Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 59
DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS Kerti 1.990,- Djásn 5.790,- Viskastykki 2.950,- Servíettur 990,- Eldspýtur 890,- NÝTT JÓLALÍNUR 2020 „Æ NEI, EKKI ENN EINN ALHEIMSFARALDURINN.” „ÞAR SEM VIÐ MUNUM FLJÚGA YFIR OPIÐ HAF MUNUM VIÐ NÚ KYNNA VIÐBRÖGÐ VIÐ HÁKARLAÁRÁSUM.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga bestu mömmu í heimi. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann REYNDAR ÞÁ ER ÞAÐ KLÚÐUR AÐ GEFA MÉR BARA EINU SINNI! ÉG SAGÐI LÚT AÐ EF VIÐ GIFTUM OKKUR ÞÁ FÆR HANN VEL ELDAÐA, LJÚFFENGA MÁLTÍÐ Á HVERJU KVÖLDI! ÉG GAF GRETTI TVISVAR Á DISKINN EN ÉG ÞARF HAFA MÖMMU ÞÍNA HÉR TIL AÐ ELDA FYRIR MIG! ÉG KLÚÐRAÐI BANK BANK BANK urinn er að stórum hluta gamlir starfsfélagar frá Fræðslumiðstöð- inni. „Síðan erum við hjónin að gera upp gamla bæinn í Framnesi í Mýr- dalnum, æskuheimili mitt, sem afi og amma byggðu 1936 og höfum gaman af því.“ Fjölskylda Eiginmaður Guðbjargar er Jó- hann Friðrik Klausen, f. 22.5. 1956, ráðgjafi hjá Advania. Foreldrar hans eru Jónatan Klausen, f. 3.2. 1927, d. 15.11. 2020, rafeindavirkja- meistari á Akureyri, og Jóna Sveinsdóttir, f. 20.4. 1930, d. 2.2. 2014, afgreiðslukona hjá Amaro á Akureyri, bjó síðar í Reykjavík, þau skildu. Börn Guðbjargar og Jóhanns eru 1) Andri, f. 10.6. 1982, arkitekt hjá ASK arkitektum, maki Breanna Nichole Gary, arkitekt hjá teikni- stofunni Tvíhorf. 2) Herdís, f. 27.10. 1989, fjármálaverkfræðingur hjá SEB í Stokkhólmi, maki er Hilmar Birgir Ólafsson, forritari hjá Spo- tify, og þau eiga Friðrik Úlf Hilm- arsson Klausen, f. 21.6. 2018. 3) Jón, f. 13. 11. 2000, nemi í lífefna- og sameindalíffræði við Háskóla Ís- lands, Reykjavík. Systkini Guðbjargar eru Einar, f. 20.2. 1959; Unnur Ása, f. 1.9. 1962, gistihússtjóri, Seli í Grímsnesi, og Kristín Rós, f. 22.4. 1964, kennari í Foldaskóla í Reykjavík. Foreldrar Guðbjargar eru Jón Einarsson, f. 7.9. 1932, d. 14.6. 1992, kennari í Skógaskóla, og Ingibjörg Ásgeirsdóttir, f. 1.5. 1938, d. 5.10. 2020, starfsmaður í Skógaskóla, Foldaskóla og síðast Laugarnes- skóla. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Vík í Mýrdal Tómas Jónsson bóndi á Saurum í Staðarsveit, síðar verkamaður íVík í Mýrdal Kristín Hólmfríður Tómasdóttir húsfreyja á Ytri-Sólheimum og Framnesi í Mýrdal Ásgeir Pálsson bóndi á Ytri-Sólheimum og Framnesi í Mýrdal Ingibjörg Ásgeirsdóttir húsfreyja, matráðskona og skólastarfsmaður í Skógum,Austur- Eyjafjallahreppi, síðar í Reykjavík Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Ytri-Sólheimum Páll Þórarinsson bóndi, síðast á Ytri-Sólheimum Guðrún Haflína Jónsdóttir húsfreyja í Keflavík Ólafur Guðbjartsson bóndi í Keflavík,V-Barð., Hænuvík og síðar í Reykjavík Guðbjörg Andrea Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Einar Jónsson bifreiðastjóri og járnsmiður á Eyrarbakka og í Reykjavík Marín Jónsdóttir húsfreyja í Hróarsholti Jón Einarsson bóndi í Egilsstaðakoti og Hróarsholti í Flóa Úr frændgarði Guðbjargar Andreu Jónsdóttur Jón Einarsson kennari í Skógaskóla, Austur-Eyjafjallahreppi Stuðlaberg er nýkomið út,skemmtilegt og vandað að venju, en ritstjóri þess er Ragnar Ingi Aðalsteinsson. Hann bað fyrr- verandi og núverandi alþingismenn að yrkja um virðingu alþingis og brugðust þeir vel við. Mér þykir þetta frumkvæði Ragnars Inga gott og samþykkti hann, að skáldskapur þessi birtist í Vísnahorni. Hér er hann tekinn upp orðrétt úr Stuðla- bergi: „Fyrstur er Sighvatur Björg- vinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, en hann sat á þingi fyrir Alþýðuflokk og síðar Samfylkingu. Hann víkur meðal annars að klæða- burði alþingismanna: Áberandi víl og vol og væl um daga langa og skólausir á skyrtubol skálma menn um ganga. Halldór Blöndal, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæð- isflokks, yrkir undir bragarhætti sem kallast úrkast: Bæði rétt og rangt er flest, ég rifist gat þar; mér virðing þingsins þótti mest þegar ég sat þar. Halla Signý Kristjánsdóttir þing- maður Framsóknarflokksins á þá næstu: Um virðingu Alþingis vont er að segja, víst að á sanngirni djarfar lítt. Tala þeir mest sem þó ættu að þegja, það er nú svo sem ekkert nýtt. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylk- ingarinnar, gerði tvær ferskeytlur: Alþingi hittist eftir frí. Eins og roði lyngsins, er fara þau að funda á ný, fölnar virðing þingsins. Við lægri óm frá orðagný, eins og berin lyngsins, endurnýjast enn á ný aftur virðing þingsins. Jón Kristjánsson fyrrverandi ráðherra og þingmaður Framsókn- arflokks sendi líka tvær vísur: Víst er þeim ekki varnað máls vígalegir koma í haust; berfættir með beran háls biðja þeir um aukið traust. Stöðugt þingsins virðing vex, hún virðist ekki farin; ýmsir fluttu allt sitt pex yfir á Klausturbarinn.“ Þar sem skáldskapur þingmanna er of yfirgripsmikill til að komast fyrir í einu Vísnahorni verður nið- urlagið að bíða morguns. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þingmenn yrkja um virðingu alþingis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.