Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Fyrirtækið okkar er skráð í Lond-
on, en varan er framleidd í Sviss.
Svo vildi til að ég þekki lögmann
sem aðstoðaði okkur við að koma
fyrirtækinu á fót í Bretlandi. Til
þess að reka þetta hér þyrftum við
að hafa leyfi stjórnvalda til að selja
læknisfræðilegar kannabisafurðir
sem er gríðarlega flókið ferli.“
Svona lýsir Henry Kristófer
Harðarson, 26 ára gamall Vest-
mannaeyingur og atvinnumaður í
ísknattleikum, eða íshokkí, í Dan-
mörku upphafi fyrirtækisins
MEON sem hann starfrækir með
rússneskum liðsfélaga sínum, Kirill
Kabanov.
Heyrt um CBD-olíu
MEON selur svokallaða CBD-
olíu, sem er afurð kannabis-
jurtarinnar og hefur víða um
heimsbyggðina getið sér góðan
orðstír sem kvalastillandi lyf við
íþróttameiðslum.
CBD er eitt af fjölmörgum virk-
um efnum plöntunnar og algengasti
kannabínóðinn á eftir THC eða te-
drahýdrókannabínóli, sem hins veg-
ar er hin þekkta vímuafurð plönt-
unnar.
„Við höfðum heyrt nokkrum
sinnum um CBD-olíu. Á þeim tíma
var mikið að gerast í Bandaríkj-
unum í þeim efnum,“ segir Vest-
mannaeyingurinn. „Þá heyrðist af
nokkrum UFC-íþróttamönnum
[bardagaíþróttakeppnin Ultimate
Fighting Championship] sem not-
uðu CBD-olíu til að jafna sig á
meiðslum. Segja má að þetta hafi
opnað augu mín fyrir þessari afurð
í fyrstu,“ segir Henry frá.
Fékk lausn þjáninga
Það sem hins vegar sannfærði
hann endanlega voru þrálátir bak-
verkir, fylgifiskur ísknattleiksins
þar sem átökin verða gjarnan
römm.
„Ég losnaði bara ekki við þetta,
ég hafði prófað endalausar með-
ferðir, nudd, kírópraktor, sjúkra-
þjálfun, nálastungur og nefndu það
bara. Pabbi, sem þá hafði verið að
nota CBD-olíu við liðagigt í fingr-
um með góðum árangri, benti mér
þá á þessa lausn og þannig losnaði
ég að lokum við sársaukann í bak-
inu,“ segir Henry.
Hjólin taka að snúast
„Við íþróttamennirnir erum próf-
aðir af lyfjaeftirliti Danmerkur sem
heyrir undir WADA, Alþjóðalyfja-
eftirlitið. Þess vegna er mjög mik-
ilvægt að þú sem íþróttamaður haf-
ir þekkingu á þeim fæðubótar-
efnunum sem þú neytir,“ útskýrir
Henry.
Árið 2018 hafi CBD verið tekið
út af bannlyfjalista WADA sem hafi
gert íþróttamönnum um gervalla
heimsbyggðina kleift að nota af-
urðina. Þar með hafi hjólin farið að
snúast hjá þeim Kabanov og þeir
samið við birgja í Sviss um að út-
vega þeim olíuna sem þeir selja nú
út um allan heim. „Nema til landa
sem leyfa þetta ekki enn þá, til
dæmis Frakklands, við megum ekki
senda olíuna þangað,“ segir Henry
og hlær.
Hardarson selur kannabis
„Auðvitað er maður meðvitaður
um að fólk hefur skiptar skoðanir á
CBD og ég viðurkenni fúslega að
ég var kvíðinn gagnvart því hvernig
viðskiptavinir okkar myndu bregð-
ast við. Við vorum með íshokkí-
tímarit sem skrifaði um stofnun
MEON og fyrirsögnin þar var
„Hardarson og Kabanov selja
kannabis“, þú getur rétt ímyndað
þér. En það var bara eitthvað sem
ég þurfti að venjast. En almennt
hefur gengið mjög vel hjá okkur
síðan við stofnuðum fyrirtækið,“
segir Vestmannaeyingurinn og bæt-
ir því við að dagarnir geti orðið
býsna langir. „Viðskiptavinir okkar
eru forvitnir og spyrjast mikið fyr-
ir. Við upplifum að vörur okkar
hafa jákvæð áhrif á til dæmis verki,
kvíða, liðagigt, svefnvandamál,
bólgu og almenna líðan,“ segir
Henry og játar að dagar þeirra
Kabanov geti orðið býsna langir, en
Henry býr með danskri kærustu
sinni og fjögurra mánaða dóttur
ásamt því að stunda atvinnu-
mennskuna hjá Odense Bulldogs af
einurð og festu.
Er CBD-olía framtíðarplásturinn?
Vestmannaeyingur og Rússi starfrækja fyrirtækið MEON Hafði neytt allra ráða til að losna við
bakverki Hjólin tóku að snúast þegar CBD hvarf af bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsins WADA 2018
Ljósmynd/Aðsend
Vestmannaeyingurinn og Rússinn Henry Kristófer Harðarson og liðs-
félagi hans á ísnum, Kirill Kabanov, eiga og reka fyrirtækið MEON.
Viðtalið í fullri lengd verður birt
á mbl.is í dag.
mbl.is