Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020
Nordic Smart
Government
VERÐMÆTASKÖPUNMEÐ STAFRÆNUM LAUSNUM
Fjarfundur 27. nóvember 2020 kl. 8:30 - 10:00
Dagskrá:
8:30 Setningarávarp
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra
Nýsköpunarlandið Ísland
Sigríður Valgeirsdóttir, sérfræðingur, staðgengill skrifstofustjóra
hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
Vegvísir að stafrænu vistkerfi Nordic Smart Government
Linda Rut Benediktsdóttir, sviðsstjóri hjá Skattinum
Notkun stafrænna viðskiptaskjala
Jóhanna Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Skattinum
Lagalegt umhverfi Nordic Smart Government
Björg Anna Kristinsdóttir, ráðgjafi hjá KPMG
Tæknilegt umhverfi Nordic Smart Government
Georg Birgisson, ráðgjafi hjá Midran
Næstu skref
Snorri Olsen, ríkisskattstjóri
10:00 Fundarslit
Fjárfesting í stafrænni þróun og nýsköpun er brýn á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, faraldurs og
samdráttar. Hvar liggja tækifærin?
Verkefnishópur Nordic Smart Government vinnur að því að skoða hvernig skapa má verðmæti fyrir
lítil og meðalstór fyrirtæki með því að gera rauntíma viðskiptagögn aðgengileg svo þau nýtist til
nýsköpunar og vaxtar.
Boðið er til fundar um helstu afurðir þriðja áfanga verkefnisins. Fjallað verður um vegvísinn að
stafrænu vistkerfi Nordic Smart Government, notkun stafrænna viðskiptaskjala á Norðurlöndunum
og stöðu Íslands í því samhengi hvað varðar lagalegt og tæknilegt umhverfi. Næstu skref í verkefninu
verða kynnt en til að framtíðarsýn Nordic Smart Government verði að veruleika þarf að koma á
samstarfi hagaðila bæði í opinbera og einkageiranum.
Skráning á fundinn fer fram á vefsvæði Skattsins: https://www.rsk.is/skraning-a-nsg/
Fundarstjóri
Hólmfríður S. Jónsdóttir, verkefnastjóri á verkefnastofu um stafrænt Ísland
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, hefur und-
irritað reglugerð um greiðslu des-
emberuppbótar til atvinnuleitenda.
Óskert er hún 86.853 krónur. At-
vinnuleitendur með börn á fram-
færi fá líka desemberuppbót fyrir
hvert barn yngra en 18 ára. Desem-
beruppbótin verður greidd út í síð-
asta lagi 15. desember.
Rétt á fullri desemberuppbót
eiga þeir sem hafa verið að fullu
tryggðir innan atvinnuleysistrygg-
ingakerfisins, verið skráðir án at-
vinnu hjá Vinnumálastofnun í sam-
tals tíu mánuði eða lengur 2020 og
hafa staðfest atvinnuleit frá 20.
nóvember til 3. desember 2020.
Desemberuppbót þeirra sem eiga
ekki fullan bótarétt reiknast í hlut-
falli við rétt þeirra til atvinnuleys-
isbóta á árinu og fjölda mánaða sem
viðkomandi hefur fengið greiddar
atvinnuleysisbætur. Hún verður þó
aldrei lægri en 21.713 krónur.
Atvinnu-
leitendur
fá uppbót
Óskert er upp-
bótin 86.853 krónur
Morgunblaðið/Kristinn
Uppbót Atvinnuleitendur fá
greidda uppbót í desembermánuði.
Ársskýrsla Veðurstofu Íslands er
nýkomin út. Nú verða tímamót því
þetta er í síðasta sinn sem árs-
skýrslan er gefin út á pappír.
„Það er ýmislegt sem kemur til,“
segir Haukur Hauksson, samskipta-
stjóri Veðurstofunnar, í samtali á
vef stofnunarinnar, en hann og Sig-
urlaug Gunnlaugsdóttir, útgáfu-
stjóri Veðurstofunnar, unnu saman
að ársskýrslunni þetta árið. „Við á
Veðurstofunni vinnum að því að
minnka pappírsnotkun stofnunar-
innar og það að hætta að prenta
ársskýrsluna má segja að sé tákn-
rænt skref í átt að því markmiði,“
segir Haukur. Framvegis verði
skýrslan gefin út rafrænt.
Ársskýrsla Veðurstofunnar er
óvenju stór og innihaldsrík þetta
árið, eða 38 blaðsíður.Tilefnið er
100 ára afmæli Veðurstofunnar í
ár. Stiklað er á stóru í sögu hennar
í ársskýrslunni, bæði í máli og
myndum. Að auki er í skýrslunni
yfirlit yfir náttúrufar ársins 2019.
„Okkar hlutverk er að spá um
veður og gefa út viðvaranir og
miðla upplýsingum um hvort
tveggja,“ segir í aðfaraorðum Árna
Snorrasonar forstjóra. Skýrsla
Veðurstofunnar um aftakaveðrið í
desember 2019 sýni að spár og við-
varanir voru áreiðanlegar, miðlun
upplýsinga til hagaðila og sam-
félags með ágætum og rekstur
grunnkerfa viðunandi. „Hugsan-
lega endurspeglast þetta í nýlegri
könnun meðal almennings þar sem
traust og ánægja með Veðurstof-
una var einna mest íslenskra stofn-
ana.“ sisi@mbl.is
Síðasta ársskýrslan á pappír
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veðurstofan Stofnunin hélt upp á 100 ára afmæli sitt fyrr á þessu ári.
Veðurstofan stefnir að því að minnka pappírsnotkun
Séra Vigfús
Bjarni Alberts-
son sjúkra-
húsprestur hefur
verið ráðinn í
starf forstöðu-
manns Fjöl-
skylduþjónustu
kirkjunnar.
Kirkjuráð aug-
lýsti starfið laust
til umsóknar og
bárust fimm umsóknir.
Sr. Vigfús Bjarni fæddist í
Reykjavík 1975. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Sund 1995 og guðfræðiprófi frá Há-
skóla Íslands 2001. Þá lauk hann
M.Th.- prófi frá Luther Seminary í
Minnesota í Bandaríkjunum árið
2003. Hann var vígður til sjúkra-
húsprestsþjónustu 2005 á Landspít-
ala – Háskólasjúkrahús. Árið 2018-
2019 starfaði hann sem mannauðs-
stjóri þjóðkirkjunnar.
Stýrir Fjöl-
skylduþjón-
ustunni
Vigfús Bjarni
Albertsson