Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 12
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kennarar við Langholts-skóla í Reykjavík erumeð tilraunaverkefni ígangi í þeim tilgangi að
stuðla að betri andlegri og lík-
amlegri heilsu nemenda með því að
bjóða upp á aukna möguleika á
hreyfingu, útiveru, slökun og núvit-
und. „Stjórnendur skólans eru mjög
sveigjanlegir og gefa kennurum
frelsi til að skapa og með breyttu
fyrirkomulagi höfum við aukið fjöl-
breytileikann í námsumhverfi nem-
enda, að þeir hafi meira val í sam-
bandi við hreyfingu,“ segir Gunnar
Jarl Jónsson, einn umsjónarkenn-
ara 6. bekkjar. Hinir eru Ingvi
Sveinsson, Þóra Þorsteinsdóttir og
Þórunn Ósk Sigbjörnsdóttir.
Hlaupabretti og þrekhjól
Í Langholtsskóla eru fjórir 6.
bekkir. Nemendur fá tvo tíma í leik-
fimi vikulega. Íþróttakennslan fer
fram í litlu íþróttahúsi við skólann
og í íþróttahúsi TBR. Viðbótin felst
í því að kennslustofu Gunnars hefur
verið breytt úr hefðbundinni stofu í
óhefðbundna. Búið er að koma þar
fyrir ýmsum áhöldum með stuðn-
ingi frá Sportvörum í Kópavogi,
eins og til dæmis skíðavél, hlaupa-
bretti, þrekhjóli, rimlum, fimleika-
hringjum, kassa til að stíga eða
hoppa upp á og niður, jógabolta,
dýnum og teygjum. Auk þess var í
haust bætt við útihreyfingu þrisvar
í viku þá daga sem leikfimin er ekki.
Þá ganga nemendur eða hlaupa eina
mílu, um 1,6 km, í nágrenni við skól-
ann. Þriðja nýbreytnin er æfing
dagsins, sem allir geta gert, burtséð
frá því í hvaða stofu þeir eru.
„Fimleikahringirnir eru mjög
vinsælir sem og hlaupabrettið,“ seg-
ir Gunnar Jarl og bætir við að
væntanlegur boxpúði eigi örugglega
eftir að njóta mikilla vinsælda.
Eykur vonandi virknina
„Allt þetta eykur vonandi
virknina,“ segir Gunnar. „Í stað
endalausrar kyrrsetu í 40 mínútur
hafa nemendur val um að standa
upp og hreyfa sig þegar þeir vilja.“
Hann segist hafa viðrað hug-
mynd samkennara sinna við eig-
endur Sportvara í júní og þeir hafi
brugðist vel við, útvegað tækin og
aðstoðað við að koma þeim fyrir.
„Við hefðum aldrei getað þetta án
stuðningsins því þetta eru dýr tæki
og tól, algjörlega frábærir menn.“
Kórónuveirufaraldurinn hefur
haft áhrif. Gunnar Jarl segir að
skipta hafi þurft um stofu á tímabili
vegna fjarlægðartakmarkana og
tækin tekin úr notkun vegna smit-
hættu. Annars leggur hann áherslu
á að verkefnið hafi gengið vel og all-
ir bíði spenntir eftir að það fari að
rofa til. „Við erum með spritt og
efni til að þrífa græjurnar á milli
notkunar,“ áréttar hann.
Gunnar leggur áherslu á að
hreyfingin í óhefðbundnu stofunni
sé alveg frjáls, nemendur ákveði
hvort og hvenær þeir standi upp og
hreyfi sig.
„Auðvitað fer þetta eftir því
hvað við erum að gera hverju sinni.
Þegar þörf er á fullri athygli allra
standa menn ekki upp og fara að
hreyfa sig, en þegar einstaklings-
bundin vinna er í gangi ræður hver
og einn hvernig hann vill nota tím-
ann sem best. Við höfum til dæmis
farið í slökun fyrst á morgnana og
þá koma dýnurnar sér vel.“
Hann bætir við að 22 nem-
endur séu í bekknum og um þriðj-
ungur geti verið í æfingum á sama
tíma.
Verkefnið hófst í upphafi skóla-
ársins og verður staðan metin í vor.
„Nýbreytnin hefur mælst mjög vel
fyrir hjá nemendum og við höfum
rætt við forsvarsmenn Háskólans í
Reykjavík um að hún gæti verið
grunnur að áhugaverðri rannsókn,
að bera þetta saman við hefðbundið
kennsluform, og hafa þeir tekið vel í
það,“ segir Gunnar.
Frjáls hreyfing
í stað kyrrsetu
í skólanum
Heilsa Átakið í Langholtsskóla á eflaust eftir að smita út frá sér í fleiri skóla, en árangur þess
verður metinn í lok skólaársins. Árangurinn til þessa lofar mjög góðu, segja kennararnir.
Hreyfing Krakkarnir í Langholtsskóla kunna vel að meta tækin og það er gaman að sjá umhverfið á hvolfi.
Gildi hreyfingar verður seint ofmetið og miklu skiptir
að hún sé hluti daglegs lífs frá vöggu til grafar.
Æfingatæki í kennslustofu í Langholtsskóla í Reykja-
vík koma til móts við þarfir krakkanna.
Fyrir alla Mikilvægi reglubundinnar hreyfingar er mikið og það vita krakkarnir í 6. bekk í
Langholtsskóla. Áhugi þeirra fer ekki fram hjá gestum og gangandi, líkt og þessari kisu.
Morgunblaðið/Eggert
Áhugi Krakkarnir kunna vel að
meta nýbreytnina og taka á því.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020
Bókverk Jóhannesar Kjarvals svo sem
Grjót, Enn grjót, Einn þáttur, Ljóða-
grjót og Hvalasagan, eru meðal þess
sem býðst á yfirstandandi vefuppboði
Bókarinnar og Foldar uppboðshúss.
Því lýkur sunnudaginn 6. desember,
en þessa dagana er hægt að kynna sér
bækurnar sem bjóðast á vefnum upp-
bod.is. Að þessu sinni verða boðnar
upp 135 bækur og ritflokkar. Mikið er
um árituð eintök að þessu sinni og
margar bókanna eru bundnar inn af
bókbandsmeisturum. Þetta er síðasta
bókauppboðið á árinu og það 511. sem
Fold stendur fyrir.
Gott úrval ljóðabóka er á uppboð-
inu, mikið árituð eintök og tölusett og
í vönduðu bandi. Þar má nefna ljóða-
bókina Nei, fyrsta og eina verk Ara
Jósefssonar, gott kápueintak, úrval
bóka eftir Hannes Pétursson, meðal
annars mörg hans verka sem komu út
í takmörkuðum eintakafjölda á sinni
tíð, með fallegri áritun skáldsins, svo
sem Rauðamyrkur, Ýmsar færslur og
Heima á Nesi. Þá verða boðin upp ljóð-
mæli Bjargar C. Þorláksson, verk eftir
Sigurð Pálsson, Þorstein frá Hamri,
Þórarin Eldjárn, árituð bók eftir Óskar
Árna, Hannes Hafstein, Kristján Jóns-
son og fleiri.
Af öðru efni má nefna Sálina hans
Jóns míns eftir Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi með myndum Ragnhildar
Ólafsdóttur. Einnig fágæt rit tengd
skák, m.a. bæklingur eftir Willard
Fiske sem heitir Mjög lítill skákbækl-
ingur, gefinn út á sinni tíð í Flórens um
aldamótin 1900. Þá verður boðin upp
frumútgáfan af Ragnarökkri eftir
Benedikt Gröndal og leikrit eftir
Shakespeare sem komu út rétt fyrir
aldamótin 1900. Allt eru þetta fyrstu
útgáfur.
Af öðru góðu á uppboðinu má nefna
vandað eintak af sögulegu verki í Ís-
landssögunni, Rit Hins íslenska lær-
dómslistafélags en hér eru boðin upp
14 fyrstu bindin (1-14), prentuð í
Kaupmannahöfn 1780-1794, en verkið
var 15 bindi alls. Unnur Stefánsdóttir
batt verkið í gullskreyttar bækur á sín-
um tíma sem bera vitni um stórkost-
lega fallegt handbragð hennar og list-
fengi. Töflur og myndir eru margar í
þessu mikla verki.
Uppboð Bókarinnar og Foldar stendur nú yfir með fágætisritum
Grjót eftir Kjarval og Rauðamyrkur Hannesar
Kjarval Hannes
Pétursson
Hannes
Pétursson
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar