Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 5
Með kærri kveðju,
Eyjólfur Pálsson,
STOFNANDI EPAL
Áundanförnum vikum hef ég gengið ummiðbæinn og dáðst að þeim mikla fjöldahönnuða, listafólks og hönnunarverslana
sem gæða hann lífi. Frá keramík og gullsmíði að
fata- og skóhönnun: Ótal dæmi um magnaða og fjölbreytta
íslenska hönnun.
Á þessum gönguferðum, þegar ég ætti í raun að vera að vinna að
heiman vegna faraldurs, stoppa ég gjarnan og spjalla við hönnuðina
og listafólkið og fæ að heyra söguna á bak við vörur sem grípa augað.
Vegna heimsfaraldurs eru færri á ferð um hjarta borgarinnar og því
hvet ég alla til að klæða sig vel, setja upp grímurnar og rölta um okkar
fallega miðbæ í hæfilegri sóttvarnarfjarlægð frá næsta manni. Upplifa
menninguna og kíkja inn í verslanir, gallerí og vinnustofur og spjalla
við fólkið sem höndlar með hönnunarvörur og kaupa síðan einstakar
gjafir með sögu.
Það verður að segjast eins og er að í miðbænum er líka töluvert um
misheppnaðar litasamsetningarogþvímunéghvetja til þess aðútbúin
verði litapalletta sem getur leiðbeint væntanlegum húsamálurum.
Með því væri hægt að gera bæinn okkar enn meira aðlaðandi í fallegu
samspili lita og forma.
Ég hvet okkur öll til að
standa saman þessi jól og
gefa vinum og ættingjum
fallega íslenska list eða
hönnunarvöru með sögu.
Þannig getum við tryggt
að þegar við göngum um
gamla miðbæinn okkar
á næstu aðventu verður
þessi fjársjóður enn til
staðar og mun halda
áfram að vaxa, dafna og
gleðja okkur á komandi
árum... og vonandi
í fallega lituðu
umhverfi!
Jólagjöf með sögu