Morgunblaðið - 15.10.2020, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is
Einnota
andlitsgrímur
3ja laga
10 stk. pakkningar
Type IIR
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Þættirnir voru teknir upp í júlí síðast-
liðnum og náðu þau rétt svo að klára
tökur áður en hert samkomubann tók
gildi. Ásamt Fannari skrifuðu þau
Vala Kristín Eiríksdóttir, Júlíana
Sara Gunnarsdóttir og Halldór Lax-
ness Halldórsson handritið að þátt-
unum líkt og í fyrstu tveimur seríun-
um.
Með aðalhlutverk í þáttunum fara
þær Vala og Júlíana ásamt Hilmari
Guðjónssyni, Arnmundi Ernst Back-
man, Sigurði Þór Óskarssyni og Hildi
Völu Björnsdóttur.
Kvikmynda- og þáttagerð hefur
blómstrað hér á Íslandi í sumar og
nokkrar stórar kvikmyndir verið
teknar upp, bæði erlendar og inn-
lendar. Þáttagerðin blómstraði sömu-
leiðis.
„Það fóru rosamörg verkefni af
stað í sumar. Einhvern veginn hittist
þannig á að það fóru fjórar eða fimm
stórar seríur af stað í sumar og
kannski var það það sem var erfiðast
að skipuleggja. Ég veit ekki hvort það
var Covid að þakka eða ekki,“ segir
Fannar.
„Ég er bara búinn að hafa það
ágætt, ég er með tvö lítil börn og það
hefur bara gengið vel. Á meðan leik-
skólarnir eru opnir heldur maður geð-
heilsunni,“ segir Fannar þegar hann
er spurður hvernig hann hafi haft það
meðan heimsfaraldurinn geisar.
„Ég reyndar hélt að maður yrði
eitthvað meira skapandi í þessu
ástandi. Maður gæti bara lokað sig
inni og skrifað á fullu en mér finnst
það bara oft hafa öfug áhrif. Í þessu
ástandi er maður einhvern veginn
bara minna frjór,“ segir Fannar og
bætir við að hann hafi verið með hnút
í maganum yfir að hafa ekki nýtt tím-
ann til að skrifa meira nýtt.
Hann er þó á fullu í öðrum verk-
efnum sem snúa að handritsgerð um
þessar mundir. Fannar hefur einnig
stýrt þáttunum Framkomu á Stöð 2
þar sem hann fylgist baksviðs með
listamönnum koma fram. Heimsfar-
aldurinn hafði töluverð áhrif á fram-
leiðslu þáttanna enda sárafáir lista-
menn að koma fram um þessar
mundir. Þá þurfti að auki að fresta
tökum sem fara áttu fram erlendis.
Þriðja sería af Venjulegu fólki er
aðgengileg á Sjónvarpi Símans
Premium.
Gekk vel þrátt fyrir heimsfaraldur
Þriðja sería af þáttunum
Venjulegt fólk kom inn á
Sjónvarp Símans í gær,
miðvikudag. Fannar
Sveinsson, einn hand-
ritshöfunda og leikstjóri
þáttanna, segir að fram-
leiðsla þeirra hafi geng-
ið vel og heimsfarald-
urinn ekki sett stórt
strik í reikninginn.
Júlí Tökum lauk í júlí áður en samkomutakmörk voru aftur hert.
Leikstjórinn Fannar segir að allt hafi gengið smurt fyrir sig.
Venjulegt fólk Vala, Júlíana og Arnmundur
fara með aðalhlutverk í þriðju seríu.