Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020 Tilþrif Klambratúnið er vinsælt til útivistar, þar sem hægt er að stunda ýmsar íþróttir og leiki. Bumbubolti svonefndur er þar á meðal, þegar miðaldra og eldri leikmenn elta tuðruna. Kristinn Magnússon Við höfum náð árangri í kjarasamn- ingum síðustu ár – ár- angri sem stefnt var að, það er að hækka lægstu laun á vinnu- markaði, hífa upp taxt- ana og einbeita okkur að þeim sem fá bara laun samkvæmt töxt- um og eiga litla mögu- leika á að auka tekjur sínar. Þetta eru mikilvægir sigrar í þágu réttlætis og jöfnuðar og það birtist að hluta til í margumræddri launavísitölu fyrir októbermánuð. Gögn Hagstofu um launaþróun sýna að launaskrið hefur ekki orðið á al- menna vinnumarkaðnum heldur hefur kaupmáttaraukning ratað þangað sem að var stefnt, til þeirra lægst launuðu. Fleiri kraftar en beinar launa- hækkanir hafa áhrif á vísitöluna: Stytting vinnutímans ýkir lokanið- urstöðuna, en atvinnurekendur og launafólk hafa verið sammála um að styttingin fæli ekki í sér beina hækkun launakostnaðar heldur skil- aði sér í minni veikindum og meiri framleiðni. Þá hafa afturvirkir samningar áhrif á launavísitölu en þeir eru afturvirkir vegna þess hversu lengi dróst að ganga frá samningum og fær fólk þá greiddar uppbætur í formi eingreiðslu. Að lokum má minna á að stóraukið álag á margar stéttir skilar sér eðlilega inn í aukið vaktaálag vegna meiri vinnu á kóvid-álagstímum og aukn- ar álagsgreiðslur hækka launa- vísitölu. Að sjóða þessa hækkun launa- vísitölunnar niður í fyrirsagnir um stóraukið launaskrið eða ofalið launafólk er villandi og rangt. Tíma- punkturinn er samt ekki tilviljun. Samtök atvinnurekenda eru að hefja sama söng og í kringum end- urskoðun lífskjarasamninganna sem fór fram síðasta haust, það er að launakostnaður sé sérstaklega íþyngjandi á Íslandi og að umsamd- ar launahækkanir muni ríða at- vinnurekendum að fullu. Samhliða er því haldið fram að laun á Íslandi séu miklu hærri en annars staðar og það komi niður á „samkeppn- ishæfni“ Íslands. Þetta er einhvers konar veiðiferð sem hófst á hót- unum um að hlaupa frá samningum sem SA höfðu þó sjálf undirritað og mun á endanum sennilega beinast að stjórnvöldum og þau vera krafin um enn frekari ívilnanir fyrir atvinnurekendur algerlega óháð stöðu þeirra og hvernig vandi þeirra er tilkom- inn. Atvinnuleysið sem íslenskt samfélag stendur nú frammi fyr- ir er fyrst og fremst tilkomið vegna hruns ferðaþjónustunnar og fjölda stöðugilda þar, en ekki vegna umsaminna launahækkana. Þarna kemur til kraftur sem ekkert okkar fær ráðið og er varla á ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar – Co- vid-19. Kreppan af völdum veirunnar hefur lagst með afar mismunandi hætti á atvinnugreinar og land- svæði. Sums staðar hefur veltan aukist en annars staðar hrunið. Það er áhyggjuefni ef Samtök atvinnu- lífsins ætla aftur að grafa undan friði og fyrirsjáanleika á vinnu- markaði með áróðri gegn kjara- samningum og réttindum launa- fólks. Það er gert í nafni hugmyndafræði sem opinberast í orðum forstöðumanns efnahags- sviðs SA á síðum Morgunblaðsins í gær þar sem hún amast yfir mikilli þátttöku fólks í stéttarfélögum hér á landi. Það er svo sem gömul saga og ný að samtakamáttur launafólks sé forystu atvinnurekenda þyrnir í augum, en þeirri skoðun deila ekki endilega atvinnurekendur um landið þvert og endilangt sem njóta þess fyrirsjáanleika sem fæst með lengri kjarasamningum. Enn fremur hefur öflug verkalýðshreyfing átt ríkan þátt í að byggja upp þau lífsgæði sem Ísland þó státar af, samhliða aukinni verðmætasköpun. Vilji for- ysta SA hverfa af þeirri braut er ágætt að það sé sagt berum orðum. En í þeirri afstöðu er forystan ein- angruð í íslensku samfélagi. Eftir Drífu Snædal » Að sjóða þessa hækkun launa- vísitölunnar niður í fyr- irsagnir um stóraukið launaskrið eða ofalið launafólk er villandi og rangt. Drífa Snædal Höfundur er forseti ASÍ. Launavísitalan og lífið Margt hefur áunnist frá þeim tíma sem Norðurlandaráð var stofnað árið 1952 til að bæta samvinnu og samstarf landanna. Sama ár og Norð- urlandaráð var stofnað var tekið upp vega- bréfafrelsi á ferðum innan Norðurlandanna og tveimur árum síðar gekk sameig- inlegur vinnumarkaður Norðurlanda í gildi með frjálsri för launafólks sem varð undanfari innri markaðar Evr- ópusambandsins. Árið 1955 tók Norðurlandasamn- ingurinn um félagslegt öryggi gildi. Þá höfðu farið fram viðræður um tolla- og efnahagsbandalag milli Norðurlandanna og Evrópuríkjanna en í júlí árið 1959 ákváðu stjórnvöld landanna að taka þau áform af nor- rænni dagskrá. Tíu dögum síðar náðu Danmörk, Noregur og Svíþjóð saman um Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) en Finnland gerðist auka- aðili árið 1961. Ekki leið á löngu þar til Danir og Norðmenn sóttu um aðild að EBE, Efnahagsbandalagi Evrópu. Staðan innan EFTA breyttist og við- leitni norrænna landa til að gerast að- ilar að EBE ýtti undir fastan sátt- mála um norrænt samstarf. Úr varð að „Norræna stjórnarskráin“ var samþykkt í Helsinki hinn 23. mars ár- ið 1962, svonefndur Helsingfor- ssamningur. Þar var því slegið föstu að Norðurlandaráð skyldi fá tækifæri til að tjá sig um mikilsverð efni nor- rænnar samvinnu. Grænlendingar verða aðilar að ráðinu Árið 1958 var umfangsmeiru nor- rænu vegabréfasambandi komið á sem var undanfari Schengen- samstarfsins sem við þekkjum í dag. Þá varð mun auðveldara fyrir Norð- urlandabúa að ferðast til nágranna- landanna. Árið 1962 var norræni lýð- heilsuháskólinn vígður í Gautaborg og fjórum árum síðar var samningur um norræna menningarsjóðinn und- irritaður en sjóðnum var einkum ætl- að að styrkja menningarverkefni með þátttöku eigi færri en þriggja nor- rænna landa. Í ágúst árið 1968 var Norræna húsið í Reykjavík vígt en finnski arkitektinn Alvar Aalto teikn- aði það. Tveimur árum síðar sam- þykkti Norðurlandaráð að fulltrúar Álandseyja og Færeyja gætu tekið þátt í störfum ráðsins í gegnum landsdeildir Danmerkur og Finn- lands. Árið 1984 urðu fulltrúar Græn- lands einnig aðilar að ráðinu í gegn- um landsdeild danska ríkjasambandsins. Hindranir á landamærum Það er áhugavert að líta til baka rúm 60 ár aftur í tímann þegar und- anfara Schengen-samstarfsins var komið á en Norðurlandaráð hefur einmitt á formennskuárinu nú í ár bent á að margar nýjar hindranir hafa komið upp á landamærum nor- rænu ríkjanna í tengslum við kór- ónuveirufaraldurinn. Þetta hefur valdið venjulegu fólki og fyrirtækjum miklum vandræðum. Norð- urlandaráð telur betra að komið sé í veg fyrir slíkar hindranir og að erf- iðleikar komi upp með sameig- inlegum fyrirbyggjandi aðgerðum. Norræna ráðherranefndin og Norð- urlandaráð hafa unnið mikið starf á síðustu árum að því að draga úr stjórnsýsluhindrunum á landamær- um ríkjanna en sérstakt stjórnsýslu- hindranaráð er að störfum fyrir Nor- rænu ráðherranefndina og stjórnsýsluhindranahópur á vegum Norðurlandaráðs. Áhersla á umhverfismál Í lok sjötta áratugar síðustu aldar hófu stjórnvöld ríkjanna skuldbind- andi samstarf með stofnun Norrænu ráðherranefndarinnar en á þeim tíma hafði ráðið opnað skrifstofu í Stokk- hólmi. Stofnun Norræna fjárfestinga- bankans gaf tilefni til fyrsta aukaþings Norðurlandaráðs sem haldið var í nóv- ember árið 1975 en aðalbækistöðvar hans voru staðsettar í Helsinki í Finn- landi. Í kjölfar hins alvarlega kjarn- orkuslyss sem varð í Tsjernobyl í Norður-Úkraínu árið 1986 hélt Norð- urlandaráð tvær stórar ráðstefnur um umhverfismál þar sem umræðuefnin voru mengun andrúmsloftsins ásamt lífríki sjávar. Allt frá þessum tíma hef- ur verið lögð mikil áhersla á umhverf- ismál í norrænu samstarfi. Múrinn fellur Árið 1990, áður en Sovétríkin liðu undir lok og Eystrasaltsríkin end- urheimtu sjálfstæði sitt, höfðu verið tekin upp samskipti við stjórnmálafólk í baltnesku löndunum. Fulltrúar Eystrasaltsríkjanna sóttu þing Norð- urlandaráðs í Kaupmannahöfn í lok febrúar árið 1991 en mánuði áður hafði dregið til tíðinda í Vilníus og Riga. Þegar löndin endurheimtu sjálf- stæði sitt hófst náið samstarf Norð- urlandaráðs við ný systrasamtök, Eystrasaltsríkjaráðið. Smám saman jókst einnig samstarf við rússneska þingmenn. Árið 1996 flutti skrifstofa Norðurlandaráðs frá Stokkhólmi til Kaupmannahafnar undir sama þak og skrifstofa Norrænu ráðherranefnd- arinnar. Samstarfið er enn að þróast og Norðurlandaráð hefur myndað tengsl við þingmenn í ýmsum öðrum löndum utan Norðurlandanna. Árið 2007 voru tekin upp samskipti við stjórnarandstöðu og stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi. Grunngildi nor- rænna samfélaga eru mannréttindi, lýðræði og réttarríkið. Það er mik- ilvægt að Norðurlöndin haldi þessum gildum á lofti, ekki síst nú á tímum þar sem öfgahyggja fer vaxandi og sótt er að réttarríkinu og lýðræðinu. Norð- urlöndin eiga að taka sér meira pláss í alþjóðasamfélaginu því þar eigum við erindi. Mikilvægi norræns samstarfs fyrr og nú Eftir Eftir Silju Dögg Gunnars- dóttur og Oddnýju Harðardóttur »Margt hefur áunnist frá þeim tíma sem Norðurlandaráð var stofnað árið 1952 til að bæta samvinnu og sam- starf landanna. Oddný Harðardóttir Höfundar eru forseti og varaforseti Norðurlandaráðs. Silja Dögg Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.