Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 60
Á HLÍÐARENDA Kristján Jónsson kris@mbl.is Valskonur eru úr leik í Meistara- deild Evrópu í knattspyrnu eftir mikla dramatík í fimm stiga frosti á Hlíðarenda í gær. Framlengdan leik og framlengda vítaspyrnukeppni þurfti til að skera úr um úrslit. Eftir sex umferðir í vítaspyrnukeppninni hafði Glasgow City betur og kemst áfram í 3. umferð keppninnar. Leikmenn Vals, og aðstandendur liðsins, geta borið höfuðið hátt þar sem Valur mætti ágætu liði við erf- iðar kringumstæður. Valsliðið er auðvitað ekki í leikæfingu. Íslenskt lið myndi sjaldnast vera það 18. nóvember því þá er Íslandsmótinu yfirleitt löngu lokið. Ekki hjálpar heldur til að liðið gat ekki æft um tíma en fékk þó undanþágu og hafði tíu daga til undirbúnings. Eftir að hafa fylgst með jöfnum leik liðanna í gær læðist að mér sá grunur að Valur hefði slegið Glasgow City út ef þau hefðu mæst þegar Valsliðið var í leikæfingu. Að því er hins vegar ekki spurt og árangur Glasgow City í Meist- aradeildinni á síðustu árum er svip- aður árangri íslensku liðanna. Valur var síðast með í keppninni árið 2011 og þurfti þá einnig að falla úr keppni gegn Glasgow City. Þegar nokkuð var liðið á venju- legan leiktíma í gær þótti mér ekki sérlega ósanngjarnt að Valur væri að tapa. Liðið var þá 1:0 yfir og hafði ekki skapað sér afgerandi marktækifæri. Nokkrum sinnum hafði liðið komist í góða stöðu á vell- inum en því lauk sjaldan með mark- skoti. Valsliðið varðist þó vel en meiri ró vantaði hjá leikmönnum þegar Valur fékk boltann. Ég hefði viljað sjá Val ná betri tökum á miðj- unni. Þrátt fyrir þetta náði Valur að setja kraft í leikinn síðasta kortérið og jafna. Í framhaldinu var liðið betri aðilinn á vellinum í framleng- ingunni. Að framlengingunni lokinni fannst mér Valur eiga skilið að komast áfram. Sandra Sigurðardóttir sýndi í vítaspyrnukeppninni hvað í henni býr og varði tvær vítaspyrnur. Sam- herjar hennar höfðu þá brennt af fyrstu tveimur spyrnum Vals og Sandra þurfti að laga stöðuna. Vert er að geta þess að síðari markvarsl- an var stórglæsileg og ekki fyrir hvern sem er að leika eftir. Vörslur Söndru ekki nóg Morgunblaðið/Eggert Systur Málfríður Anna Eiríksdóttir hughreystir yngri systur sína Örnu Eiríksdóttur í leikslok á Hlíðarenda.  Varði tvær spyrnur en Valur féll samt úr keppni eftir vítaspyrnukeppni  Valskonur lentu undir en unnu sig inn í leikinn þótt leikæfinguna vanti 60 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 Þjóðadeild UEFA A-deild, 2. riðill: England - Ísland....................................... 4:0 Belgía - Danmörk ..................................... 4:2 Staðan: Belgía 6 5 0 1 16:6 15 Danmörk 6 3 1 2 8:7 10 England 6 3 1 2 7:4 10 Ísland 6 0 0 6 3:17 0 A-deild, 1. riðill: Bosnía - Ítalía............................................ 0:2 Pólland - Holland ..................................... 1:2 B-deild, 1. riðill: Austurríki - Noregur ............................... 1:1 Norður-Írland - Rúmenía........................ 1:1 B-deild, 2. riðill: Tékkland - Slóvakía.................................. 2:0 Ísrael - Skotland....................................... 1:0 B-deild, 3. riðill: Ungverjaland - Tyrkland......................... 2:0 Serbía - Rússland ..................................... 5:0 B-deild, 4. riðill: Írland - Búlgaría....................................... 0:0 Wales - Finnland ...................................... 3:1 C-deild, 2. riðill: Armenía - Norður-Makedónía ................ 1:0 Georgía - Eistland .................................... 0:0 C-deild, 3. riðill: Grikkland - Slóvenía................................. 0:0 Kosovó - Moldóva ..................................... 1:0 C-deild, 4. riðill: Albanía - Hvíta-Rússland ........................ 3:2 Kasakstan - Litháen................................. 1:2 EM U21 karla Undankeppnin, 1. riðill: Armenía - Ísland.............................. Frestað Ítalía - Svíþjóð .......................................... 4:1 Lúxemborg - Írland ................................. 1:2 Staðan: Ítalía 10 8 1 1 27:5 25 Írland 10 6 1 3 15:8 19 Ísland 9 6 0 3 16:12 18 Svíþjóð 9 5 0 4 28:12 15 Armenía 8 1 0 7 4:7 3 Lúxemborg 10 1 0 9 3:29 3 Meistaradeild kvenna 2. umferð: Valur - Glasgow ....................................... 1:1  Valur er úr leik eftir 5:4-tap í vítakeppni. Anderlecht - SL Benfica ......................... 1:2  Cloé Lacasse lék allan leikinn með SL Benfica. Noregur B-deild: Lilleström - Jerv ...................................... 1:0  Tryggvi Hrafn Haraldsson lék fyrstu 88 mínúturnar fyrir Lilleström. Arnór Smára- son og Björn Bergmann Sigurðarson voru ekki í leikmannahópi liðsins.  Meistaradeild karla B-RIÐILL: Aalborg - Veszprém ............................ 27:33  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Danmörk Aarhus United - Nyköbing ................. 23:20  Thea Imani Sturludóttir skoraði 1 mark fyrir Aarhus United. Noregur Sandefjord - Drammen....................... 28:36  Óskar Ólafsson skoraði 3 mörk fyrir Drammen. Ungverjaland Pick Szeged - Eger.............................. 47:27  Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í leikmannahópi Pick Szeged.   VALUR – GLASGOW CITY 1:1 0:1 Leanne Crichton 51. 1:1 Mist Edvardsdóttir 79.  Glasgow City áfram í 32-liða úrslit eftir vítakeppni. Valur: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurðar- dóttir. Vörn: Elísa Viðarsdóttir, Arna Eiríksdóttir, Lillý Rut Hlynsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja: Mist Edvardsdóttir (Diljá Ýr Zomers 106), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Málfríður Anna Eiríksdóttir. Sókn: Hlín Eiríks- dóttir, Elín Metta Jensen, Ásdís Karen Halldórsdóttir. MM Sandra Sigurðardóttir M Arna Eiríksdóttir Lillý Rut Hlynsdóttir Elín Metta Jensen Dómari: Aleksandra Cesen, Slóveníu. Áhorfendur: Ekki leyfðir. Mohamed Salah, framherji Liver- pool í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu, fór í aðra skimun vegna kórónu- veirunnar í gærmorgun og greindist já- kvæður. Salah greindist með veiruna í heimalandi sínu Egyptalandi í síð- ustu viku þar sem hann var staddur í landsliðsverkefni. Hann missir því af toppslag Liverpool og Leicester á Anfield í úrvalsdeildinni um næstu helgi en Leicester er í efsta sæti deildarinnar með 18 stig á meðan Liverpool er með 17 stig í öðru sæt- inu. Þá er ljóst að Salah missir einn- ig af leik Liverpool og Atalanta í Meistaradeildinni á Anfield hinn 25. nóvember en þar sem hann þarf að eyða næstu tíu dögum í sóttkví. Egyptinn með kórónuveiruna Mohamed Salah í gær en hann var að leika sinn 87. landsleik. Þetta var að öllum lík- indum hans síðasti landsleikur en hann hefur verið lykilmaður í hjarta varnarinnar undanfarin ár. Íslenska liðið leikur í B-deild Þjóðadeildarinnar, tímabilið 2022- 23 eftir tvö tímabil í A-deildinni án sigurs og stiga. Kvöddu án sigurs og stiga  Íslenska karlalandsliðið leikur í B-deild Þjóðadeildar UEFA tímabilið 2022-23  Erik Hamrén stýrði sínum síðasta leik með liðið og er óvíst hver tekur við AFP Vonbrigði Markaskorarinn Phil Foden, til vinstri, glottir við tönn á meðan Birkir Bjarnason, fyrir miðju, á erfitt með að leyna vonbrigðum sínum. ENGLAND – ÍSLAND 4:0 1:0 Declan Rice 20. með skalla í fjærhornið eftir aukaspyrnu. 2:0 Mason Mount 24. með skoti af stuttu færi eftir að boltinn datt fyrir hann í teignum. 3:0 Phil Foden 80. með skoti af stuttu færi eftir undirbúning Jadon Sancho. 4:0 Phil Foden 84. með frábæru vinstrifótarskoti rétt utan teigs. M Ögmundur Kristinsson Kári Árnason Guðlaugur Victor Pálsson Rautt spjald: Birkir Már Sævars- son 54. Dómari: Fabio Verissimo, Portúgal. Áhorfendur: Engir. ÞJÓÐADEILDIN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Ófarir íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í Þjóðadeild UEFA héldu áfram þegar liðið heimsótti England á Wembley-leikvanginn í London í gær. Leiknum lauk með 4:0-sigri enska liðsins sem var með tögl og hagldir á vellinum frá fyrstu mín- útu til þeirrar síðustu. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 2:0 og ekki hjálpaði það liðinu að missa Birki Má Sævarsson af velli með sitt annað gula spjald í upphafi síðari hálfleiks. Erik Hamrén, þjálfari liðsins, var að stýra íslenska liðinu í sínum síðasta leik en hann tilkynnti það á dögunum að hann ætlaði sér að láta af störfum eftir þennan til- tekna landsleikjaglugga. Freyr Alexandersson, aðstoð- arþjálfari liðsins, fagnaði 38 ára afmæli sínu í gær. Hann mun einn- ig láta af störfum en hann verður næsti aðstoðarþjálfari Heimis Hallgrímssonar hjá Al-Arabi í Kat- ar. Kári Árnason, sem er orðinn 38 ára gamall, fór fyrir íslenska liðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.