Morgunblaðið - 15.10.2020, Síða 68

Morgunblaðið - 15.10.2020, Síða 68
Mistur eftir Ragnar Jónasson var í vikunni valin glæpasaga ársins í Bretlandi, Mystery Book of the Ye- ar, þar sem bókin hlaut Capital Crime-verðlaunin á glæpasagnahátíðinni Capital Crime í London. Hátíðin stendur að verðlaununum með fyrirtækinu Amazon. Í tilkynningu segir að bókin hafi verið sú eina þýdda sem tilnefnd var til verðlaunanna en auk hennar voru tilnefndar Island of Secrets eftir Rachel Rhys, The Holdout eftir Graham Moore, The House Guest eftir Mark Edwards og Rules for Perfect Murders eftir Pet- er Swanson. Fyrirkomulag verð- launanna er þannig að dómnefnd til- nefnir fimm bækur í nokkrum flokk- um og hafa svo lesendur síðasta orðið um hver skuli hljóta verðlaunin. Þetta er í annað sinn sem Ragnar er tilnefndur til verð- launanna fyrir glæpasögu ársins en í fyrra var það fyrir Drunga. Mistur glæpasaga ársins í Bretlandi FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 289. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valur og Breiðablik verða Íslandsmeistarar karla og kvenna. FH og Stjarnan fara í Evrópukeppni en Breiða- blik þarf að sjá til hvað verður um bikarkeppnina. Fram- arar sitja eftir með sárt ennið og horfa á eftir Keflavík og Leikni upp í úrvalsdeildina. Mörg fleiri félög kætast eða hryggjast. Þetta er sviðsmyndin ef KSÍ þarf að hætta keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu vegna út- breiðslu kórónuveirunnar. »58 Hvað ef keppninni verður hætt? ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ólafur M. Jóhannesson rekur sýn- ingarfyrirtækið Ritsýn, sem hefur í aldarfjórðung staðið fyrir sýn- ingum, meðal annars á sviði sjávar- útvegs, landbúnaðar og stóreld- húsa. Hann varð að skella í lás þegar kórónuveiran gerði innrás sína fyrr á árinu, en í stað þess að leggjast í kör fór hann að rifja upp gamla takta í myndlistinni. „Konan var tekin upp á því að ganga allt að 20 kílómetra á dag en ég kaus styttri göngutúra og ákvað að hella mér út í myndlistina, sem ég sagði skilið við þegar ég stofnaði fyrir- tækið fyrir 25 árum.“ Á árum áður hélt hann einkasýn- ingar og sýndi verk á samsýn- ingum auk þess sem hann hefur myndskreytt bækur eftir sig og aðra. „Satt best að segja bjóst ég við að vera farinn að ryðga í þessu fagi, að hugmyndabankinn væri tæmdur, en svo var eins og línur og litir lifnuðu líkt og tíminn hefði staðið kyrr. Það er svo einkennilegt að um leið og ég settist við trön- urnar flögruðu hugmyndirnar að úr öllum áttum.“ Ævintýri á myndfletinum Hann notar sérstaka liti frá Sviss og sérstaka penna frá Japan. Segir að ekki sé hægt að lýsa hug- myndunum með orðum og hann sé lengi að fullvinna hverja mynd, að minnsta kosti fjórar til fimm vikur og jafnvel lengur. „Þróunarferlið er langt og í þrepum. Ég byrja með blýanti, fer svo yfir í penna, svo í liti og svo framvegis. Ég geri fjöl- mörg uppköst og smám saman verður lítið ævintýri til á myndflet- inum. Tónlistin gefur líka byr í hugmyndavænginn. Ég hlusta á alls kyns tónlist, til dæmis Bach með Víkingi Heiðari Ólafssyni og spænska gítartónlist. Ég verð að hafa róandi tónlist því þetta er svo mikil nákvæmnisvinna.“ Ólafur lokar sig af við vinnuna í vinnustofunni, en hvílir hugann með reglulegum göngutúrum í ná- grenninu, lyftingum og sundi. „Ég hef yfirleitt synt á hverjum degi og lyft tvisvar eða þrisvar í hverri viku en nú er það ekki hægt vegna ástandsins. Það finnst mér mjög slæmt,“ segir listamaðurinn og dásamar göngutúrana. „Þegar þrengir að skiptir mestu að efla andann og stæla líkamann. Allt getur gerst í ótryggum heimi. Og hvað er betra en að fylla lungun af hreinu íslensku lofti og hugann af tónum og ævintýralegum mynd- um?“ Þrátt fyrir að út- litið sé ekki bjart í skammdeginu er Ólafur bjartsýnn á framhaldið og bindur miklar von- ir við bóluefni gegn veirunni. Til stóð að halda umhverf- issýningu í haust en hún féll niður. Landbúnaðarsýn- ing og sýning um stóreldhúsið eru fyrirhugaðar að ári og sjávarútvegs- sýningin haustið 2022. „Fyrir skömmu sendi ég út sýningaráætlun fyrir næstu tvö ár- in og fjöldi fyrirtækja hefur þegar haft samband og pantað bása. Þetta veltur allt á árangri vísinda- mannanna, sem leggja nú nótt við dag við að finna bóluefnið sem virð- ist í augsýn, samkvæmt fréttum al- þjóðlegra fréttaveitna.“ Spurður hvort myndlistarsýning sé á dag- skrá svarar Ólafur að hætti stjórn- málamanns: „Það er aldrei að vita nema það bætist í sýningaflóruna hjá mér næstu 25 árin.“ Eflir andann og stælir líkamann Morgunblaðið/Árni Sæberg Í vinnustofunni Ólafur M. Jóhannesson einbeitir sér að myndlistinni.  Ólafur M. Jóhannesson hellti sér aftur út í myndlistina Covid 2020 Eitt verka Ólafs M. Jóhannessonar. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira CORBY SÓFABORÐ. Ø80 x H45 cm. 69.900 kr. NÚ 55.920 kr. GAIN HÆGINDASTÓLL. Ýmsir litir. 44.900 kr.NÚ 33.920 kr. RETINA SKEMILL.Með geymslu. Ýmsir litir. Ø60 cm. 18.900 kr. NÚ 15.120 kr. PAZ HÆGINDASTÓLL. Svart leður. 64.900 kr. NÚ 39.900 kr. 2o-25% Sparadu- af öllum sófum, sófaborðum og hægindastólum 8. október - 2. nóvember 20% 20% 20% 20% 25% 39% CLEVELAND SÓFI. Legubekkur + 2 sæti. L231 x D140 cm. Ljósgrátt áklæði. 119.900 kr.NÚ 95.920 kr. 20% afsláttur af sérpöntuðum sófum SPAraðu 23.980 Nú95.920 RICHMOND SÓFABORÐ. Eikarspónn með fiskibeinamynstri. 140x70 cm. 64.900 kr.NÚ 51.920 kr. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is mánudaga - sunnudaga 12-18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.