Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020 Jón Magnússon, fv. alþingis-maður, tekur undir að ekki sé innistæða fyrir launahækkunum sem orðið hafa í djúpri kreppu og spyr:    En hvað veldur?Þeir sem leiða launahækkanirnar og hafa gert allt þetta kjörtímabil eru stjórn- málamenn, sem létu hækka laun sín af vinum sín- um í Kjararáði um leið og þeir settust í valdastóla eftir kosn- ingar.    Sú launahækkun var órökstuddog röng og það var þá þegar fyrirséð, að tæki Alþingi og ríkis- stjórn ekki á því, þá mundu verða keðjuverkanir á launamarkaðnum eða höfrungahlaup eins og fjár- málaráðherra kallar það. Sú hefur líka orðið raunin og órói hefur verið á vinnumark- aðnum allt frá þessari sjálftöku stjórnmálastéttarinnar og æðstu embættismanna ríkisins. Aðeins einn þingmaður reyndi að andæfa, en ekki var hlustað á hann og hann er því miður þagnaður.    Þegar Morgunblaðið bendirréttilega á að sú launaþróun sem orðið hefur í landinu stenst ekki miðað við aðrar þjóðhags- stærðir, þá þarf fyrst að beina at- hyglinni að þeim sem tróna á toppnum og eru með starfskjör, sem eru langt umfram það sem al- menni vinnumarkaðurinn getur boðið eða staðið undir. Það er því fyrst og fremst við ábyrgðarlausa ríkisstjórn og stjórnmálastétt að sakast.    Þjóðfélagið lifir ekki endalaustá seðlaprentun og gjafapökk- um frá ríkisstjórninni á kostnað framtíðarinnar.“ Jón Magnússon Innistæða og ástæða? STAKSTEINAR Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt- ir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpun- arráðherra, hefur endurnýjað samn- ing við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins um verkefnið Hæfnisetur ferðaþjón- ustunnar. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu á vef Stjórnarráðsins. Um er að ræða samstarfsverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar- ins um að auka hæfni í ferðaþjónustu á Íslandi. Frá árinu 2017 hefur Hæfnisetrið lagt áherslu á að koma á fræðslu innan fyrirtækja í ferðaþjón- ustu í samvinnu við ýmsa fræðslu- aðila. Næstu þrjú árin eða til ársins 2023 munu áherslur í starfi Hæfniset- urs ferðaþjónustunnar taka mið af breyttum aðstæðum í umhverfi grein- arinnar og þannig styðja við fram- gang og sjálfbærni íslenskrar ferða- þjónustu. Markmiðið með nýjum samningi er að framfylgja stefnu stjórnvalda á sviði hæfni, gæða og þekkingar í ferðaþjónustu og tengja vinnu Hæfni- setursins við svæðisbundin stoðkerfi greinarinnar og áherslur hvers lands- hluta í samvinnu við hagaðila. Hæfni ferðaþjónustu verði aukin Ljósmynd/Stjórnarráðið Hæfnisetur Verkefnið sett á flot, f.v. Jóhannes Þór Skúlason og María Guð- mundsdóttir frá SAF, Þórdís Kolbrún og Sveinn Aðalsteinsson frá FA. Umsóknum skólastjóra til að laus- ráða starfsmenn, sem ekki hafa leyfi til að nota starfsheitið grunnskóla- kennari, hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu undanþágunefndar grunnskóla 2019-2020. Á skólaárinu 2019-2020 fjölgaði slíkum umsóknum um 30% frá árinu á undan og samþykktum umsóknum fjölgaði um 33,9%. Alls voru teknar 787 umsóknir til afgreiðslu á skóla- árinu og voru 738 þeirra sam- þykktar en 49 synjað. Af umsókn- unum sem voru samþykktar voru 588, eða 79,7%, vegna kvenna og 150, eða 20,3%, vegna karla. Um- sóknum um undanþágur til kennslu hefur fjölgað jafnt og þétt frá skóla- árinu 2012-2013. Tæplega þriðjungur samþykktra undanþága, 31,6%, var vegna um- sækjenda í menntunarflokki 10. Í honum er fólk með háskólagráðu í grunnskólakennarafræðum (t.d. B.Ed.), leikskólakennarar, þroska- þjálfar o.fl., en sem hafa ekki full- nægjandi menntun í uppeldis- og kennslufræðum. Undanþágur fyrir einstaklinga með annars konar há- skólagráðu voru 27,5% samþykktra undanþága. Af samþykktum undan- þágum voru 21,1% vegna fólks í meistaranámi til kennsluréttinda. Hlutfall undanþága vegna ein- staklinga með enga starfsreynslu við kennslu hefur hækkað nokkuð und- anfarin ár. Þó lækkaði það nokkuð frá síðasta ári þegar það var rétt ríf- lega helmingur umsókna. Nú var það 42,1% af samþykktum umsókn- um. Meirihluti umsókna var vegna fólks á aldursbilinu 31-40 ára eða 41,7%. gudni@mbl.is Fleiri fá undan- þágur til kennslu  Undanþágunefnd grunnskóla metur umsóknir skólastjóra Morgunblaðið/Hari Grunnskóli Umsóknum um undan- þágur til kennslustarfa fjölgaði. hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.