Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020 Ekki er ofsögum sagt að geð-heilsa okkar allra sé eittstærsta áskorunarefni ársins 2020. Árið hefur einkennst af mikilli óvissu um hvað hver dagur mun fela í skauti sér og krefst mikils æðruleysis af okkur. Covid-19 felur ekki einungis í sér líkamlega heilsuvá heldur tekur bar- áttan við þennan illskæða sjúkdóm mikið á andlega. Frasinn „Við erum öll almannavarnir“ er orðinn okkur vel kunnugur. Hann minnir okkur á mikilvægi samstöðu og samheldni, að við komumst ekki í gegnum þetta ein og óstudd og að mikilvægt er fyrir hvert og eitt okkar að leggja af mörk- um eins og við getum og hlúa hvert að öðru. Til að vera fær um það þá þurf- um við auðvitað líka að hlúa að okkur sjálfum. Andlegt ástand er lúmskt Þó að ýmsu sé hægt að venjast þá er ástandið í grunninn nýtt og fram- andi fyrir okkur og viðbrögð okkar við því geta þá líka verið okkur fram- andi. Andlega álagið sem fylgir því að vera stöðugt á varðbergi getur verið lúmskt og stundum áttum við okkur ekki almennilega á áhrifum þess fyrr en það er orðið langvarandi og varn- irnar sem við komum okkur upp til að þrauka fara að gefa eftir. Ekki bætir úr skák að hefðbundnar lausnir verða margar erfiðari eða jafnvel ómögu- legar í því raski á daglegu lífi og hvers kyns starfsemi sem fylgir sótt- varnaaðgerðum. Við höfum minni möguleika en áð- ur á því að rækta félagsleg tengsl, skreppa í líkamsrækt eða sund eða sækja hvers kyns afþreyingu. Mörg okkar eru síðan að lenda í áföllum á borð við að missa vinnu eða missa af alls kyns öðrum tækifærum og þurf- um því að endurskoða fyrirætlanir okkar verulega. Það er þekkt og við- urkennt að hvers kyns rask á högum okkar af slíku tagi felur í sér gríðar- legt andlegt álag og reynir mjög á þolgæðin. Við svona krefjandi aðstæður er mikilvægt að huga að því að vera meðvituð um hvað er í gangi hjá sjálf- um okkur og hvert öðru og gefa okkur svigrúm til að finna fyrir því sem við finnum. Tala upphátt og spyrja um líðan hvert annars, leita inn á við og lækka kröfurnar sem við gerum til sjálfra okkar. Stöðluð geðráð á borð við að huga vel að því hvernig við nær- umst, hvernig við sofum og hvernig við tæklum neikvæðar hugsanir eiga við nú sem aldrei fyrr. Batahugmyndafræðin sem við hjá geðheilsuteymum Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins vinnum út frá snýst um að mæta slíkum áskorunum með því að skoða styrkleika okkar gagngert, fara yfir hvað það er sem veitir okkur von og viðheldur okkur og nærir. Út frá því er hægt að setja niður plan um hvernig við viljum sinna sjálfum okkur. Einfaldar að- ferðir á borð við að skipuleggja vik- una, halda í rútínu, skrifa niður skipu- lega hvar við erum stödd og hvert við viljum stefna til framtíðar (eftir því sem það er hægt í núverandi ástandi) geta gert mikið. Hugleiðslu- og slök- unartækni er hægt að beita heima fyrir eða úti í náttúrunni. Netsam- skipti er hægt að virkja til þess að halda sambandi og jafnvel mynda ný tengsl. Verum ófeimin við að deila ráðum hvert með öðru og nýta þá þekkingu sem við, hvert og eitt okk- ar, búum yfir á því hvernig takast má á við erfiðar aðstæður. Á vefsíðunni covid.is/undirflokkar/lidan-okkar er að finna góðar almennar upplýsingar um líðan og hvernig er hollt að bregð- ast við áhyggjum. Hjálp ekki feimnismál Það er algjörlega eðlilegt að ráða hreinlega ekki við aðstæður án fag- legrar hjálpar. Slíkt á aldrei að vera nokkurt einasta feimnismál, að leita sér hennar. Heilsugæslan er til stað- ar fyrir geðheilsu jafnt sem aðra heilsu. Þangað getur þú alltaf leitað þér aðstoðar á því sviði sem öðrum heilsutengdum. Geðrækt á tímum Covid-19 Morgunblaðið/Eggert Gaman Líf og leikur í Hljómskálagarðinum. Samheldni er mikilvæg og í gegnum núverandi ástand komumst við ekki ein og óstudd. Því verðum við hvert og eitt okkar að leggja af mörkum eftir megni og hlúa hvert að öðru. Heilsuráð Halldór Auðar Svansson notendafulltrúi í geðheilsuteymi HH vestur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Göng Allt rask á högum okkar felur í sér andlegt álag og reynir á þolgæði. Unnið í samstarfi við Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Á vefnum bokmenntaborgin.is má fara í stafrænt ferðalag um Reykjavík og kynna sér sögusvið sagna og rit- höfunda í borginni. Tæpt er á ýmsu og af nægu er að taka. Á vef þessum segir meðal annars frá skáldabekkj- um sem eru víða um borgina, en nærri viðkomandi bekk getur fólk nálgast á netinu t.d. ljóð sem staðn- um tengist. Að fara um þessar slóðir getur verið ágæt afþreying, sé fólk eitt á rölti nú á tímum smitvarna. Við styttu Tómasar Guðmunds- sonar við Tjörnina, niður af Ráð- herrabústaðnum, má hlusta á Hjalta Rögnvaldsson flytja ljóðin Hótel jörð og Við Vatnsmýrina úr bókinni Fagra veröld, sem kom út í Reykjavík árið 1933. Íslensk skáld byrjuðu seint að nýta sér borgina sem yrkisefni, en Tómas var á meðal þeirra fyrstu sem tóku skrefið og hefur því löngum bor- ið titilinn „borgarskáldið“. Gengið um bókmenntaborg Skáld á bekk Borgarskáld Tómas Guðmundsson á bekk við Tjörnina. Hjólið er til taks. Grímur koma aldrei í stað al- mennra sýkinga- varna eins og handþvottar, al- menns hreinlætis og þrifa á flötum sem margir snerta, segir á heilsuveru. Með tilliti til sóttvarna geta þær verið góðar þegar fólk er með einkenni frá öndunarvegum og vill forðast að smita aðra, t.d. í margmenni. Notaðu alltaf hreina eða nýja grímu, rakar og skítugar gera ekkert gagn og auka sýkingarhættu. Einnota gríma dugar í fjórar klukkustundir en skemur ef hún skemmist eða verður rök. Spritta þarf hendur hafi gríma í notkun verið snert. Smitvarnir á tímum Covid-19 Góðar grímur Grímur eru í ýms- um útfærslum. Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Smoothease ONE-SIZE buxur frá Fantasie Einstaklega mjúkar og teyjanlegar. 7 litir í boði. Hentar stærðum XS-XL Verð 2.850,- ENGIN SKILYRÐI. ÞÚ ÞARFT HVORKI LYKIL NÉ KORT. ÖNNUR VILDARKJÖR GILDA EKKI MEÐ LÆGSTA VERÐI ÓB. ob.is LÆGSTA VERÐÓB ARNARSMÁRI BÆJARLIND FJARÐARKAUP HLÍÐARBRAUT AKUREYRI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.