Morgunblaðið - 15.10.2020, Page 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
HellyHansen
Fremont dömu og herraskór
Nú kr. 19.990.-
Kr. 26.990.-
aff slátt
af skóm
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Írska teiknimyndin Wolfwalkers hef-
ur hlotið einróma lof gagnrýnenda frá
því hún var frumsýnd á kvikmyndahá-
tíðinni í Toronto 12. september. Wolf-
walkers er sköpunarverk fyrir-
tækisins Cartoon
Saloon í Kilkenny
á Írlandi og þriðja
teiknimyndin sem
byggð er á írskum
þjóðsögum en þær
fyrri eru Secret of
the Kells og Song
of the Sea. Þær
hafa að sama
skapi hlotið mikið
lof og verðlaun.
Helga Krist-
jana Bjarnadóttir er meðal þeirra fjöl-
mörgu listamanna sem komu að gerð
Wolfwalkers og býr hún og starfar í
Kilkenny á Írlandi. Hún er heima-
vinnandi þessa dagana vegna Co-
vid-19 og segir það hafa gengið merki-
lega vel. Helga er nú yfirmaður
þeirrar deildar fyrirtækisins sem litar
allt sem hreyfist í væntanlegri teikni-
mynd, m.a. persónur, en önnur deild
sér um bakgrunna og umhverfi.
Byrjaði á Lundakletti
Helga er spurð að því hvernig hún
hafi endað í þessu merkilega starfi og
segist hún alltaf hafa haft mikinn
áhuga á teiknimyndum og listum.
„Ég kláraði menntaskólann, fór svo í
Myndlistaskólann í Reykjavík í eitt
ár og reyndi svo í nokkur ár að kom-
ast í nám erlendis af því það er ekki
hægt að læra þetta á Íslandi. Það
gekk ekki vel í fyrstu skiptin og ég
vann í bókabúð á meðan en svo loks-
ins komst ég inn í nám í Dublin, í
Ballyfermot College,“ svarar Helga.
Skömmu eftir útskrift hafi hún séð
auglýst starf lærlings hjá Cartoon
Saloon og sótt um. „Ég fékk vinnu
þar við að vera „compositor“ eða
samsetjari við teiknimyndaseríu sem
hét Puffin Rock og var sýnd á RÚV
undir heitinu Lundaklettur,“ segir
Helga.
Gott auga og þolinmæði
Helga er, sem fyrr segir, í yfir-
mannsstöðu hjá Cartoon Saloon og
segist hafa komið að ýmsum þáttum
teiknimyndagerðar á þeim árum sem
hún hefur unnið í fyrirtækinu. „Núna
er ég „ink and paint supervisor“ og
það fer bara eftir verkefninu og
djobbinu hver titillinn er. Þetta er
mikil verkefnavinna og ég er ráðin í
tiltekna mynd eða seríu frekar en að
vera fastráðin hjá fyrirtækinu,“ út-
skýrir Helga sem vinnur nú að teikni-
myndinni My Father’s Dragon sem
mun koma út eftir nokkur ár, að henn-
ar sögn.
En hvað þarf manneskja í þessu
starfi að geta gert, hvaða hæfileikum
þarf hún að búa yfir? „Ég hef einmitt
verið að spá mikið í það af því við er-
um að fara að ráða í deildina en þegar
verið er að lita mynd er mikilvægast
að vera með gott auga fyrir smáat-
riðum. Teiknimynd er 12-24 rammar á
sekúndu þannig að þetta eru rosalega
margar teikningar, mikil hreyfing og
allir litirnir þurfa að vera á sínum stað
í hverjum einasta ramma. Það þarf
líka mikla þolinmæði í þetta þar sem
þetta eru mjög margar myndir og oft
svipaðar og lita þarf hverja einustu
þeirra almennilega. Síðan er gott al-
mennt að vera með teiknihæfileika því
þó ekki sé mikið um teikningu í starf-
inu sjálfu þurfa fínhreyfingar að vera
góðar og vald yfir þeim til að geta litað
öll smáatriðin,“ svarar Helga.
Hún segir gott að byrja teikni-
myndaferilinn í „ink and paint“-
deildinni og eftir síðustu mynd hafi
margir farið úr henni yfir í aðrar.
Dýr og tímafrek aðferð
– Það er mikil samkeppni í teikni-
myndagerð á Írlandi og mikil eftir-
spurn eftir störfum í greininni, er það
ekki?
„Jú, við auglýstum um daginn og
fengum um 200 umsóknir fyrir 10
störf. Jú, samkeppnin er mikil og sér-
staklega í þessu stúdíói af því stúdíóin
eru ekki mörg með svona handteiknað
„animation“, flest eru farin yfir í tölvu-
gerðar teiknimyndir, 3D,“ svarar
Helga. Hjá Cartoon Saloon sé allt
handteiknað en þó í tölvu. „Það er
mjög dýrt og tímafrekt,“ segir Helga
um þessa aðferð en afraksturinn er
eftir því tilkomumikill, eins og sjá má
af dæmum á vef fyrirtækisins,
cartoonsaloon.ie.
Helga segir að í nýjustu mynd
fyrirtækisins, Wolfwalkers, sé líka að
finna teikningar gerðar á pappír með
kolum og bleki meðal annars og
greinilegt að myndirnar eru hand-
gerðar og teiknaðar upp á gamla
mátann. „Það er eitthvað svo
mennskt við að vilja skapa list og það
hafa allir gert það og eitthvað svo fal-
legt að hafa ennþá fingraför þess
sem bjó hlutinn til einhvers staðar í
myndinni,“ segir Helga. Sem dæmi
um slík fingraför má nefna að litum
er stundum leyft að fara út fyrir lín-
urnar en um leið þarf að láta þá líta
út fyrir að hreyfast. Segist Helga
hafa fengið það verkefni að láta þetta
stílbragð ganga upp.
Írar svipaðir Íslendingum
Helga hefur búið og starfað í
bænum Kilkenny í sex ár og segist
hún kunna vel við sig á Írlandi en
hún bjó áður í fjögur ár í Dublin.
„Það er þægileg stemning hérna,
Írar eru svipaðir okkur en kannski
aðeins opnari,“ segir hún. „Það er
auðvelt að lenda á spjalli við Íra og
eignast vini og þar hjálpar til
pöbbamenningin hérna. Fólk fer á
pöbbinn til að hanga þar, það er
ekkert að fara til að detta í það,“
segir Helga og líkir írskum krám
við heitu pottana í sundlaugunum á
Íslandi.
Ævintýri Stilla úr teiknimyndinni Wolfwalkers sem írska fyrirtækið Cartoon Saloon framleiddi og hefur hlotið lof.
Fingraför eru falleg
Helga Kristjana Bjarnadóttir starfar við teiknimyndagerð á Írlandi Teiknimyndin Wolfwalkers
hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda Mikilvægast að vera með gott auga fyrir smáatriðum
Helga Kristjana
Bjarnadóttir
Wolfwalkers fjallar um dóttur
veiðimanns sem fengið hefur
það verkefni að útrýma úlfum í
nágrenni Kilkenny. Stúlkan vill
verða veiðimaður en það vill fað-
ir hennar ekki og laumast hún
dag einn út í skóg og hittir þar
aðra stúlku. Í ljós kemur að
stúlkan sú er „wolfwalker“,
breytist í úlf að næturlagi. Helga
segir söguna að vissu leyti
byggða á sönnum atburðum þar
sem úlfum hafi verið útrýmt á Ír-
landi á seinni hluta 18. aldar.
Úlfum útrýmt
UM WOLFWALKERS
Breski ljósmyndarinn Chris Killip
er látinn, 74 ára að aldri. Killip var
einn áhrifamesti heimildaljósmynd-
ara Breta, þekktastur fyrir einstök
verk þar sem hann skrásetti mann-
líf í fátækum iðnararsamfélögum í
norðausturhluta Englands á átt-
unda og níunda áratugnum. Killip
kallaði verkefnið „In Flagrante“ og
kom hluti þess út í samnefndri bók
sem hlaut mikið lof. Hann tók svart-
hvítar myndirnar á 4x5-tommu
plötuvél, sem er afar krefjandi
verkfæri við slíka vinnu, og auðn-
aðist að fanga erfiðleikana innan
samfélaga verkamanna sem höfðu
orðið undir í síaukinni iðnvæðingu.
Hvort sem hann beindi linsunni að
verkamönnum, ungum pönkurum
eða húsmæðrum sem glímdu við að
halda fjölskyldunum saman, þá má
sjá sterka samúð og skilning á
ástandinu í myndum Killips.
Í The Guardian er vitnað í ljós-
myndarann Martin Parr sem segir
Killip hafa horft á þessi samfélög
með öðrum hætti og hafa skapað
nýja frásögn í myndunum með því
að fara nær fólkinu og sögu þess.
Parr telur In Flagrante vera mikil-
vægustu ljósmyndabókina um Bret-
land frá seinna stríði.
Killip starfaði síðustu áratugi
sem prófessor í ljósmyndun við
Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.
Ljósmyndarinn Chris Killip.
Heimildaljósmyndarinn Chris Killip allur
Sjónvarpsþáttaröðin Ráðherrann sem nú er sýnd á RÚV
hefur verið seld til sýningar í Bandaríkjunum, Ástralíu,
Kanada og Suður-Evrópu.
Cineflix Rights, dreifingaraðili Ráðherrans á heimsvísu,
hefur skrifað undir samninga við nýju streymisveituna
Topic í Bandaríkjunum um sýningu á þáttunum fyrir
bandarískan markað og einnig hefur verið skrifað undir
samninga við SBS í Ástralíu, AMC Networks International
í Suður-Evrópu og TVO í Kanada, samkvæmt tilkynningu.
Sýningar á þáttunum eru þegar hafnar í Svíþjóð og Finn-
landi. Ólafur Darri Ólafsson fer í þáttunum með hlutverk
forsætisráðherrans Benedikts Ríkharðssonar.
Ólafur Darri
Ólafsson
Ráðherrann sýndur í mörgum álfum