Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Í gær fór fram Evrópuleikur í
knattspyrnu á Íslandi. Eru það
tíðindi út af fyrir sig á tímum
heimsfaraldursins og strangra
aðgerða sóttvarnayfiralda hér-
lendis og erlendis.
Þegar ég var á leið frá Hlíð-
arenda í gær, eftir að hafa fylgst
með Valskonum falla úr keppni í
Meistaradeild Evrópu eftir fram-
lengda vítaspyrnukeppni, þá fór
ég að velta því fyrir mér hvort
knattspyrnuguðunum sé eitt-
hvað uppsigað við okkur hér á
eyjunni um þessar mundir.
Íslendingar höfðu þá tapað
þremur knattspyrnuleikjum í al-
þjóðlegum keppnum eftir drama-
tíska atburðarás á innan við viku.
Karlalandsliðið fékk á sig mörk í
uppbótartíma sem réðu úrslitum
í leikjunum í Búdapest og í Kaup-
mannahöfn. Í gamla höf-
uðstaðnum var það vítaspyrna
sem réð úrslitum. Valur tapaði
svo í Meistaradeildinni eftir
framlengda vítaspyrnukeppni.
Lukkudísirnar umtöluðu eru
í það minnsta víðs fjarri. Ef til vill
nenntu þær ekki að standa í því
að koma til landsins í gær með
þeirri sóttkví sem því fylgir.
Ég fer ekki ofan af því að miðað
við gang mála þegar leið á leik-
ina í Búdapest og í Reykjavík, þá
hefði Ísland átt skilið að komast
á EM og Valur átt skilið að fara
áfram í Meistaradeildinni.
Eftir að hafa velt þessu fyrir
mér þá rakst ég á frétt um það
að U21 árs landsliðið hafi komist
áfram í lokakeppni EM. Var það
ljóst eftir sigur Ítala á Svíum.
Tilgáta mín um meint tómlæti
knattspyrnuguðanna í okkar
garð hélt því ekki almennilega
vatni. Ekki frekar en aðrar til-
gátur mínar um hið óútskýrða í
þessu lífi.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís-
landsmeistari í golfi úr Keili, er í
29.-36. sæti eftir fyrstu tvo keppn-
isdagana á The Saudi Ladies Team
International-mótinu sem hófst í
fyrradag. Leikið er á Royal Greens-
vellinum en mótið fer fram í Sádi-
Arabíu. Guðrún Brá lék á samtals
þremur höggum undir pari vallars-
ins á fyrsta keppnisdegi en fataðist
flugið í gær og lék á fimm höggum
yfir pari. Hún er því á samtals
tveimur höggum yfir pari en Guð-
rún Brá var í þriðja sæti mótsins
eftir fyrsta keppnisdaginn.
Fataðist flugið
í Sádi-Arabíu
Sigfús Gunnar
Íslandsmeistari Guðrún Brá keppti
á öðru móti sínu í Vestur-Asíu.
Bakvörðurinn Hjörtur Logi Val-
garðsson hefur skrifað undir nýjan
samning við FH sem gildir út næstu
leiktíð. Hjörtur er uppalinn í Hafn-
arfirðinum og hefur aldrei spilað
með öðru liði hér á landi. FH-ingar
staðfestu þetta á samfélagsmiðlum
sínum í gær.
Hjörtur á alls 120 leiki í efstu
deild á Íslandi og í þeim fimm
mörk. Hann spilaði 14 leiki fyrir FH
á nýliðinu tímabili og hefur verið
mikilvægur hlekkur í liðinu frá því
að hann sneri heim úr atvinnu-
mennsku fyrir tveimur árum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
FH-ingur Hjörtur hefur gert nýjan
samning við uppeldisfélagið.
Hjörtur Logi
áfram í FH
Glódís Perla
Viggósdóttir,
landsliðskona í
knattspyrnu og
leikmaður Ros-
engård í Svíþjóð,
er tilnefnd sem
besti varnar-
maður sænsku
úrvalsdeild-
arinnar. Þetta
var tilkynnt í
gær. Glódís hefur átt frábært tíma-
bil í Svíþjóð en hún lék alla leiki
Rosengård á tímabilinu. Liðið hafn-
aði í öðru sæti deildarinnar, sjö
stigum á eftir toppliði Gautaborg-
ar. Ásamt Glódísi eru þær Josefine
Rybrink, leikmaður Kristianstad,
og Natalia Kuikka, leikmaður
Gautaborgar, einnig tilnefndar sem
varnarmenn ársins.
Þá er Elísabet Gunnarsdóttir,
þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, til-
nefnd sem besti þjálfari deildar-
innar en undir hennar stjórn endaði
liðið í þriðja sæti og leikur í Meist-
aradeild Evrópu á næstu leiktíð í
fyrsta sinn í sögu félagsins.
Elísabet var að ljúka sínu tólfta
tímabili í Svíþjóð en Maria Nilsson,
þjálfari Vaxjö, og Mats Gren og
Jörgen Ericsson, þjálfarar Svíþjóð-
armeistara Gautaborgar, eru einn-
ig tilnefndir. Elísabet var kjörinn
þjálfari ársins í sænsku úrvalsdeild-
inni tímabilið 2017 en þá hafnaði
Kristianstad í fimmta sæti deild-
arinnar.
Tilnefndar
í Svíþjóð
Glódís Perla
Viggósdóttir
U21 LANDSLIÐIÐ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Íslenska U21-árs karlalandsliðið í
knattspyrnu mun að öllum líkindum
leika í lokakeppni EM í annað sinn á
næsta ári en keppnin fer fram í Ung-
verjalandi og Slóveníu. Þessi staða
varð ljós eftir að Ítalía vann 4:1-
heimasigur á Svíþjóð í lokaumferð-
inni í gær og tryggði sér toppsætið.
Undankeppnin samanstóð af níu
riðlum, í átta þeirra voru sex lið og í
einum fimm lið. Þau níu lið sem unnu
riðla sína fara beint á EM. Þá fara
þau fimm lið sem hafa bestan árang-
ur í öðru sæti einnig áfram í loka-
keppnina og verður íslenska liðið
væntanlega eitt af þeim en þó verður
að bóka sæti okkar í lokakeppninni
með fyrirvara.
Ísland átti að mæta Armeníu á
Kýpur í lokaleiknum í gær en vegna
stríðsástandsins í Armeníu var síð-
ustu leikjum liðsins aflýst. Eins og
staðan í riðlinum er akkúrat núna,
þá situr Ítalía á toppnum með 25 stig
og Írland er í öðru sæti með 19 stig
er bæði lið hafa spilað alla tíu leikina
sína. Ísland er í þriðja sæti með 18
stig og níu leiki spilaða. Gert er ráð
fyrir því að Íslandi verði úrskurð-
aður 3:0-sigur gegn Armeníu og með
því færi liðið upp í annað sætið og
væri jafnframt eitt af þeim fimm lið-
um með bestan árangur þar. Verði
raunin þessi fer Ísland á EM.
„Það er nú þannig í fótboltanum
að gera aldrei ráð fyrir neinu, en
skilningurinn er þannig,“ sagði Eið-
ur Smári Guðjohnsen, annar þjálf-
ara U21 árs landsliðsins í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Þú mátt óska
mér til hamingju með sætið á EM og
ég segi takk með fyrirvara.“
Lærdómsríkt ferðalag
Eiður og Arnar Þór Viðarsson
tóku við þjálfun liðsins í ársbyrjun
2019. Liðið hóf svo undankeppnina
fyrir EM í september sama ár og var
verkefnið ærið, enda Ísland með
Ítalíu, Írlandi og Svíþjóð í riðli.
„Írland var fyrir neðan okkur í
styrkleikaflokki þegar það er dregið
í þennan riðil og svo reynast þeir
vera eitt sterkasta liðið. Þetta voru
fjögur lið að berjast um tvö sæti, það
sést á stigatöflunni,“ sagði Eiður
sem kveðst stoltur af árangri liðsins.
„Ef við gefum okkur það að við
hefðum unnið Armeníu í síðasta
leiknum, ég tel að við hefðum gert
það, þá erum við að vinna sjö leiki af
tíu í riðlinum. Og þetta er alveg djöf-
ullegur riðill!
„Við fengum einn skell í Svíþjóð
en lagfærum það strax, vinnum þá
heima og Íra. Það var margt lær-
dómsríkt í þessu ferðalagi.“
Vonir Íslands um að komast í
lokakeppnina urðu fyrir smá áfalli
þegar liðið tapaði 2:1-gegn Ítalíu í
Fossvoginum í síðustu viku þar sem
gestirnir skoruðu sigurmarkið í blá-
lokin. Leikmennirnir sýndu hins
vegar gríðarlegan karakter nokkr-
um dögum síðar og unnu Írland í
Dublin, 2:1, til að halda draumnum
lifandi en Valdimar Þór Ingimund-
arson skoraði sigurmark leiksins í
uppbótartíma.
„Þetta er ótrúlegur hópur og það
hefur verið frábært andrúmsloft hjá
okkur. Við þjálfararnir getum sýnt
leikmönnunum nokkrar færslur og
pælingar en svo er það undir okkur
öllum komið að búa til stemninguna
og taka á því jákvæða og neikvæða
sem ein heild.
„Ef við horfum á liðið í síðustu
leikjum, það var svo lítið sem þurfti
að lagfæra. Ég myndi segja að við
höfum bara ekki átt skilið að tapa
gegn Ítölum í síðustu viku eins og sá
leikur spilaðist. Og það sýnir
kannski hvert við erum komnir,
þetta er Ítalía, ein af stórþjóðum
heimsins í íþróttinni,“ sagði Eiður
sem vildi ekki spá of mikið í spilin
varðandi lokakeppnina. Ísland hefur
einu sinni áður leikið á lokakeppni
EM en það var í Danmörku árið
2011. Þá komst liðið ekki áfram úr
riðlinum sínum.
Bestu þjóðir Evrópu
Eins og fyrr segir fer hún fram í
Ungverjalandi og Slóveníu en henni
er skipt í tvennt. Riðlakeppnin verð-
ur spiluð 24.-31. mars. þar sem 16 lið
skipta fjóra riðla. Fjórðungsúrslitin
hefjast svo ekki fyrr en 31. maí og
lýkur keppninni með úrslitaleik 6.
júní.
„Ég er bara himinlifandi að þessi
keppni fari fram, að hún verði ekki
strokuð út vegna ástandsins í heim-
inum. Mér líst ágætlega á þetta fyr-
irkomulag, við nýtum lands-
leikjaglugga til að spila. Þetta er
ekkert minna spennandi og ekkert
minna afrek að komast í keppnina,
þótt henni sé skipt í tvennt.
Í þessari lokakeppni eru 16 bestu
þjóðir Evrópu og hver einasti leikur
verður erfiður, það er sama hvar og
hvenær.“
Þá vill hann ekki staðfesta að
hann muni hætta með landsliðið eftir
lokakeppnina en Eiður verður einn
aðalþjálfari FH á Íslandsmótinu
næstu tvö árin. „Það er allt of
snemmt að ræða það. Við leyfum
þessari keppni að ljúka og núna vit-
um við, nánast, að við erum að fara á
EM,“ sagði Eiður Smári við Morg-
unblaðið.
Ísland nær öruggt á EM
Ísland fer væntanlega í lokakeppnina í Ungverjalandi og Slóveníu á næsta ári
Eiður Smári er stoltur af liðinu sem stóð sig vel í gríðarlega erfiðum riðli
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Lokakeppnin Willum Þór Willumsson fagnar marki Íslands gegn Ítalíu á Víkingsvelli í síðustu viku. Allar líkur eru á því landsliðið sé að fara á EM.