Morgunblaðið - 15.10.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 15.10.2020, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Brúarfoss, nýjasta gámaskip Eim- skip, lagði af stað heim á leið frá Gu- angzhou í Kína á þriðjudagsmorgun. Siglingin mun taka um 40 daga. Mikil seinkun varð á afhend- ingu skipsins, eða allt að eitt ár. Ástæðan er sú að í lok september í fyrra brann svokallaður ásrafall yfir í prufukeyrslu hjá kínversku skipa- smíðastöðinni. Hann framleiðir raf- magn með snúningi vélaröxulsins. Ásrafallinn er þýskur búnaður og þurfti að smíða nýjan rafal og koma honum til Kína. Afhenda átti Brúar- foss á undan Dettifossi en vegna taf- anna fór svo að Dettifoss var afhent- ur á undan og kom til landsins 13. júlí síðastliðinn. Eimskip tók formlega við Brú- arfossi sl. föstudag. Áhöfn og starfs- menn Eimskips hafa verið í Kína undanfarnar vikur til að undirbúa móttöku skipsins. Karl Guðmunds- son skipstjóri tók við Brúarfossi fyr- ir hönd Eimskips. Skipstjóri á móti Karli verður Jón Ingi Þórarinsson. Karl er enginn nýgræðingur í milli- landasiglingum. Hann hóf störf hjá Eimskip sem vikapiltur á Skeiðfossi árið 1979, þá 15 ára gamall, og hefur starfað hjá félaginu allar götur síð- an. Karl segir það hafa verið mjög góða tilfinningu að stíga um borð í Brúarfoss í fyrsta sinn, „Menn eru mjög ánægðir með skipið sem er gríðarlega vel útbúið nýjum tækj- um,“ segir hann í stuttu viðtali á heimasíðu Eimskips. „Við hlökkum til að leggja af stað, kynnast skipinu enn betur og koma því í vinnu og gera þetta að okkar,“ bætir Karl við. Brúarfoss mun sigla svipaða leið og systurskipið Dettifoss fór í sumar. Skipið mun sigla frá skipa- smíðastöðinni í Guangzhou til Taic- ang í Kína þar sem farmur verður lestaður. Þaðan svo með viðkomu í Singapore og gegnum Suez- skurðinn inn í Miðjarðarhafið. Siglt verður til Rotterdam og svo til Dan- merkur þar sem það mun koma inn í siglingaáætlun félagsins. Áætlað er að Brúarfoss hefji siglingar í sigl- ingakerfi Eimskips í seinni hluta nóvember. Heimir Karlsson verður yfirstýrimaður á heimsiglingunni og Örn Engilbertsson yfirvélstjóri. Brúarfoss á heimleið frá Kína eftir langa töf Ljósmynd/Eimskip Áhöfnin Alls eru 16 manns í áhöfn Brúarfoss á heimsiglingunni. Karl skipstjóri er fimmti frá hægri á myndinni.  Skipið væntanlegt til Reykjavíkur eftir um 40 daga Lagt af stað Brúarfoss heldur frá bryggju í Kína áleiðis til Íslands. Grundarfirði | Í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá fæðingu Guð- mundar Runólfssonar útgerðar- manns þann 9. október sl. ákváðu afkomendur hans og núverandi eigendur sjávarútvegsfyrirtækisins Guðmundar Runólfssonar hf. (G. Run) að heiðra minningu hans með því að styðja við félög og stofnanir bæjarfélagsins með veglegu fram- lagi til hvers og eins. Þeir sem þannig hlutu styrki frá fyrirtækinu voru: Ungmennafélag Grundar- fjarðar, Skotveiðifélagið Skot- grund, Golfklúbburinn Vestarr, Björgunarsveitin Klakkur, Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól, Grundarfjarðarkirkja og Grund- arfjarðarbær vegna tækja í útivist- ar- og athafnagarð í svokölluðum Þríhyrningi. Forsvarsmenn þeirra sem styrk hlutu tóku við gjafabréfi úr hendi stjórnarformannsins Runólfs Guð- mundssonar. Hann sagði við þetta tækifæri að faðir hans hefði alla tíð borið hag og heill síns bæjar- félags fyrir brjósti. Hans væri best minnst með því að styðja við og styrkja það starf sem kemur bæj- arbúum sem best. Viðstaddir at- höfnina voru allir afkomendur og eigendur G.Run ásamt mökum og afkomendum. G.Run í Grundarfirði styrkir á tímamótum Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður Forsvarsmenn G.Run og fulltrúar þeirra sem njóta. ALVÖRU VERKFÆRI 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is BROTINN SKJÁR? Við gerum v allar tegun síma, spjaldtö og t ið dir lva ölva Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Breytingin núna felst aðallega í auknu úrvali af bjór en áður hefur vöruúrvalið í léttvíni og sterku verið aukið þannig að allt vöruvalið sé fáan- legt í Heiðrúnu. Í huga margra við- skiptavina hefur Heiðrún verið sú búð sem hefur mesta úrvalið og nú er það raunin,“ segir Sigrún Ósk Sig- urðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Breytingar voru nýverið gerðar á Vínbúðinni Heiðrúnu. Kælirinn var stækkaður um rúmlega 60 fermetra inn í rými þar sem áður var lager. Er þar nú að finna allan þann sérbjór sem fáanlegur er hverju sinni í Vín- búðunum. Nú er hægt að nálgast allt það vöruúrval sem Vínbúðirnar hafa að bjóða í Heiðrúnu. Á þriðjudag voru alls 2.786 vörur með birgðastöðu í Heiðrúnu að sögn Sigrúnar. Af því var 1.521 í léttvíni, 487 vörunúmer í bjór og 778 vörur sem tilheyra öðrum flokkum, m.a. sterkt áfengi. Á sama tíma í fyrra voru vörurnar 2.597 og hefur vörunúmerum því fjölgað um 7% á milli ára. Mesta aukningin er í bjór en í fyrra var fáanleg 381 vara í þeim flokki en í vikunni 487 vöruteg- undir, sem þýðir fjölgun um tæplega 28%. Mikil aukning í bjór- úrvali í Heiðrúnu  Kælirinn var nýlega stækkaður um 60 fermetra Morgunblaðið/Júlíus Heiðrún Vínbúðin hefur verið stækkuð og vöruúrval aukið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.