Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf á sviði fjármála, viðskiptafræði, verkfræði
eða aðra menntun sem nýtist í starfi. Viðkomandi þarf einnig að hafa reynslu af fjár-
og áhættustýringu og verkefnastjórnun. Þekking á fjárfestasamskiptum (IR) er kostur.
Lögð er rík áhersla á frumkvæði og sjálfstæði í starfi auk framúrskarandi samskiptahæfni.
Intellecta hefur umsjón með ráðningu. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran
(thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Fullum trúnaði er heitið og umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2020 og óskast umsókn útfyllt á www.intellecta.is.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Fjölbreytt og krefjandi starf við
fjár- og áhættustýringu bíður eftir
áhugasamri og drífandi manneskju.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Helstu verkefni
• Þátttaka í stefnumótun og verkefnastjórnun
á sviði fjárstýringar, fjármögnunar, áhættumats
og áhættustýringar.
• Ábyrgð á daglegri fjárstýringu og eftirliti með
framgangi hennar.
• Stýring fjármálalegrar áhættu og umsjón með
áhættumati fyrir fyrirtækið í heild.
• Samræming vinnulags við gerð áhættumats
og þátttaka í mati á áhættuþáttum.
• Virk þátttaka í verkefnum er lúta að fjármögnun
félagsins og framgangi lánasamninga og greiðslna.
• Tengsl við fjárfesta félagsins og aðra lánveitendur
(IR) ásamt þróun og viðhaldi samskiptaáætlana.
VILT ÞÚ LEIÐA
FJÁRSTÝRINGU?
Laust er til umsóknar starf byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar. Um er að
ræða 100% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metn-
aðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í byggingarmálum
sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Byggingarfulltrúi hefur yfirumsjón með byggingarmálum sveitar-
félagsins, þjónustar íbúa Hvalfjarðarsveitar á því sviði, er ráðgefandi
fyrir sveitarstjórn og nefndir og vinnur skv. samþykktum þeirra. Eftir-
farandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið byggingarfulltrúa
Hvalfjarðarsveitar:
• Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum sveitarfélagsins.
• Móttaka og afgreiðsla byggingarleyfisumsókna og stöðuleyfa.
• Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt staðfestingu eignaskipta-
yfirlýsinga.
• Ráðgjöf varðandi byggingarmál.
• Samskipti við hagsmunaaðila.
• Skráning og viðhald vegna Fasteignaskrár Íslands og landupplýsinga-
kerfis.
• Umsjón með lóðaúthlutunum sveitarfélagsins.
• Gerð starfs- og rekstraráætlana fyrir þá málaflokka sem undir hann
heyra.
• Önnur verkefni sem byggingarfulltrúa eru falin af yfirmanni, þá helst er
tengjast skipulagsmálum.
Byggingarfulltrúi ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu
og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða.
Almennt stjórnunarsvið:
Byggingarfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir
sem gilda um byggingar- og skipulagsmál sveitarfélaga, eftir lögum er
Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 650 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt
sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við
nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is
Byggingarfulltrúi
varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi
við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði byggingarmála sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
• Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr.160/2010.
• Æskilegt er að viðkomandi sé með réttindi í skipulagsmálum sbr. 7. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
• Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála er æskileg.
• Þekking á notkun skráningarkerfis fasteigna hjá Þjóðskrá er æskileg.
• Reynsla af notkun kerfanna One System, Navision og AutoCAT eða Microstation er kostur.
• Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana
er kostur.
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2020. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið
hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á
netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is