Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
Austurveri, Háaleitisbraut 68,
sími 568 4240
Barnastígvél
Nýtt frá
Náttúrulegt gúmmí
Stærðir
19-28
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Ómálefnaleg og veruleikafirrt“
SA gagnrýna herferð Eflingar Vilja fylgja niðurstöðu nefndar um refsiábyrgð
Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins eru síður
en svo sáttir við málflutning stéttarfélagsins Efl-
ingar en félagið hefur sett í gang herferð gegn
launaþjófnaði á vinnumarkaði og vill að hann verði
gerður refsiverður. Í samtölum í gær kom fram að
SA líta svo á að nefnd félagsmálaráðherra sem
ASÍ og SA áttu sæti í, þar sem fjallað var um refs-
ingar vegna brota á vinnumarkaði, hafi komist að
niðurstöðu sem eðlilegt sé að fylgt verði og gengið
verði beint til verks, en nú vilji Efling eitthvað allt
annað en nefndin komst að niðurstöðu um.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda-
stjóri SA, skrifar grein í Morgunblaðið í dag undir
yfirskriftinni „Staðreyndaþjófnaður Eflingar“,
þar sem hann gagnrýnir auglýsingar Eflingar og
segir herferðina hafa að markmiði að stilla at-
vinnurekendum og starfs-
mönnum upp sem andstæðing-
um. „Atvinnurekendur séu upp
til hópa brotamenn sem veigri
sér ekki við því að hlunnfara
starfsfólk sitt. Sú mynd sem
Efling dregur upp af stjórn-
endum fyrirtækja og Samtök-
um atvinnulífsins (SA) er bæði
ómálefnaleg og veruleikafirrt,“
segir hann m.a. í greininni.
Halldór segir SA ekki mál-
svara þeirra sem gerast sekir um refsivert athæfi.
„SA tóku ásamt ASÍ þátt í starfi nefndar um fé-
lagsleg undirboð og brotastarfsemi á vinnumark-
aði sem lagði til refsiábyrgð vegna alvarlegra eða
ítrekaðra brota gegn launafólki. SA hafa lengi
stutt breytingar á lögum til að hrinda þessum til-
lögum í framkvæmd, eins og ítrekað var í grein
formanns SA í Fréttablaðinu 19. ágúst sl. Hvorki
Efling né ASÍ geta andmælt því,“ skrifar Halldór.
Fram kemur að SA væntu þess að ný starfs-
kjaralög yrðu samþykkt síðastliðið vor þar sem
ákvæði um refsiábyrgð væri að finna. Það hafi því
miður ekki gerst, einkum vegna kröfu ASÍ um allt
aðra útfærslu viðurlaga en samþykkt hafði verið í
samráðshópi ráðherra og vilyrði var gefið um í
yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við gerð lífs-
kjarasamningsins. Tillaga ASÍ feli í sér að at-
vinnurekandi sem vangreiði launamanni beri að
endurgreiða honum hin vangreiddu laun með
dráttarvöxtum og 100% álagi. omfr@mbl.is »35
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Útgjöld Ábyrgðasjóðs launa, sem
ábyrgist greiðslu á kröfum um van-
goldin laun, hafa stóraukist á þessu
og síðasta ári. Árið 2018 var heildar-
fjárhæð útgjalda um 850 milljónir en
í fyrra voru útgjöldin um 2,1 millj-
arður, að sögn Björgvins Stein-
grímssonar, hjá Ábyrgðasjóði launa.
,,Við gerum ráð fyrir svipaðri fjár-
hæð útgjalda á þessu ári en sjóð-
urinn hefur greitt um 1.439 milljónir
fyrstu 9 mánuði ársins. Fjöldi launa-
manna sem fengu greitt árið 2018
var 533 en 1.001 árið 2019. Í ár ger-
um við ráð fyrir að fjöldinn geti náð
1.200 en á fyrstu 9 mánuðum ársins
höfðu 882 fengið greitt,“ segir hann.
Eignin úr 1.200 milljónum í 100
Eign sjóðsins nam um 1.200 millj-
ónum í byrjun þessa árs en að sögn
Björgvins er gert ráð fyrir að í lok
ársins verði eignir um það bil 100
milljónir eða minna. „Á næsta ári er
gert ráð fyrir að fjöldi greiddra
krafna verði svipaður og útgjöld
verði álíka eða meiri miðað við árið
2020 þegar litið er til fjölda krafna
sem bíða afgreiðslu,“ segir hann.
Efling heldur því fram að launa-
þjófnaður sé sívaxandi vandamál á
vinnumarkaði sem geti komið niður
á Ábyrgðasjóði. Aðspurður segir
Björgvin að sjóðnum berist reglu-
lega kröfur félagsmanna Eflingar
vegna gjaldþrota fyrirtækja þar sem
verið er að leiðrétta kjör starfs-
manna. Ábyrgðasjóður ábyrgist að-
eins kröfur vegna gjaldþrota, þannig
að þær kröfur sem næst ekki að inn-
heimta hjá launagreiðanda geti lent
á sjóðnum. omfr@mbl.is
Hefur
greitt út
milljarða
Kennslanefnd
ríkislögreglu-
stjóra staðfesti í
gær að líkams-
leifar mannsins
sem lést í bruna í
húsbíl í landi
Torfastaða í
Grafningi síðast-
liðið föstudags-
kvöld séu af Ein-
ari Jónssyni, sem fæddur var 21.
ágúst 1982. Einar átti lögheimili í
Akraseli 5 í Reykjavík. Hann var
ókvæntur og barnlaus.
Skv. upplýsingum frá lögreglu í
gær má af rannsókn ráða að Einar
hafi látist af völdum súrefnisskorts.
Lést þegar
húsbíll brann
Einar Jónsson
Amerískur flækingsfugl, fléttuskríkja, heimsótti
garðinn hjá Eyjólfi Vilbergssyni í Grindavík
hinn 12. október. Hann tók myndina af fuglinum.
Að öllum líkindum hraktist þessi smágerði fugl
hingað með haustlægð. Þetta var í níunda skipti
sem tegundin sást hér á landi, samkvæmt fugla-
fréttasíðu Yanns Kolbeinssonar.
Heimkynni fléttuskríkjunnar eru á austur-
strönd Norður-Ameríku, frá syðsta hluta Kan-
ada og þaðan alla leið til Mexíkóflóa og til vest-
urs í átt að sléttunum miklu, að því er fram kom í
Náttúrufræðingnum (3.-4. tbl., 1997). Vetrar-
stöðvar hennar ná frá Flórída og Bahamaeyjum,
suður um Mexíkó og Mið-Ameríku til Níkaragva,
Antillaeyja og Barbados. gudni@mbl.is
Fléttuskríkja á faraldsfæti í Grindavík
Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson
Hjalti Geir Kristjáns-
son, húsgagnaarkitekt í
Reykjavík, er látinn, 94
ára að aldri. Hann
fæddist í Reykjavík
hinn 21. ágúst 1926, son-
ur Ragnhildar Hjalta-
dóttur og Kristjáns Sig-
geirssonar.
Hjalti lauk verslunar-
prófi frá VÍ 1944 og
sveinsprófi í húsgagna-
smíði frá Iðnskólanum
1948. Hélt þá til Sviss og
lauk námi í húsgagna-
teiknun frá Kunstgewerbeschule der
Stadt Zürich 1950, fór í framhalds-
nám í húsgagnahönnun í Svíþjóð og
verslunargreinum við Columbia-
háskóla í New York.
Hjalti var framkvæmdastjóri
Kristjáns Siggeirssonar hf. frá 1952,
ásamt því að hanna þau
húsgögn sem fyrir-
tækið framleiddi, og
var stjórnarformaður
GKS 1990.
Hann var stofnandi
FHI, Félags húsgagna-
og innanhússarkitekta,
árið 1953 og formaður
til 1962. Árið 2019 var
Hjalti gerður að heið-
ursfélaga FHI. Hann
sat í stjórn Versl-
unarráðs Íslands 1969-
1982, þar af formaður
frá 1978. Hjalti var stjórnarformaður
Almennra trygginga 1974-1989 og
varaformaður stjórnar Sjóvár-
Almennra frá 1989. Hann sat í stjórn
Félags íslenskra iðnrekenda 1975-
1979, í stjórn Útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins 1975-1979. Þá sat Hjalti í
stjórn Slippfélagsins og Hamars hf.
1976-1986, stjórn Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis frá 1978-2003,
stjórn Eimskipafélagsins 1981-2000,
stjórn Stálsmiðjunnar 1986-1990.
Hjalti var ræðismaður Sviss á Íslandi
1987-1997, var sæmdur riddarakrossi
fálkaorðunnar 1986 og finnsku Ljóns-
orðunni 1982.
Hjalti Geir var brautryðjandi á
sviði íslensks iðnaðar og hönnunar.
Hann studdi inngönguna í EFTA
1970 en þá gátu íslenskir hönnuðir
beint sjónum sínum utan, sem hleypti
lífi í starf íslenskra húsgagna-
arkitekta og íslensk hönnun varð að
sjálfstæðri atvinnugrein ekki síst fyr-
ir framgöngu hans.
Eiginkona Hjalta Geirs er Sigríður
Th. Erlendsdóttir sagnfræðingur.
Þau eignuðust fjögur börn: Ragnhildi,
Kristján, Erlend og Jóhönnu Vigdísi.
Andlát
Hjalti Geir Kristjánsson