Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
Kerti 1.990,-
Djásn 5.790,-
Viskastykki 2.950,-
Servíettur 990,-
Eldspýtur 890,-
NÝTT
JÓLALÍNUR
2020
„Æ NEI, EKKI ENN EINN
ALHEIMSFARALDURINN.”
„ÞAR SEM VIÐ MUNUM FLJÚGA YFIR OPIÐ
HAF MUNUM VIÐ NÚ KYNNA VIÐBRÖGÐ VIÐ
HÁKARLAÁRÁSUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga bestu mömmu
í heimi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
REYNDAR ÞÁ ER ÞAÐ
KLÚÐUR AÐ GEFA MÉR
BARA EINU SINNI!
ÉG SAGÐI LÚT AÐ EF VIÐ GIFTUM
OKKUR ÞÁ FÆR HANN VEL ELDAÐA,
LJÚFFENGA MÁLTÍÐ Á HVERJU
KVÖLDI!
ÉG GAF GRETTI
TVISVAR Á DISKINN
EN ÉG ÞARF HAFA MÖMMU ÞÍNA HÉR TIL AÐ ELDA FYRIR MIG!
ÉG
KLÚÐRAÐI
BANK
BANK
BANK
urinn er að stórum hluta gamlir
starfsfélagar frá Fræðslumiðstöð-
inni. „Síðan erum við hjónin að gera
upp gamla bæinn í Framnesi í Mýr-
dalnum, æskuheimili mitt, sem afi
og amma byggðu 1936 og höfum
gaman af því.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðbjargar er Jó-
hann Friðrik Klausen, f. 22.5. 1956,
ráðgjafi hjá Advania. Foreldrar
hans eru Jónatan Klausen, f. 3.2.
1927, d. 15.11. 2020, rafeindavirkja-
meistari á Akureyri, og Jóna
Sveinsdóttir, f. 20.4. 1930, d. 2.2.
2014, afgreiðslukona hjá Amaro á
Akureyri, bjó síðar í Reykjavík, þau
skildu.
Börn Guðbjargar og Jóhanns eru
1) Andri, f. 10.6. 1982, arkitekt hjá
ASK arkitektum, maki Breanna
Nichole Gary, arkitekt hjá teikni-
stofunni Tvíhorf. 2) Herdís, f. 27.10.
1989, fjármálaverkfræðingur hjá
SEB í Stokkhólmi, maki er Hilmar
Birgir Ólafsson, forritari hjá Spo-
tify, og þau eiga Friðrik Úlf Hilm-
arsson Klausen, f. 21.6. 2018. 3)
Jón, f. 13. 11. 2000, nemi í lífefna-
og sameindalíffræði við Háskóla Ís-
lands, Reykjavík.
Systkini Guðbjargar eru Einar, f.
20.2. 1959; Unnur Ása, f. 1.9. 1962,
gistihússtjóri, Seli í Grímsnesi, og
Kristín Rós, f. 22.4. 1964, kennari í
Foldaskóla í Reykjavík.
Foreldrar Guðbjargar eru Jón
Einarsson, f. 7.9. 1932, d. 14.6. 1992,
kennari í Skógaskóla, og Ingibjörg
Ásgeirsdóttir, f. 1.5. 1938, d. 5.10.
2020, starfsmaður í Skógaskóla,
Foldaskóla og síðast Laugarnes-
skóla.
Guðbjörg
Andrea
Jónsdóttir
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja í Vík í Mýrdal
Tómas Jónsson
bóndi á Saurum í Staðarsveit,
síðar verkamaður íVík í Mýrdal
Kristín Hólmfríður
Tómasdóttir
húsfreyja á Ytri-Sólheimum
og Framnesi í Mýrdal
Ásgeir Pálsson
bóndi á Ytri-Sólheimum og
Framnesi í Mýrdal
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
húsfreyja, matráðskona
og skólastarfsmaður
í Skógum,Austur-
Eyjafjallahreppi, síðar í
Reykjavík
Stefanía Sigurðardóttir
húsfreyja á Ytri-Sólheimum
Páll Þórarinsson
bóndi, síðast á Ytri-Sólheimum
Guðrún Haflína Jónsdóttir
húsfreyja í Keflavík
Ólafur Guðbjartsson
bóndi í Keflavík,V-Barð.,
Hænuvík og síðar í Reykjavík
Guðbjörg Andrea
Ólafsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Einar Jónsson
bifreiðastjóri og járnsmiður
á Eyrarbakka og í Reykjavík
Marín Jónsdóttir
húsfreyja í Hróarsholti
Jón Einarsson
bóndi í Egilsstaðakoti og
Hróarsholti í Flóa
Úr frændgarði Guðbjargar Andreu Jónsdóttur
Jón Einarsson
kennari í Skógaskóla,
Austur-Eyjafjallahreppi
Stuðlaberg er nýkomið út,skemmtilegt og vandað að
venju, en ritstjóri þess er Ragnar
Ingi Aðalsteinsson. Hann bað fyrr-
verandi og núverandi alþingismenn
að yrkja um virðingu alþingis og
brugðust þeir vel við. Mér þykir
þetta frumkvæði Ragnars Inga gott
og samþykkti hann, að skáldskapur
þessi birtist í Vísnahorni. Hér er
hann tekinn upp orðrétt úr Stuðla-
bergi:
„Fyrstur er Sighvatur Björg-
vinsson, fyrrverandi þingmaður og
ráðherra, en hann sat á þingi fyrir
Alþýðuflokk og síðar Samfylkingu.
Hann víkur meðal annars að klæða-
burði alþingismanna:
Áberandi víl og vol
og væl um daga langa
og skólausir á skyrtubol
skálma menn um ganga.
Halldór Blöndal, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra Sjálfstæð-
isflokks, yrkir undir bragarhætti
sem kallast úrkast:
Bæði rétt og rangt er flest,
ég rifist gat þar;
mér virðing þingsins þótti mest
þegar ég sat þar.
Halla Signý Kristjánsdóttir þing-
maður Framsóknarflokksins á þá
næstu:
Um virðingu Alþingis vont er að segja,
víst að á sanngirni djarfar lítt.
Tala þeir mest sem þó ættu að þegja,
það er nú svo sem ekkert nýtt.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir,
fyrrverandi þingmaður Samfylk-
ingarinnar, gerði tvær ferskeytlur:
Alþingi hittist eftir frí.
Eins og roði lyngsins,
er fara þau að funda á ný,
fölnar virðing þingsins.
Við lægri óm frá orðagný,
eins og berin lyngsins,
endurnýjast enn á ný
aftur virðing þingsins.
Jón Kristjánsson fyrrverandi
ráðherra og þingmaður Framsókn-
arflokks sendi líka tvær vísur:
Víst er þeim ekki varnað máls
vígalegir koma í haust;
berfættir með beran háls
biðja þeir um aukið traust.
Stöðugt þingsins virðing vex,
hún virðist ekki farin;
ýmsir fluttu allt sitt pex
yfir á Klausturbarinn.“
Þar sem skáldskapur þingmanna
er of yfirgripsmikill til að komast
fyrir í einu Vísnahorni verður nið-
urlagið að bíða morguns.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þingmenn yrkja
um virðingu alþingis