Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 15
DAGLEGT LÍF 15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 um að auðvelda smáframleiðendum að koma vörum sínum til viðskipta- vina, sem þurfa ekki að bíða í marga daga eftir að fá þær heim til sín,“ segja þær og bæta við að viðskipta- vinir geti valið hvort þeir fá heim- sendingu eða sæki vörur í vöruhúsið í Hafnarfirði. „Við sendum um land allt og flestar vörur er hægt að panta sam- dægurs. Fólk er svo þakklátt og frá því að við byrjuðum höfum við fengið já frá öllum þeim framleiðendum sem við höfum leitað til. Þetta hefur verið dásamlegt verkefni að stofna þetta fyrirtæki, þetta er tóm gleði. Allir eru svo jákvæðir, bæði framleiðendur og viðskiptavinir, og ekki skemmir að vera vinkonur saman í þessu.“ Skiptir máli að kaupa innlent Hér á landi rétt eins og út um víða veröld er vaxandi áhugi og krafa frá fólki að fá matvöru beint frá býli og úr sem mestri nálægð við fram- leiðslustað, þannig er það líka um- hverfisvænt. „Við Íslendingar búum svo vel að því dýrmæti að vera með hreint vatn og hreint loft, og fyrir vikið er ís- lensk matvara miklu hreinni vara en sú sem er innflutt. Okkur finnst óboð- legt að þegar við verslum í íslenskum matvörubúðum þá getum við lent í því að vita ekki að við kaupum kannski danska nautalund eða þýskt kjöt, því það er ekkert endilega tekið fram hvar varan er framleidd. Þetta pirrar okkur sem neytendur. Hvers vegna ættum við að eyða gjaldeyri í að flytja inn matvöru sem við getum framleitt sjálf? Hvers vegna erum við að menga með því að fljúga með mat yfir hálfan heiminn sem við getum framleitt sjálf? Við eigum að styðja við hvert annað og umhverfið með því að kaupa matvöru sem við fram- leiðum sjálf. Við erum svo heppin að geta brauðfætt okkur sjálf, það er dýrmætt og umhugsunarvert nú á veirutímum.“ Þær segja að það hafi komið þeim á óvart hversu fínar gæða- matvörur og fjölbreyttar eru fram- leiddar á Íslandi. „Þessir smáfram- leiðendur eru miklir meistarar í okkar huga, það er hreint unaðslegt. Það er gaman hjá okkur á hverjum degi að fá nýjar, flottar, fallegar og vel gerðar vörur. Vegna Covid mun ekki vera árlegur matarmarkaður í Hörpu fyrir jólin, en við seljum tölu- vert af þeim vörum sem hafa verið til sölu þar,“ segja þær og bæta við að allir sem vilji koma sinni matvöru á framfæri hjá þeim séu velkomnir. „Við erum með opinn faðminn gagn- vart þessu yndislega fólki sem leggur á sig að framleiða íslenska matvöru.“ Þær segja að það hafi komið þeim á óvart hversu margir smá- framleiðendur hér á landi búi til osta. „Þetta eru ótrúlega góðir ostar, og fjölbreytileikinn í matvörunum kom okkur líka á óvart, allt frá hun- angi upp í fínustu nautasteikur, til- búnar súpur, gómsætur plokkfiskur og fiskbollur, frosið brauð frá Dalvík, svo fátt eitt sé nefnt. Fólk leggur sál og hjarta í þessa framleiðslu, rétt eins og þegar við sjálf eldum mat heima hjá okkur. Við fáum þessa góðu tilfinningu fyrir öllu sem kemur hingað í hús til okkar. Það er svo mik- il ást og kærleikur í þessu sem fólk er að framleiða, við erum alveg heillaðar af því. Við viljum vera í sama liði og þau. Samskiptin verða líka svo per- sónuleg, og það finnst okkur frábært. Þetta er gaman og gefandi.“ Gott og blessað Fjölbreytileiki hjá þeim er mikill, þar fæst allt frá hunangi upp í fínustu nautasteikur, tilbúnar súpur, gómsætan plokkfisk og fiskibollur, olíur, te, söl og ótalmargt fleira. Verslunin Gott og blessað er til húsa í Flatahrauni 27 í Hafnarfirði. Vefsíðan er: gottogblessad.is. mjolka.is Fylgdu okkur á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Uppskriftirnar eru sígildarog áþekkar þótt til-brigðin við þær séumörg. Í ár framleiðum við og steikjum laufabrauð í um tíu útgáfum og undir nokkrum vöru- merkjum. Fólk er fastheldið á brauð og bragð og þeim óskum þarf að mæta,“ segir Pétur Sigurbjörn Pét- ursson, framleiðslustjóri hjá Ömmu- bakstri-Gæðabakstri sem einnig rek- ur Kristjánsbakarí á Akureyri. Þar hófst laufabrauðsgerðin strax í sept- ember og stendur fram á síðustu daga fyrir jól. Í dunkum og boxum Framleiðslan er komin í versl- anir: laufabrauð í dunkum og bitar í boxum. Fleira sem minnir á jólin er raunar þegar komið í búðir, til dæmis klementínur, konfekt, kjöt ýmiss konar og fleira góðgæti. Norður í landi er laufabrauðshefðin sterk, svo sem í Þingeyjarsýslum og við Eyja- fjörð. Forðum daga voru laufa- brauðskökurnar raunar gjarnan kallaðar fátækrabrauð meðal Norð- lendinga. „Kúnstin liggur meðal annars í því hve þunnar kökurnar eru, sem fer að vísu eftir smekk hvers og eins. Einhvern tíma var sagt að væri úr svo þunnu bakað að þú gætir lesið Moggann í gegnum kökurnar væri baksturinn nánast fullkominn. Ég skal ekki segja, sitt sýnist hverjum. Svo ræður feitin eða tólgin sem kökurnar eru steiktar í alltaf nokkru um hvernig til tekst,“ segir Pétur Menning á landsvísu Menning tengd laufabrauði nær til landsins alls og í mörgum fjöl- skyldum er siður að hittast í upphafi aðventu í laufabrauðsskurði. Fyrir marga markar það upphaf jóla- undirbúnings. Margir vilja svo þegar að útskurðinum kemur hafa deigið tilbúið og kaupa því frosið deig til að spara sér tíma og fyrirhöfn. „Á síðustu árum hefur vegan- laufabrauð komið mjög sterkt inn hjá okkur. Þá er haframjólk sett í deigið í staðinn fyrir kúamjólk, sem gefur kökunum annað bragð og áferð en flestir þekkja. Neytendur spyrja mikið um vegan, vilja þannig vörur og þeim óskum er að sjálfsögðu mætt,“ segir Pétur sem ætlar að hjá Ömmubakstri og Kristjánsbakaríi verði framleidd um ein og hálf millj- ón laufabrauðskaka fyrir þessi jól. Laufabrauð sígilt fyrir jól Morgunblaðið/Eggert Framleiðsla Kúnstin liggur meðal annars í því hve þunnar kökurnar eru, segir Pétur Sigurbjörn Pétursson. Bakstur Marina Do Carmo Teixeira Antune með kökurnar. Annir eru hjá Ömmubakstri. Þar eru steiktar 1,5 milljónir af laufabrauðskökum fyrir jólin. Kúnstin liggur í þunnum kökum sem margir vilja vegan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.