Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTAHáaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380
Hreinsum allar yfirhafnir,
trefla, húfur og fylgihluti
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér vegnar vel í mannlegum sam-
skiptum en þarft að gæta þess að gera
ekki meiri kröfur til annarra en þú gerir til
sjálfs þín.
20. apríl - 20. maí
Naut Gættu þess að draga ekki ályktanir
af ófullkomnum staðreyndum. Lausnin
felst í því að finna leið til að samræma við-
horf þín og viðhorf annarra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ýmislegt sem þig langar
til þess að kanna og þú ættir að athuga
möguleikana á að láta það eftir þér. Gættu
þess bara að ofmetnast ekki því.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Í dag er góður dagur til að njóta
nærveru fjölskyldunnar og einfaldlega
njóta notalegrar veru heima fyrir. Nám
færir þér heppni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú vilt fara þínar eigin leiðir í starfi
þínu í dag. Vertu með opinn huga. Gættu
þess að haga væntingum þínum alltaf í
samræmi við það sem þú veist mögulegt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ýmislegt að gerast hjá þér
núna og þú átt fullt í fangi með að komast
yfir það allra nauðsynlegasta. Reyndu að
skipuleggja tíma þinn betur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur ýmislegt gerst þegar for-
vitnin rekur mann áfram. Bíddu með að
ræða málin þar til þú ert rólegri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert auðveldara en
að ofstjórna öðrum og þú þarft að venja
þig af því. Hugsaðu málið vandlega.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú býrð yfir ýmsum hæfi-
leikum sem nýtast þér þegar á reynir.
Hugmyndir þínar eru frumlegar og góðar
og þú átt auðvelt með að ná athygli fólks í
áhrifastöðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þeir eru margir sem vilja ræða
málin við þig. Gakktu ekki alveg fram af
þér og gefðu þér líka tíma til að rækta
sjálfan þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ekki þinn máti að gefast
upp við fyrsta mótbyr. Gefðu þér tíma til
að hafa samband við þá sem málið varðar
með einhverjum hætti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu viðbúinn því að þurfa að
verja mál þitt fyrir háttsettum aðilum.
Láttu allt slúður sem vind um eyru þjóta.
30 ára Jón Elvar ólst
upp á Svertingsstöðum
í Eyjafjarðarsveit en
býr núna á Breiðavaði í
Múlaþingi. Hann er
bóndi á Breiðavaði sem
er kúabú með fimmtíu
árskýr. Jón hefur mik-
inn áhuga á landbúnaði og búskap en
þar fyrir utan eru helstu áhugamálin úti-
vist og íþróttir.
Maki: Helga Rún Jóhannsdóttir, f. 1989,
bóndi.
Dætur: Ragnheiður Katla, f. 2016, og
Sigurborg Hekla, f. 2018.
Foreldrar: Ragnheiður Jónsdóttir, f.
1958, húsmóðir og Gunnar Berg
Haraldsson, f. 1963, vinnur hjá Norður-
orku á Akureyri.
Jón Elvar
Gunnarsson
á Sannleiksfestinni í Hafnarfirði,
leikriti fyrir börn. Sýning gekk
mjög vel og ég sótti um Leiklist-
koma mér í framhaldsnám. Ég hafði
þó enn áhuga á leiklist og það varð
til þess að ég tók þátt í uppsetningu
I
ngólfur Björn Sigurðsson
fæddist 26. nóvember 1950
á Akureyri en flutti til
Reykjavíkur fimm ára gam-
all. Hann gekk fyrst í Mið-
bæjarskólann en þegar fjölskyldan
flutti í Álfheimahverfið fór hann í
Langholtsskóla og lauk gagnfræða-
prófi úr Vogaskóla.
„Álfheimahverfið var ævintýra-
heimur æsku minnar. Þar var allt að
gerast og hverfið var á mörkum
sveitar og borgar og stutt í fjöruna
og Elliðaárvoginn. Það var urmull af
börnum að alast upp í Heimunum á
þessum árum. Í blokkinni minni var
fjöldi barna yngri en tólf ára, líklega
u.þ.b. sextíu. Við krakkarnir fórum í
leiki, byggðum okkur leikhús, vor-
um með dúfur, spiluðum fótbolta á
völlum sem við bjuggum sjálf til og
eitt sumarið var útbúin hlaupa-
braut.“ Ingólfur minnist mikilfeng-
legra áramótabrenna sem voru oftar
en ekki þrjár og eins bardaga milli
blokka og næstu hverfa. „Í Laugar-
dalnum voru bændabýli, hesta-
mannafélagið Fákur og þvottalaug-
arnar. Þar var líka skógurinn.
Íþróttavöllurinn í Laugardal var
gerður á þessum tíma og Laugar-
dalshöllin var í byggingu. Á Lauga-
bóli bjó Gunnar Júlíusson með tík-
inni Pílu og hestinum Glóa og var
líka með kýr, kindur og hænur. Við
krakkarnir vorum alltaf velkomin til
Gunnars og ég var einn af þeim
heppnu sem fengu að taka þátt í bú-
störfunum með honum.“
Eins og tíðkaðist á þessum tíma
fór Ingólfur í sveit á sumrin. „Þar
kynntist ég því hvernig lífið hafði
verið til sveita áður fyrr og lærði að
slá með orfi og ljá, dreifa og þurrka
töðuna og koma henni í hlöðu á
hestasleða.“
Á sama tíma og ævintýraheimur
náttúrunnar var nánast í hlaðinu
heima var líka borgin sjálf með sín
tækifæri. „Ég valdi ballett, en þorði
nú ekki mikið að ræða það við jafn-
aldra mína. Við vorum nokkrir
strákar sem æfðum ballett í Þjóð-
leikhúsinu og ég var þar í fjögur ár
og tók þátt í leiksýningum Þjóðleik-
hússins.“ Ingólfur hafði líka áhuga á
leiklist og hlustaði oft á útvarps-
leikritin. „Það tók mig nokkur ár að
arskóla leikhúsanna og hóf þar nám
1974 og útskrifaðist frá Leiklist-
arskóla Íslands 1978. Í framhaldi af
því tók ég þátt í leiksýningum og
danssýningum.“ Ingólfur ákvað að
fara í framhaldsnám í dansi til
Stokkhólms og útskrifaðist frá
Dansháskólanum í Stokkhólmi 1987
og dansaði m.a. með Danskompaníi
Efvu Lilju.
Eftir að hann kom heim frá
Stokkhólmi var hann lausráðinn
leikari og dansari, tók þátt í sýn-
ingum í Borgarleikhúsinu og hjá
Leikfélagi Akureyrar, setti upp
danssýningu með Pars Pro toto, tal-
setti myndefni fyrir sjónvarp og
vann einnig sem málari, en hann er
með sveinspróf í húsamálun.
„Á árunum 1995-1998 bjó ég með
fjölskyldu minni í Kaupmannahöfn,
en kona mín, Árný Inga, var þar í
framhaldsnámi. Síðustu tvo áratug-
ina hef ég starfað sem kennari, en
tekið þátt í einstaka verkefnum í
leik og dansi og má þar nefna þátt-
töku mína í sýningu Íslenska leik-
flokksins, Hel haldi sínu, árið 2012.
Það hefur alla tíð fylgt mér frá
því ég var strákur að vera nátt-
úrubarn og síðustu áratugina hef ég
stundað útivist ásamt konu minni.
Við erum hlauparar og hlupum á
tímabili með skokkhópi Fjölnis og
tókum þátt í nokkrum maraþonum
bæði heima og erlendis. Við erum
félagar í nokkrum gönguhópum og
þ.á m. í Fjallafélaginu, sem þeir
Haraldur Örn og Örvar Þór Ólafs-
Ingólfur Björn Sigurðsson kennari, dansari og leikari – 70 ára
Fjölskyldan Hér eru börnin þeirra Ingólfs Björns og Árnýjar Ingu á góðri
stund. Frá vinstri: Birkir Blær Ingólfsson, Sigríður Ingólfsdóttir, Ingólfur
Páll Ingólfsson, Halla Steinunn Stefánsdóttir og Hrafn Stefánsson.
Dansað og leikið á sviði lífsins
Hjónin Ingólfur Björn og Árni eru mikið útivistarfólk.
Harpa Feðgarnir Ingólfur Björn og
Ingólfur Páll í Hörpu að skoða eitt-
hvað skemmtilegt í símanum.
30 ára Alma Rún ólst
upp á Akureyri en býr
núna í Garðabæ. Alma
Rún er hjúkrunarfræð-
ingur og starfar við
starfsendurhæfingu.
Hún stundar einnig
meistaranám í stjórn-
un í heilbrigðisþjónustu. Helstu áhuga-
mál hennar eru stang- og skotveiðar, úti-
vist og jóga.
Maki: Gunnar Guðmundsson, f. 1988,
vélfræðingur í Álverinu í Straumsvík.
Dóttir: Kría Gunnarsdóttir, f. 2017.
Foreldrar: Edda Björk Kristinsdóttir, f.
1958, kennari við matvælabraut VMA og
Vignir Hjaltason, f. 1956, rafiðnfræðingur
hjá Norðurorku. Þau eru búsett á Akur-
eyri.
Alma Rún
Vignisdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík María Þórunn Gunnars-
dóttir fæddist 25. september 2019 kl.
17.40. Hún vó 3.516 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru Katrín
Magnúsdóttir og Gunnar Ingi Gunn-
arsson.
Nýr borgari