Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 Streita er eitthvað sem allirkannast við að hafa upplifaðog nú á tímum Covid-19 erumargir að upplifa streitu í mun meira mæli en áður. Streita er viðbragð líkamans við álagi og gegnir því hlutverki að undirbúa okkur fyrir komandi átök og getur hún því vissu- lega verið gagnleg en hún getur einn- ig orðið hamlandi. Þegar ein- staklingur upplifir streitu til lengri tíma getur það aukið líkur á bæði lík- amlegri og andlegri vanlíðan. Nú þeg- ar álag í daglegu lífi hefur aukist tölu- vert er mikilvægt að huga að því sem við getum gert til að takmarka streitu. Hér á eftir koma nokkur ráð til þess að draga úr streitu í daglegu lífi. Skipulag veitir öryggi Rútína og skipulag veita öryggi, bæði fyrir börn og fullorðna. Mik- ilvægt er að hafa í huga hvað skiptir þig máli að hafa í föstum skorðum, þetta getur verið eitthvað sem er nú þegar komið í ákveðna rútínu eða jafnvel eitthvað sem hefur verið að valda streitu og væri gagnlegt að koma rútínu á. Mörgum finnst gott að hafa til dæmis ákveðna daga fyrir heimilisþrif, matarinnkaup og hreyf- ingu. Einnig hentar oft vel að hafa ákveðinn matseðil fyrir vikuna, skipu- leggja gæðastundir með fjölskyld- unni auk þess að gæta að rútínu á svefn- og vökumynstri. Ef fólk er mikið heima fyrir skiptir höfuðmáli að fara út, til dæmis í göngutúr einu sinni á dag, í minnst 30 mínútur. Taktu frá tíma Nú sem aldrei fyrr er gríðarlega mikilvægt að gleyma ekki að hugsa vel um sjálfan sig. Taktu frá tíma á hverjum degi fyrir þig og nýttu í eitt- hvað sem veitir þér vellíðan og gerir þér gott. Hér má fara í slakandi bað, fara í göngutúr eða stunda aðra lík- amsrækt, mála, hugleiða eða jafnvel hlusta á hljóðbók. Mikilvægt er að huga að heilbrigðu mataræði og reglulegum máltíðum, fara á svipuðum tíma í háttinn og reyna að ná 7-8 klst. svefni á nóttu. Einnig getur það reynst vel fyrir marga að draga úr notkun frétta- miðla og samfélagsmiðla og reyna að lesa ekki né hlusta mikið á fréttir yfir daginn, ágætt er að miða við einn fréttatíma á dag. Vinnudagur í skýran ramma Skildu vinnuna eftir í vinnunni þeg- ar unnið er heima eins og hefur færst í vöxt. Er mikilvægt að setja vinnu- deginum skýran ramma. Sem dæmi að vakna á sama tíma, klæða sig í vinnufötin, reyna að afmarka vinnu- rýmið og taka sér matar- og kaffitíma í öðru rými, ásamt því að viðhalda ánægjulegum samskiptum við sam- starfsfólk. Mörgum hættir til að halda áfram að hugsa um vinnuna eft- ir að vinnudegi er lokið og eru þá í aukinni hættu á hamlandi streitu og neikvæðum áhrifum hennar. Mikilvægt er að reyna að finna leið- ir til að hugsa um það sem við erum þakklát fyrir og gefur lífinu gildi. Fólk vill oft ætla sér of mikið og í nú- tímasamfélagi eru kröfurnar ansi miklar. Það er hins vegar í lagi að vera ekki 100% á öllum sviðum. Drög- um úr kröfunum til sjálfra okkar og njótum líðandi stundar. Leita ráða við hamlandi streitu Streita getur dregið úr lífsgæðum. Þegar þetta ástand er orðið hamlandi er því mikilvægt að leita aðstoðar. Til dæmis er hægt að hringja og ráðfæra sig við hjúkrunarfræðing á heilsu- gæslustöð eða á Mínum síðum á heilsuvera.is til að óska eftir aðstoð um hvernig bæta megi lífið. Streitustjórnun og meiri lífsgæði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mannlíf Létt á fæti á leið yfir brúna á fallegum degi við Reykjavíkurtjörn. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Heilsuráð Hildur Ósk Gunnlaugsdóttir, sálfræð- ingur, Sigrún Skúladóttir hjúkr- unarfræðingur og Ólöf Birna Björns- dóttir fjölskyldufræðingur, Geðheilsuteymi HH suður. Gróður Litbrigði náttúrunnar eru fjölbreytt og falleg rétt eins og mannlífið. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við erum allar reynslumiklarhúsmæður með mikinnáhuga á mat og matreiðslu.Á ferðum okkar um landið höfum við oft keypt einhverja frá- bæra matvöru af smáframleiðendum, á Erpsstöðum, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum eða annars staðar, en þegar okkur langaði seinna í meira eftir að heim var komið, þá var oft torvelt að nálgast hana,“ segja þær vinkonur Anna Júlíusdóttir, Jóhanna Björnsdóttir og Sveinbjörg Jóns- dóttir sem tóku til sinna ráða og stofnuðu saman verslunina Gott og blessað í Hafnarfirði, sem og vef- verslunina gottogblessad.is. Verslun þeirra er eins konar „bændamarkað- ur á netinu sem hefur að markmiði að kynna og selja vörur íslenskra smá- framleiðenda og heimavinnsluaðila og selja sælkeravörur frá framleið- endum sem nota íslenskt hráefni,“ eins og segir á síðunni þeirra. „Þetta hefur verið hugsjón hjá okkur í mörg ár, að koma slíkum matvörum undir einn hatt, þar sem auðvelt er að nálgast þær. Við erum með búðina á stærsta markaðs- svæðinu, hér í þéttbýlinu, en okkar sérstaða er að við seljum einvörð- ungu íslenska matvöru frá mörgum framleiðendum, og við erum alltaf að bæta við okkur. Það gefur okkur mik- ið að finna hvað fólk er ánægt, við er- Fólk er svo þakklátt og allir jákvæðir Þrjár vinkonur opnuðu verslun þar sem einvörðungu er boðið upp á íslenskar matvörur smáframleiðenda. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bændamarkaður F.v. Sveinbjörg, Jóhanna og Anna. „Fólk leggur sál og hjarta í þessa framleiðslu,“ segja þær. FJÖLHÆFUR OG FRÁBÆRLEGA HOLLUR Vissir þú að möguleikar KEFIR í matargerð eru nánast endalausir? Njóttu hollustunnar sem KEFIR hefur upp á að bjóða með því nota drykkinn út á morgunkorn eða múslí, í hvers konar smúðinga, næturhafra, brauð og bakstur, jafnvel til ísgerðar. Hann er líka frábær einn og sér enda stútfullur af góðgerlum og margvíslegum nauðsynlegum bætiefnum. KEFIR - KOMDU HEILSUNNI Í JAFNVÆGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.