Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 18
Alma Rosé Virtur fiðluleikari sem lifði og hrærðist í menningarelítu Vínarborgar.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég rambaði á sögu ÖlmuRosé fyrir tilviljun þegarég var að leita að upplýs-ingum um gleymdar kon-
ur í listasögunni, fyrir verkefni á síð-
asta ári mínu í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Þegar ég fann síðu um
kvennahljómsveit í Auschwitz, þá
greip það mig strax. Þetta vatt upp á
sig og Alma tók verkefnið alveg yfir,“
segir Melkorka Gunborg Brians-
dóttir, ung íslensk kona sem er í bók-
menntafræðinámi í London, en hún
var í haust með útvarpsþátt á RÚV-
undir heitinu, Að spila sér til lífs, þar
sem hún fjallaði um hina stórmerki-
legu Ölmu Rosé, konu sem stjórnaði
kvennahljómsveit í Auschwitz-
Birkenau, stærstu fanga- og útrým-
ingarbúðum nasista.
„Sinfóníuhljómsveit og fanga-
búðir eru eitthvað sem flestum
finnst ekki passa saman, það er
bæði skrýtið og óþægilegt, en oftast
var að minnsta kosti ein sinfóníu-
hljómsveit í hverjum fangabúðum
og líka kórar. Í fangabúðunum í
Auschwitz var hljómsveit með yfir
hundrað meðlimum, en oftast voru
það karlmenn. Hljómsveitin hennar
Ölmu var eina hljómsveitin sem ein-
vörðungu var skipuð konum.“
Fjölskyldan flúði til London
Melkorka segir að skarpar
andstæður geri sögu Ölmu sér-
staka.
„Alma kom úr virtri og vel
menntaðri fjölskyldu, hún var fædd
í Austurríki rétt eftir aldmótin
nítjánhundruð og var systurdóttir
Gustafs Mahler. Hún ólst upp innan
um menningarelítu Vínarborgar,
lærði fiðluleik og faðir hennar, Arn-
old Rosé, var mjög þekktur fiðlu-
leikari og konsertmeistari Vínar-
fílharmóníunnar og Vínar-
óperunnar. Áður en stríðið skall á
hafði Alma stofnað kvennahljóm-
sveitina Valsdömur Vínar og þær
ferðuðust um Evrópu og spiluðu við
góðan orðstír, enda allar atvinnu-
hljóðfæraleikarar.
Þegar stríðið braust út þá flúði
fjölskylda Ölmu til London, en þau
voru af gyðingaættum. Alma sneri
aftur til meginlands Evrópu þegar
þrengdi að fjárhagslega, með það að
markmiði að sjá fjölskyldunni fyrir
tekjum. Þá var hún gripin af Gesta-
pómönnum sem færðu hana í fanga-
búðirnar í Auschwitz. Þar var henni
falið að stjórna sinfóníuhljómsveit
kvenna, en hún var líka látin spila
einleik á fiðluna þegar SS-
foringjum þóknaðist, og hljóm-
sveitin lék þá undir.“
Nutu örlítilla aukafríðinda
Í útrýmingarbúðunum þurfti
Alma að stjórna konum sem flestar
kunnu sáralítið í tónlist og töluðu ólík
tungumál enda komu þær alls staðar
að úr Evrópu.
„Meðalaldur þeirra var 19 ár,
svo þetta voru bara unglingar sem
lifðu þarna við hörmulegar aðstæður.
Samsetning hljóðfæra í hljómsveit-
inni var undarleg, engin blásturs-
hljóðfæri, aðeins eitt selló og svo var
harmonikka og mandólín. Fyrir vikið
er virkilega áhugavert að hugsa til
þess hvernig þetta hefur hljómað,“
segir Melkorka og bætir við að kon-
urnar í hljómsveitinni hafi þurft að
spila á hverjum morgni eldsnemma
við hliðið þegar kvenfangarnir fóru
til vinnu og líka þegar þær komu aft-
ur í búðirnar að afloknum vinnudegi.
„Þær spiluðu þýska marsa sem
áttu að vera upplífgandi fyrir kven-
fangana, sem er svo skelfilegt, í ljósi
aðstæðna. Þær þurftu líka að spila
tónleika alla sunnudaga fyrir SS-liða
og þá fanga sem vildu hlusta. Ekki
tóku allir því vel, enda sársaukafull
áminning um horfinn tíma. Einnig
má gera ráð fyrir einhverri afbrýði-
semi, því stúlkurnar í kvennahljóm-
sveitinni nutu örlítilla aukafríðinda.
Þær máttu borða við borð og það var
örlítið betri kynding í æfingaskálan-
um af því hljóðfærin máttu ekki
skemmast. Þær fengu aðgang að
frumstæðu klósetti og máttu fara oft-
ar í sturtu en aðrir fangar. Samt voru
þær rétt eins og aðrir fangar líkam-
lega vannærðar og upplifðu hörm-
ungar eins og allir aðrir í búðunum.“
Alma var harður stjórnandi
Melkorka segir að kröfurnar
hafi verið afar strangar hjá
hljómsveitarstjóranum Ölmu.
„Hún beitti þessar ungu konur
járnaga, sem hún þekkti úr sínu tón-
listaruppeldi. Hún hafði faglega
þjálfun sem hún beitti grimmt, enda
sjálfsbjargarviðleitni fólgin í því að
leggja metnað sinn í að standa sig vel
í tónlistarflutningnum, þannig gátu
þær haldið sönsum í hörmungum
fangabúðanna. Þær spiluðu klassíska
sinfóníutónlist en líka ný tónverk og
óperettur, valsa, marsa, tangó og
annað sem var vinsælt á þessum
tíma. Að lokum samanstóð efnisskrá
þeirra af yfir tvö hundruð verkum,“
segir Melkorka og bætir við að þær
konur sem voru í hljómsveitinni og
hafa tjáð sig um þetta tímabil í lífi
sínu, segi að Alma hafi verið mjög
harður stjórnandi, en hún hafi líka
varið þær, hún krafðist þess til dæm-
is að læknir yrði sóttur ef þær voru
veikar.
„Að vera í hljómsveitinni
tryggði meðlimum ákveðna vernd,
enda höfðu þær ákveðnu hlutverki að
gegna. Alma var mjög kröfuhörð og
er sögð hafa sagt við þær: „Ef við
spilum ekki vel þá er ekkert sem
hindrar þá í að senda okkur í
brennsluofninn.“ Að spila vel var því
upp á líf og dauða. Líf þessara
kvenna var undir því komið hversu
ánægðir SS-foringjarnir voru með
hljómsveitina. Þeir gátu komið hve-
nær sem þeim hentaði og krafið þær
um að spila fyrir þá. Þær þurftu að
lúta vilja þeirra í einu og öllu.“
Þær þökkuðu henni lífgjöfina
Engin kvennanna í hljómsveit-
inni dó í fangabúðunum, nema
Alma, hún dó þar 1944 þegar hún
var 38 ára, rétt áður en stríðinu lauk
og fangar fengu frelsi.
„Mér finnst það hryllilega
sorglegt, eftir að hafa haldið lífi í
sér og konunum í hljómsveitinni
með hæfileikum sínum. Alma veikt-
ist eftir að hafa borðað mat í afmæl-
isveislu í fangabúðunum og
samsæriskenningar segja að eitrað
hafi verið fyrir hana, en líklegra er
að hún hafi dáið úr matareitrun, því
fleiri en hún veiktust eftir þessa
veislu. Alma naut virðingar og hafði
sérstaka stöðu, því lík hennar var
lagt á viðhafnarbörur og konurnar í
hljómsveitinni fengu að kveðja hana
þar, sem var algjört einsdæmi í
fangabúðunum.“ Melkorka segir að
ein kona úr hljómsveitinni hafi
skrifað bók um reynslu sína og þar
segi hún Ölmu hafa verið ósann-
gjarna og harða. „Aðrar konur úr
hljómsveitinni hafa þakkað Ölmu
fyrir að bjarga lífi sínu og bera
mikla virðingu fyrir henni.“ Mel-
korka tekur fram að hægt sé að
hlusta á hljóðupptökur á YouTube
þar sem Alma og faðir hennar spila
saman á fiðlur.
Að spila vel var upp á líf og dauða
Melkorka Gunborg Bri-
ansdóttir kynnti sér sögu
Ölmu Rosé, konu sem
var fangi í Auschwitz og
fékk það undarlega hlut-
verk að stjórna sinfóníu-
hljómsveit kvenfanga.
Melkorka Hún heillaðist af sögu Ölmu þegar hún rakst á hana.
Ung stúlka Alma Rosé barn að aldri og upprennandi fiðlusnill-
ingur, óafvitandi hvaða örlög biðu hennar á fullorðinsárum.
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEUCA Model 3186
L167 cm Leður ct 10 Verð 339.000,-
L207 cm Leður ct 10 Verð 379.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15