Morgunblaðið - 20.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2020
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ
Heimssýn, hreyfing sjálfstæðis-sinna í Evrópumálum, hefur
sent Alþingi umsögn um frumvarp
Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur,
þingmanns Pírata, og nokkurra
annarra þing-
manna, um nýja
stjórnarskrá.
Um frumvarpið
segir Heimssýn
meðal annars:
„Frumvarp það
sem hér er lagt
fram inniheldur ákvæði um fram-
sal ríkisvalds til erlendra aðila. Er
þá einkum vísað til 113. greinar
frumvarpsins, en hún er afar vond
og skorum við á Alþingi að sam-
þykkja þá grein ekki óbreytta.
Ljóst er að 113. grein miðarfyrst og fremst að því að auð-
velda inngöngu Íslands í Evrópu-
sambandið, annaðhvort með bein-
um hætti eða með valdaframsali í
smáum skömmtum í gegnum
EES-samninginn. Hvort tveggja
er ekki aðeins varasamt, heldur
óásættanlegt. Rök fyrir nauðsyn
þess að setja í stjórnarskrá rúmar
heimildir til að framselja vald úr
landi eru að mestu óljós. Að því
leyti sem þau eru ljós, og vísa í
samninga við erlenda aðila, verð-
ur ekki á þau fallist. Stangist
samningur á borð við EES-
samninginn á við núgildandi
stjórnarskrá er rétt að leysa það
með því að taka viðkomandi samn-
ing til endurskoðunar eða segja
honum upp, ekki að opna stjórnar-
skrá fyrir valdaframsali sem
óljóst er hvert leiðir og getur
valdið miklu tjóni.“
EES-samningurinn hefði ekkiverið samþykktur á sínum
tíma ef hann hefði kallað á breyt-
ingar á stjórnarskrá. Ríkisstjórn
og Alþingi verða hins vegar að
taka sig á og beita ákvæðum
samningsins til að verja hagsmuni
Íslands og tryggja áframhaldandi
stuðning við hann.
Stjórnarskrá um
inngöngu í ESB?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samninganefndir Vestmannaeyjabæjar og Vega-
gerðarinnar vinna enn að gerð samnings um
rekstur Herjólfs, á grundvelli ramma sem aðilar
hafa orðið ásáttir um. Þegar er orðið ljóst að Vest-
mannaeyjabær mun reka ferjuna næstu þrjú árin
og ferðatíðni verður óbreytt.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyj-
um, segir að vonast sé til að samningsgerðinni
ljúki á næstu dögum. Gert sé ráð fyrir samningi til
ársins 2023.
Starfshópur var skipaður að ósk Vegagerðar-
innar til að ræða kröfur Herjólfs ohf. um viðbótar-
greiðslur frá ríkinu vegna meiri mönnunar skips-
ins en gert var ráð fyrir í samningi.
Öllum starfsmönnum Herjólfs ohf. var sagt upp
störfum vegna endurskipulagningar rekstursins
og taka uppsagnir gildi um næstu mánaðamót.
Þegar fullbúinn samningur liggur fyrir verður
hann lagður fyrir bæjarstjórn og samgönguráðu-
neytið til staðfestingar. helgi@mbl.is
Eyjamenn reka Herjólf til 2023
Samningamenn Vegagerðarinnar og Vestmanna-
eyjabæjar eru að ganga frá samningi um ferjuna
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Ferja Herjólfur siglir í brælu frá Eyjum.
Öll sýni sem Matvælastofnun tók á
minkabúum landsins vegna kórónu-
veirusmits reyndust neikvæð. At-
vinnuvegaráðuneytið hefur fyrir-
skipað hertar sóttvarnir á búunum.
Ráðist var í skimum aliminka hér
vegna þess að stökkbreytt afbrigði
kórónuveirunnar kom upp í minkum
og starfsfólki minkabúa í Danmörku.
Var fyrirskipaður niðurskurðar allra
minka þar í kjölfarið.
Hér á landi eru níu minkabú og
voru tekin sýni úr dýrum á þeim öll-
um. Niðurstöður Tilraunastöðvar Há-
skóla Íslands í meinafræði á Keldum
sýndu að þau voru öll neikvæð.
Matvælastofnun hefur gert áætlun
um reglubundnar sýnatökur í vetur á
öllum búunum. Einnig verða allir
starfsmenn minkabúa skimaðir.
Atvinnuvega-
ráðuneytið hefur
fyrirskipað hertar
sóttvarnaaðgerðir
á minkabúum, að
tillögu Mast.
Markmið þeirra
er að verja minka
fyrir smiti. Hertar
eru kröfur um
persónulegar
sóttvarnir starfs-
manna, flutningur
lifandi minka verður óheimill og
ónauðsynlegar heimsóknir í minka-
hús bannaðar. Einnig verður sýning-
arhald með minka bannað og því
verða minkarnir í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Reykjavík ekki til
sýnis. helgi@mbl.is
Kórónuveira ekki
á minkabúunum
Fyrirskipaðar hertar sóttvarnir
Nú er unnið að
pelsun á minka-
búum landsins.
Ranglega var sagt í blaðinu í gær í
umfjöllun um Laugaveginn að kráin
Ræktin væri ekki starfandi. Hún er í
rekstri við hliðina á Laugavegi 74. Í
því rými mun myndlistarmaðurinn
Birgir Breiðdal opna sýningu um
aðra helgi, eins og boðað er á plaköt-
um utan á rýminu. Þar sem Reykja-
vik Foto var áður við Laugaveg 51
var sl. miðvikudag opnað Munasafn
Reykjavíkur, þar sem hægt er að fá
lánuð verkfæri o.fl. gegn vægu fé-
lagsgjaldi, safn byggt á hugmyndum
um deilihagkerfið.
LEIÐRÉTT
Starfsemi við Laugaveg 51 og 74