Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla Ljóst er að áhrifa verkfallsins mun gæta næstu vikur og mánuði.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Náist ekki samkomulag í kjaradeilu
flugvirkja Landhelgisgæslunnar
mun ekkert loftfar Gæslunnar verða
til taks eftir 14. desember. Fram að
því verður viðbragðsgetan einnig
mjög skert því einungis ein þyrla
verður tiltæk og mikil óvissa mun
ríkja um lofthæfi hennar.
Þetta kemur fram í svari Ásgeirs
Erlendssonar, upplýsingafulltrúa
Gæslunnar, við skriflegri fyrirspurn
Morgunblaðsins um verkfall flug-
virkja sem staðið hefur yfir frá 5.
nóvember. Bendir hann á að eftir því
sem verkfall dragist á langinn taki
lengri tíma að byggja upp viðbragðs-
getu að nýju.
Jafnvel þótt verkfallinu lyki í þess-
ari viku yrðu tvær þyrlur tiltækar í
aðeins tíu daga í desember. Ljóst er
því að áhrifa verkfallsins muni gæta
næstu vikur og mánuði.
Ráðherrar VG andsnúnir
Heimildir Morgunblaðsins herma
að í innanríkisráðuneytinu sé tilbúið
frumvarp til laga gegn verkfalli flug-
virkja. Þá herma heimildir blaðsins
einnig að óeining ríki innan ríkis-
stjórnarinnar um hvort leggja eigi
fram frumvarpið. Ráðherrar Vinstri
grænna hafi lýst sig andsnúna frum-
varpinu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra segir í samtali
við Morgunblaðið að frumvarp um
lög á verkfallið hafi ekki verið lagt
fyrir ríkisstjórnina þegar málið var
rætt á fundi hennar á þriðjudags-
morgun.
„Ég lagði fram þá valkosti sem eru
í stöðunni og einn af þeim er að setja
lög á verkfallið. Allir valkostirnir
voru ræddir ítarlega á ríkisstjórnar-
fundinum eins og ég greindi frá eftir
hann,“ sagði Áslaug við Morgunblað-
ið í gærkvöldi.
Leggi sig alla fram
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segir að hún hafi ekkert frum-
varp séð og bætir við að hún leggi
áherslu á að „vegna eðlis þessara
starfa leggi samningsaðilar sig alla
fram við að komast að samkomu-
lagi“.
Fundi deiluaðila hjá ríkissátta-
semjara lauk án árangurs síðdegis í
gær. Komið verður saman að nýju til
fundar klukkan níu árdegis í dag.
Án þyrlu eftir 14. desember
Skiptar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar um hvort setja eigi lög á verkfall flugvirkja Semjist ekki
fyrir 14. desember verður ekkert loftfar LHG tiltækt þar eftir Frumvarp tilbúið innan ráðuneytis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gengið til fundar Ekki náðist samkomulag á fundi ríkissáttasemjara í gær.
l jóli
JÓLAMATUR, GJAFIR OG
JÓLAHEFÐIR Í 128 SÍÐNA SÉRBLAÐI
JÓLABLAÐIÐ
F I M M T U D A G U R 2 6. N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 279. tölublað 108. árgangur
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
endurskoðað áætlanir fyrir næsta
ferðasumar í tilefni af árangri við
þróun bóluefna gegn veirunni.
Spá samtökin nú bata frá og með
öðrum ársfjórðungi á komandi ári.
Samkvæmt spánni fara erlendir
ferðamenn að koma til landsins í
apríl þegar ferðalög hefjast á ný.
Gangi spáin eftir mun ferðamönn-
um fjölga eftir því sem líður á næsta
ár. Þeir verði þannig orðnir um 100
þúsund í desember árið 2021, eða um
80% af fjöldanum í desember 2019.
780 þúsund ferðamenn
Vilborg Helga Júlíusdóttir, hag-
fræðingur SAF, áætlar í spánni að
hingað komi 780 þúsund erlendir
ferðamenn á næsta ári, borið saman
við tæplega tvær milljónir árið 2019.
Áformað er að hefja bólusetningu
vestanhafs innan þriggja vikna.
Kristófer Oliversson, formaður
Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu
(FHG), segir áhugann á Íslands-
ferðum hafa aukist markvert eftir að
greint var frá árangri við þróun
bóluefna gegn kórónuveirunni. Nú
séu bókanir fyrir næsta sumar 20-
30% af því sem gerist í eðlilegu ár-
ferði á þessum tíma ársins.
Greint verði frá tilslökunum
„Það er greinilega aukin bjartsýni
en við köllum alltaf á aukinn
fyrirsjáanleika,“ segir Kristófer sem
segir það mundu muna miklu ef
stjórnvöld gæfu út dagsetningu um
hvenær slakað verður á sóttvörnum í
tilefni af bættum horfum.
„Við gætum verið að selja meira
þessa dagana ef við gætum lofað
dagsetningum,“ segir Kristófer.
Myndi skapa hundruð starfa
Fyrirtækið Airport Associates
þjónustar mörg af þeim flugfélögum
sem fljúga til Keflavíkurflugvallar.
Það hafði mest 700 starfsmenn 2018.
Sigþór Kristinn Skúlason, for-
stjóri félagsins, segir umsvifin ráð-
ast af áætlunum flugfélaganna sem
það þjónustar. Tíðindin af bóluefn-
um gefi tilefni til bjartsýni.
„Ég er til dæmis ekki sammála
greiningu Seðlabankans um ferða-
sumarið 2021. Ég held að með út-
breiddri bólusetningu fyrir næsta
sumar verði mun meiri áhugi á Ís-
landi en Seðlabankinn spáir,“ segir
Sigþór Kristinn sem áætlar að félag-
ið kunni að ráða 150-400 starfsmenn
á næsta ári en um 100 manns starfa
nú hjá félaginu sem óx með vexti
ferðaþjónustunnar.
Ferðamennirnir
snúa aftur í apríl
SAF spá fjölgun ferðamanna í kjölfar tíðinda af bóluefnum
Spá um fjölda
ferðamanna 2021*
Sem hlutfall af fjölda árið 2019
90%
60%
30%
0%
apríl júní ágúst okt.
10%
80%
50%
Heimild: SAF
* Fjöldi erlendra ferða-
manna um Keflavík
MSpá fjölgun með vorinu » 16
„Það verða nánast engin jólaböll
hjá fyrirtækjum. Það er því hart í
ári en við erum að reyna að halda
gleðileg jól og finna leiðir fyrir þá
sem vilja gera eitthvað,“ segir
Andrea Ösp Karlsdóttir hjá Jóla-
sveinar.is. Fyrirtækið sér um að fá
jólasveina til að koma til byggða og
skemmta börnum og fullorðnum.
Vegna kórónuveirufaraldursins
og samkomutakmarkana má gera
ráð fyrir að lítið verði um hefð-
bundnar jólaskemmtanir þetta árið.
Andrea segir að dæmi séu um að
fyrirtæki bjóði upp á bingó, pipar-
kökubakstur eða föndurstund í
gegnum netið í stað jólaballa. Þá
verði einhverjar jólaskemmtanir
utandyra. Jólasveinarnir munu þó
heimsækja Þjóðminjasafn Íslands
venju samkvæmt í ár. »6
Hart í ári
hjá jóla-
sveinum
Morgunblaðið/Eggert
Jólaball Óvissa á tímum Covid-19.
Leigjendur eru í auknum mæli að
kaupa eigið húsnæði. Skýr merki
eru um að leigjendum sé að fækka.
Leiguverð hefur þó lækkað og auk-
ið framboð er á leiguhúsnæði en
hlutfall leigufjárhæðar af ráðstöf-
unartekjum leigjenda hefur hækk-
að. Ungt fólk býr í stórauknum
mæli í foreldrahúsum frá því að
kórónuveirufaraldurinn hófst, sam-
kvæmt nýrri skýrslu Húsnæðis- og
mannvirkjastofnunar. »4
Færri leigja og fleiri
flytja í foreldrahús
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2