Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020 Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun eru um 20 þúsund manns atvinnulausir í almenna bóta- kerfinu og þar af eru um 36% í ferða- þjónustu, eða um 7.400 manns. Þá eru um 4.800 í skertu starfshlutfalli og um helmingurinn í ferðaþjónustu. „Nú þegar von er á að viðspyrna sé í sjónmáli verða aðgerðir ríkisstjórn- arinnar að miða að því að fyrirtæki í ferðaþjónustu verði í stakk búin til að taka á móti erlendum gestum af miklum myndarskap,“ segir Vilborg. Gæti skapað hundruð starfa Fyrirtækið Airport Associates þjónustar mörg af þeim flugfélögum sem fljúga til Keflavíkurflugvallar. Félagið hefur fylgt vexti ferðaþjón- ustunnar en mest störfuðu um 700 manns hjá félaginu 2018. Sigþór Kristinn Skúlason, for- stjóri félagsins, segir umsvif félags- ins ráðast af áætlunum flugfélag- anna sem það þjónustar. „Tíðindin af bóluefnum gefa tilefni til bjartsýni. Ég er til dæmis ekki sammála greiningu Seðlabankans um ferðasumarið 2021. Ég held að með útbreiddri bólusetningu fyrir næsta sumar verði mun meiri áhugi á Íslandi en Seðlabankinn spáir,“ segir Sigþór Kristinn sem áætlar að félagið kunni að ráða 150-400 starfs- menn á næsta ári en um 100 manns starfa nú hjá félaginu. Spá fjölgun með vorinu Fjöldi erlendra ferðamanna um Keflavík 2019-2020 og spá fyrir 2021 Þúsundir ferðamanna 2021 sem hlutfall af 2019 2019 2020 Spá SAF um fjölda árið 2021 Fjöldi árið 2021 sem hlutfall af fjölda 2019 Heimild: Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) 7 7 9 12 25 58 93 126 110 130 105 100 121 133 80 1 1 6 46 64 10 6 5 5 139 149 170 120 126 195 231 252 184 163 131 125 80% 10% 5% 50% 250 200 150 100 50 0 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 100% 80% 60% 40% 20% 0%  Samkvæmt áætlun SAF koma 12 þúsund erlendir ferðamenn hingað í apríl  Það yrði 10% af fjöldanum í apríl 2019  Hlutfallið hækki svo í 80% í desember BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þróun bóluefna gegn kórónuveir- unni hefur glætt vonir ferðaþjónust- unnar um hægan bata á næsta ári. Ef nýjustu sviðsmyndir ganga eftir gæti greinin tekið við sér á öðrum fjórðungi næsta árs. Vilborg Helga Júlíusdóttir, hag- fræðingur Samtaka ferðaþjónust- unnar (SAF), gerir ráð fyrir að hing- að komi 476 þúsund erlendir ferðamenn í ár, eða ríflega fjórfalt færri en árið 2019. Þá megi gera ráð fyrir að tekjur af útfluttri vöru og þjónustu verði um þúsund milljarðar í ár – eða um 390 milljörðum króna lægri en í fyrra – þar vegi þyngst lægri tekjur í ferðaþjónustu. Slengt aftur um 10-12 ár „Nær algert stopp í flug- og ferða- þjónustu landsins gerir það að verk- um að vægi greinarinnar í heildar- útflutningstekjum ársins verður á bilinu 12-13%, sem er viðlíka og það var fyrir hrun,“ segir Vilborg um gjaldeyristekjur greinarinnar í ár. Hún tekur fram að óvissan sé enn mikil en að góðar fregnir um þróun þriggja bóluefna veki vonir um að ferðamennska í heiminum taki við sér fyrr en síðar. Beðið er samþykkis yfirvalda á notkun bólefnis hjá Pfiz- er, Moderna og AstraZeneca en áformað er að hefja bólusetningu í desember, þ.m.t. í Bandaríkjunum, stærsta markaði ferðaþjónustunnar. Afléttingin jákvæð tíðindi Vilborg segir það einnig jákvæð tíðindi að evrópsk og bandarísk flug- málayfirvöld hafi aflétt flugbanni á Boeing Max 737-vélunum sem létti róður Icelandair út úr þeirri óvissu sem ríkt hefur. Áætlun Vilborgar um fjölda ferða- manna er í takt við spá Seðlabank- ans í nýjum Peningamálum en þar er áætlað að hingað komi 750 þúsund erlendir ferðamenn á næsta ári og um 1,5 milljónir farþega árið 2022. „Það má gera ráð fyrir að erlend- um ferðamönnum fari að fjölga í apr- íl og verði þá 10% af fjöldanum í apríl 2019. Svo fer hlutfallið stighækkandi út árið og verður vonandi komið í um 80% í desember miðað við sömu mánuði árið 2019,“ segir Vilborg sem áætlar aðspurð að ferðamennirnir verði orðnir álíka margir í ársbyrjun 2022 og þeir voru í byrjun árs 2019. Til upprifjunar fór WOW air í þrot 28. mars 2019. Gæti sett áætlanir úr skorðum Vilborg ítrekar að mikil óvissa sé um framhaldið. Það geti vel komið bakslag sem setji áætlanir úr skorð- um. Þá segi fjöldi ferðamanna ekki alla söguna heldur sá virðisauki og þau framleiðsluverðmæti sem verði til af þjónustu við hina erlendu gesti. Hún bendir á að í því samhengi skipti mestu að það fari að draga markvert úr atvinnuleysi hér á landi. Morgunblaðið/Eggert Beðið eftir flugi Farþegar ganga um borð á Keflavíkurflugvelli. Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS 26. nóvember 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 135.6 Sterlingspund 180.77 Kanadadalur 103.77 Dönsk króna 21.619 Norsk króna 15.069 Sænsk króna 15.768 Svissn. franki 148.53 Japanskt jen 1.297 SDR 193.13 Evra 160.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 194.8392 Hrávöruverð Gull 1818.1 ($/únsa) Ál 1969.5 ($/tonn) LME Hráolía 45.9 ($/fatið) Brent Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjón- ustu (FHG), segir bókanir fyrir næsta sumar 20-30% af því sem gerist í eðlilegu árferði á þessum tíma ársins. Áhuginn á Íslandsferðum hafi markvert aukist eftir að greint var frá árangri við þróun bólu- efna gegn kórónuveirunni. „Það er greinilega meiri bjartsýni en við köllum alltaf á aukinn fyrirsjáanleika,“ segir Kristófer um stöðuna. Hann segir það mundu muna miklu ef stjórnvöld gæfu út dag- setningu um hvenær slakað verður á sóttvörnum. „Við gætum verið að selja meira þessa dagana ef við gæt- um lofað dagsetningum. Eftir því sem nær dregur sumrinu minnka möguleikarnir og verðið lækkar. Það munar um hverja viku,“ segir Kristófer og bendir á að bólusetning eigi að hefjast í Bandaríkjunum í desember. Bókunum fjölgar á ný ÁHRIF BÓLUEFNA Á HÓTEL Stjórnir Kviku banka, TM og Lyk- ils fjármögnunar (sem er í eigu TM) hafa ákveðið að sameina fé- lögin. Er það gert í kjölfar ítar- legra viðræðna sem staðið hafa yf- ir undanfarnar vikur. Samkvæmt samrunasamningi mun TM færa vátryggingastarfsemi sína í dótt- urfélag, TM tryggingar, og í kjöl- farið verður ráðist í þríhliða sam- runa félaganna þriggja. TM tryggingar verða í kjölfarið dótturfélag sameinaðs félags. Samkvæmt samningnum munu hluthafar TM fá sem endurgjald fyrir hluti sína ríflega 2,5 millj- arða hluta í Kviku sem greitt verður fyrir með úgáfu nýs hluta- fjár. Í dag er fjöldi útgefinna hluta í Kviku ríflega 2,1 milljarður og því munu hluthafar TM fá um 54,4% útgefins hlutafjár í félaginu í sínar hendur. Fyrirvari er reyndar settur við að Kvika kunni vegna núverandi samnings- skuldbindinga að gefa út nýtt hlutafé fram að afhendingardegi sem kunni að breyta hlutfallinu eitthvað. Samruninn er háður samþykki FME og Samkeppniseftirlitsins. Verði hann að veruleika verður Marinó Örn Tryggvason, núver- andi forstjóri Kviku, forstjóri sam- einaðs félags og Sigurður Við- arsson, forstjóri TM, verður forstjóri TM trygginga. Þá verður Ragnar Páll Dyer framkvæmda- stjóri fjármálasviðs og Ólöf Jóns- dóttir, sem nú er framkvæmda- stjóri Lykils, verður framkvæmda- stjóri rekstrar- og þróunarsviðs sameinaðs félags. Mikil kostnaðarsamlegð Stjórnir félaganna telja að árleg kostnaðarsamlegð, án viðskipta- og einskiptiskostnaðar af samrun- anum, geti numið 1.200-1.500 milljónum. Þannig verði hún 500- 600 milljónir á næsta ári en einskiptiskostnaður 250-300 millj- ónir, árið 2022 verði samlegðar- áhrifin 1.000-1.100 milljónir en einskiptiskostnaður 50-100 millj- ónir og að eftir það verði samlegð- aráhrifin að fullu komin fram. Kvika, TM og Lykill í eina sæng  Hluthafar TM með meirihluta í félaginu Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.