Morgunblaðið - 15.10.2020, Side 59
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
ÞJÓÐADEILD
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ísland er enn án stiga eftir fjóra
leiki í Þjóðadeild UEFA eftir 1:2
tap gegn Belgíu á Laugardalsvell-
inum í gærkvöldi. Belgar eru efstir
í 2. riðli með níu stig en Danir og
Englendingar eru með sjö stig. Ís-
land hefur raunar ekki náð í stig í
Þjóðadeildinni frá upphafi en Ís-
land er nú í efstu deild í annað sinn
frá því deildin var stofnuð. Út úr
þessum úrslitum öllum má lesa að
það sé einfaldlega fullstór biti fyrir
Ísland að vera í efstu deild en ekki
slá menn hendinni á móti því þegar
það býðst. Staða Íslands í Þjóða-
deildinni skilaði Íslandi jú í umspil
fyrir EM.
Í þessari keppni sem reynst hef-
ur íslenska liðinu erfið hefur Ísland
mætt Belgíu fjórum sinnum og
Belgar hafa fagnað sigri í öllum til-
fellum. Belgar eru í efsta sæti
styrkleikalista FIFA og það sýnir
sig trekk í trekk að Ísland á í erf-
iðleikum á móti Belgíu.
Frammistaðan í gær var hins
vegar ekki svo slæm hjá íslenska
liðinu ef mið er tekið af mótherj-
anum. Menn eiga auðvitað ekki að
vera ánægðir með að tapa og hvað
þá á heimavelli en leikurinn var í
það minnsta töluvert betri fyrir ís-
lenska liðið heldur en í Brussel í
síðasta mánuði. Og líklega var
frammistaðan einnig betri en þegar
Ísland tapaði fyrir Belgíu á Laug-
ardalsvelli fyrir tveimur árum, 0:3.
Lukaku erfiður viðureignar
Fastamenn vantaði í bæði liðin að
þessu sinni. Leikmennirnir sem
forfölluðust hjá Belgum eru auðvit-
að öllu þekktari en að sama skapi
hafa þeir meira mannaúrval til að
fylla í skörðin. Einn þekktasti leik-
maður Belga, Romelu Lukaku, réð
úrslitum í gær og skoraði bæði
mörkin. Sóknarmaðurinn naut-
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jöfnunarmark Birkir Már Sævarsson sendir boltann framhjá Simon Mignolet og jafnar metin fyrir íslenska liðið á 17. mínútu leiksins.
sterki virðist kunna ágætlega við
sig í Reykjavík því hann skoraði
einnig tvö mörk í Laugardalnum
fyrir tveimur árum.
Bakvörðurinn Birkir Már Sæv-
arsson skoraði mark Íslands í leikn-
um og þar með annað mark sitt á
landsliðsferlinum. Birkir fékk nú
tækifæri á ný eftir að hafa verið ut-
an landsliðshópsins í nokkurn tíma
og nýtti tækifærið vel. Birkir hefur
verið vægast sagt markheppinn að
undanförnu í Pepsi Max-deildinni
og skoraði fjögur mörk í þremur
leikjum á dögunum. Þegar hann var
settur í byrjunarliðið í gær þá fékk
maður einhvern veginn á tilfinn-
inguna að hann gæti tekið upp á því
að skora í leiknum. Hann brosti
breitt þegar boltinn lá í netinu enda
leyfði hann örugglega leikgleðinni
að ráða ferðinni í gær. Nýtti sprett-
hörku sína til að lauma sér inn fyrir
vörnina og tók á móti mjög góðri
stungusendingu frá Rúnari Má.
Fimm manna vörn
Íslenska liðið kom Belgum ef til
vill á óvart með því að stilla upp í
fimm manna vörn. Andstæðingar
Íslands eru orðnir vanir því að Ís-
lendingar spili með fjögurra manna
vörn en nú var gripið í annað leik-
kerfi. Ef til vill var það gert vegna
þess hve illa gekk að halda aftur af
Belgunum í útileiknum í síðasta
mánuði þegar Belgía vann 5:1.
Leikáætlunin gekk nokkuð vel og
síðari hálfleikurinn var góður af
hálfu íslenska liðsins. Þar þarf auð-
vitað að taka með í reikninginn að
Belgar voru yfir og þurftu ekki á
marki að halda. Samt sem áður var
ýmislegt jákvætt hjá íslenska lið-
inu.
Mörkin sem liðið fékk á sig voru
slysaleg en kannski er alltaf hægt
að segja það eftir leiki. Boltinn
hrökk af Herði Björgvini fyrir Lu-
kaku í fyrra markinu og í því síðara
tók Hólmar þá áhættu að henda sér
niður inni í vítateig sem er hættu-
spil. Úr því varð vítaspyrna.
Lukaku í aðalhlutverki
Skoraði aftur tvö mörk á Laugardalsvelli Betri frammistaða en í Brussel
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Þetta hefur verið sérstakur sólarhringur en jafnframt
skemmtilegur. Maður hafði engan tíma til að fagna sigrinum
í gær,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, þjálfari U21 árs landsliðs
karla í fótbolta, eftir 1:2-tap fyrir Belgum í Þjóðadeild
UEFA.
Arnar var á hliðarlínunni hjá A-landsliðinu í gærkvöld í
fjarveru Eriks Hamréns og Freys Alexanderssonar sem eru í
sóttkví. Þar var hann ásamt Davíð Snorra Jónassyni, þjálfara
U17 landsliðs karla, sem og Þórði Þórðarsyni, þjálfara U19
landsliðs kvenna. Arnar var aðeins sólarhring áður í Lúxem-
borg að stýra U21 árs liðinu til 2:0-sigurs í undankeppni EM.
„KSÍ vildi kalla mig heim til að vera í teyminu með Davíð
og Þórði. Fyrir mig breytti það stöðunni, ég þurfti að hoppa
upp í bíl og fara strax af stað. Þetta var ótrúlega gaman að fá
að vera með strákunum inni í klefa. Drengirnir áttu frábær-
an leik í dag og geta verið stoltir. Leikurinn var mjög vel
settur upp hjá Erik og Frey og við gátum fylgt góðu plani,“
sagði Arnar.
Íslenska liðið stillti upp þremur miðvörðum í gærkvöld og
þá aðallega til að reyna að stöðva gott sóknarlið Belga. „Við
tókum þá ákvörðun að spila þetta á móti þeim. Það er rosa-
lega erfitt að spila á móti Belgum. Þeir spila 3-4-3 og eru
sniðugir að finna svæði á milli miðjunnar og varnarinnar.
Það er erfitt að verjast þessu en við náðum því ágætlega með
þrjá miðverði og þrjá á miðjunni. Við hefðum mátt skapa 1-2
góð færi í viðbót og þá hefði þessi leikur verið nánast full-
kominn,“ sagði Arnar.
Strákarnir geta verið stoltir
Morgunblaðið/Eggert
Mark Jón Daði, Birkir Már og
Albert fagna markinu.
ÍSLAND – BELGÍA 1:2
0:1 Romelu Lukaku 9. með föstu vinstri-
fótarskoti skoti rétt innan vítateigs.
1:1 Birkir Már Sævarsson 17. eftir
sendingu Rúnars Más Sigurjónssonar í
gegnum vörn Belga.
1:2 Romelu Lukaku 38. úr vítaspyrnu
eftir að brotið var á honum.
M
Sverrir Ingi Ingason
Hólmar Örn Eyjólfsson
Rúnar Már Sigurjónsson
Birkir Már Sævarsson
Birkir Bjarnason
Guðlaugur Victor Pálsson
Albert Guðmundsson
Dómari: Andris Treimanis, Lettlandi.
Áhorfendur: 60.
Birkir Már Sævarsson skoraði sitt
annað mark fyrir landslið Íslands í sín-
um 94. landsleik. Það fyrra kom gegn
Liechtenstein á Laugardalsvellinum í
júní 2016.
Birkir Bjarnason var fyrirliði í fyrsta
sinn og lék sinn 89. landsleik. Hann jafn-
aði þar með Aron Einar Gunnarsson og
Hermann Hreiðarsson í 4.-6. sæti yfir
leikjahæstu landsliðsmenn Íslands.
Ekki var skemmtilegt að heyra
þau tíðindi frá Póllandi að Hauk-
ur Þrastarson, landsliðsmaður í
handknattleik, hefði slitið kross-
band í hné á dögunum. Haukur
er aðeins 19 ára og á þeim aldri
sem er mótunarskeið hjá leik-
manni á uppleið og atvinnu-
mannaferillinn auk þess nýhaf-
inn hjá Kielce.
Miklar vonir eru bundnar við
Hauk og samherja hans úr yngri
landsliðunum, Viktor Gísla Hall-
grímsson. Er það ekkert leynd-
armál enda voru þeir sérlega
efnilegir og eru orðnir góðir.
Þegar nánast heil hreyfing
væntir mikils af mönnum í fram-
tíðinni þá er það ekki úr lausu
lofti gripið. Með þá innanborðs
lék unglingalandsliðið til úrslita
á EM í Krótaíu árið 2018.
Ekki veit ég hversu margt ís-
lenskt íþróttafólk ég þekki sem
slitið hefur krossband. Þótt ég
myndi bara nefna fólk úr knatt-
spyrnu og handknattleik þá væri
það óhugnanleg tala. Í raun þarf
ekki að fara langt frá Hauki til
að finna dæmi því systir hans,
Hrafnhildur Hanna, hefur lent í
því að slíta krossband.
Eins leiðinlegt og það nú er þá
getur Haukur alla vega aflað sér
upplýsinga hjá mörgum hand-
boltakempum um það hvernig
best sé að vinna sig út úr slíku
áfalli.
Ég man ekki betur en að ekki
ómerkari leikmaður en Ólafur
Stefánsson hafi slitið krossband
þegar hann lék ennþá hér heima
með Val. Ef til vill hefur hann þá
verið á svipuðum aldri og Hauk-
ur er nú. Ólafur sneri öflugur til
baka þótt það taki tíma að vinna
úr meiðslum sem þessum.
Haukur þarf að vera þolinmóður.
Þegar ekki er lengra liðið á æv-
ina en 19 ár þá geta átta mán-
uðir virkað sem mjög langur
tími.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Englendingar eru dottnir niður í
þriðja sætið í 2. riðli Þjóðadeild-
arinnar í fótbolta, riðli Íslands, eftir
ósigur gegn Dönum á Wembley í
gærkvöld, 0:1.
Harry Maguire, miðvörður enska
landsliðsins, var rekinn af velli á 34.
mínútu og dæmd vítaspyrna sem
Christian Eriksen skoraði úr. Er-
iksen lék sinn 100. leik í gærkvöld
og er yngsti landsliðsmaður Dana
sem nær þeim áfanga, 28 ára gam-
all. Simon Kjær lék einnig sinn 100.
landsleik og er sá næstyngsti. Metið
á undan þeim átti hinn íslenskætt-
aði Jon Dahl Tomasson sem lék sinn
100. landsleik rétt fyrir 32 ára af-
mælisdaginn.
Danir fögn-
uðu sigri á
Wembley
AFP
Sigurmarkið Christian Eriksen
fagnar á Wembley.