefur hafið sölu
á hettupeysum fyrir börn og full-
orðna. Allur ágóði af sölu peys-
unnar rennur í baráttu UNICEF
fyrir velferð og réttindum barna
um allan heim þar sem forgangs-
atriði er að tryggja menntun barna
á tímum COVID-19, segir í tilkynn-
ingu.
Peysan er fáanleg í bæði barna-
og fullorðinsstærðum. Takmarkað
upplag er í boði. Vegna aðstæðna í
samfélaginu er skrifstofa UNICEF
á Íslandi lokuð og því einungis
hægt að panta peysurnar í heim-
sendingu eða sendingu á næsta
pósthús. Hægt er að kaupa peysur
gegnum vefsíðuna sannargjafir.is.
UNICEF selur
góðgerðarpeysur
Góðgjörðir Hægt er að kaupa hettupeys-
ur af UNICEF á síðunni sannargjafir.is.
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum sífellt að bregðast við
breyttum neysluvenjum neytenda
og liður í því er öflug vöruþróun.
Þessi nýjasta afurð okkar er einmitt
til þess fallin að
svara kallinu um
sykurminni
vörur,“ segir
Gunnar B. Sig-
urgeirsson, að-
stoðarforstjóri
Ölgerðarinnar.
Nýjasta út-
spilið í þessa átt
er sykurskert út-
gáfa af hinni sí-
gildu jólablöndu
landsmanna, malti og appelsíni. Ís-
lendingar hafa rennt jólasteikinni
niður með malti og appelsíni um 65
ára skeið en vinsældir sykurskertra
drykkja leiddu til þess að ákveðið
hefur verið að bjóða upp á sykur-
skerta útgáfu blöndunnar góðu.
„Það má svo sem spyrja hvort
það sé ekki einkennilegt að breyta
þjóðardrykknum en við teljum svo
ekki vera enda verður áfram hægt
að fá hina klassísku blöndu. Sú syk-
urskerta inniheldur 60% minni syk-
ur og hentar þeim sem kjósa heilsu-
samlegri kosti og minni sykur,“
segir Gunnar.
Sykurlaus sveifla
Í viðtali við Morgunblaðið segir
Gunnar að undanfarin ár hafi vin-
sældir sykurlausra drykkja aukist
jafnt og þétt á kostnað þeirra hefð-
bundnu. „Það er mikil sveifla úr
sykruðum drykkjum yfir í sykur-
lausa. Það virðist ekkert lát vera á,“
segir aðstoðarforstjórinn og bætir
við að sölutölur úr stórmörkuðum
sýni þetta svart á hvítu.
„Sölutölur síðustu 12 mánuði
sýna að sykurlausir drykkir eru
63% af heildarsölunni en fyrir
tveimur árum voru þeir 54% af söl-
unni. Sykraðir drykkir eru á und-
anhaldi og tólf mánaða uppsöfnuð
sala núna er 7% minni á sykruðum
drykkjum en hún var fyrir tveimur
árum.“
Pepsi Max nú með yfirburði
Þegar horft er til einstakra vöru-
merkja má sjá að þessi þróun og
vitund neytenda um sykurminni og
sykurlausa drykki hefur leitt til
þess að Pepsi Max er nú mest seldi
gosdrykkurinn hér á landi að sögn
Gunnars. Hann segir að þetta sé í
fyrsta sinn sem Coca-Cola sé velt af
stalli. „Þessi þróun er sérstaklega
áberandi í stórmörkuðum. Fyrir
tveimur árum var árssala á Pepsi
Max rúmlega 30% minni en á kóki í
stórmörkuðum. Núna er árssala
Pepsi Max 7% meiri í stórmörk-
uðum og ég sé að síðustu sex mán-
uði er það aldrei minna en 10%
stærra þannig að það má segja að
um nokkra yfirburði sé að ræða.“
Bylting í neysluháttum
Gunnar segir að þessi þróun
markaðarins sjáist vel á því að syk-
urnotkun í verksmiðju Ölgerðar-
innar minnki sífellt. „Frá árinu 2016
hefur sykurnotkun minnkað um
34% þótt framleitt magn hafi aukist,
aðallega í kolsýrðu vatni. Þetta er
því lýsandi fyrir ákveðna byltingu í
neysluháttum og viðhorfum til syk-
urs,“ segir hann.
Sykurskatturinn óþarfur
„Þetta leiðir auðvitað hugann að
því að það að skattleggja sérstak-
lega sykur í gosdrykkjum mun skila
litlu því þessi þróun hefur átt sér
stað án nokkurrar skattlagningar.
Ljóst er að þær tölur sem hið opin-
bera hefur verið að nefna um það
hvað mikinn sykur Íslendingar inn-
byrða í gegnum gosdrykki eru víðs
fjarri raunveruleikanum enda
byggjast þær tölur á gömlum upp-
lýsingum sem endurspegla engan
veginn stöðuna í þessum málum
eins og hún er í dag.“
Mikil sveifla úr sykruðum
drykkjum yfir í sykurlausa
Landsmenn hafa tekið sykurlausa sveiflu síðustu ár Pepsi Max vinsælla en
kók Malt & appelsín fæst sykurskert Sykurnotkun minnkað um þriðjung
Morgunblaðið/Eggert
Vinsældir Sykurlausir gosdrykkir njóta sífellt meiri vinsælda. Pepsi Max er nú mest seldi gosdrykkurinn hér.
Gunnar B.
Sigurgeirsson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Samherji fiskeldi ehf. hefur undir-
ritað viljayfirlýsingu þess efnis að fé-
lagið festi kaup á eignum Norðuráls í
Helguvík. Um er að ræða um 23 þús-
und fermetra byggingu og um 100
hektara lóð. Hugmyndir eru um að
koma upp landeldi á svæðinu sem
mun framleiða lax, en Norðurál hefur
þegar óskað eftir heimild Reykjanes-
bæjar til að stunda aðra starfsemi en
álframleiðslu á svæðinu.
„Við erum búin að undirrita vilja-
yfirlýsingu um kaup á eignum Norð-
uráls og við erum með þetta í frum-
athugun til að kanna möguleikana
sem eru til staðar. Við erum að ræða
við bæjaryfirvöld og skoða forsendur
fyrir uppbyggingu,“ sagði Jón Kjart-
an Jónsson, framkvæmdastjóri Sam-
herja fiskeldis, í samtali við mbl.is í
gær. Fulltrúar fyrirtækisins og bæj-
arstjórar Reykjanesbæjar og Suður-
nesjabæjar hafa þegar fundað vegna
málsins.
Er Jón Kjartan var spurður um
hversu stóra fjárfestingu væri hugs-
anlega að ræða sagði hann það velta á
ýmsum breytum sem geta haft áhrif
á forsendur verkefnisins. „Það eru
grunnforsendurnar sem ráða stærð-
inni á fjárfestingunni.“
Engin ákvörðun
Engin endanleg ákvörðun hefur
verið tekin um það hvort verkefninu
verði hrundið af stað enda sé aðeins
frumathugun í gangi að sögn fram-
kvæmdastjórans, en gert er ráð fyrir
að niðurstaða athugunarinnar verði
tilbúin fyrir áramót.
Samherji fiskeldi er þegar með
starfsemi á Suðurnesjum og rekur
eldisstöð á Stað við Grindavík og eld-
isstöð á Vatnsleysuströnd auk slát-
urhúss og vinnslu í Sandgerði. Fyrir-
tækið hefur undanfarin ár eingöngu
lagt áherslu á landeldi.
Ekki útséð um
landeldi í Helguvík
Hafa rætt áformin
við bæjarstjóra á
Suðurnesjum
Morgunblaðið/RAX
Helguvík Það sem átti að verða
álver gæti orðið laxeldisstöð.