Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
ingar við kórónuveirunni í Banda-
ríkjunum. Á sjöundu milljón
skammta bóluefnis lyfjarisanna Pfi-
zer-BioNTech verða til reiðu í fyrstu
viku eftir að veitt hefur verið leyfi til
að brúka það í neyðarskyni. Og fyrir
desemberlok verður búið að dreifa 40
milljónum skammta, fáist leyfið í
tæka tíð, að sögn embættismanna.
Nokkur Evrópuríki eru þessa dag-
ana að draga hægt og rólega úr ráð-
stöfunum sem gripið hefur verið til í
stríðinu gegn kórónuveirunni. Þá
hafa bæði Bretar og Þjóðverjar sam-
þykkt sérstakar ráðstafanir svo fjöl-
skyldur geti hist um jólahátíðina.
Það hefur verið réttlætt með því að
Evrópa væri komin yfir hrygginn
bárunnar því umtalsverð fækkun
hefur orðið á nýsmiti víða í álfunni.
Formaður framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins (ESB), Ursula
von der Leyen, varaði ríki sam-
bandsins við því að hverfa of hratt
frá þvingunaraðgerðum. „Við eigum
að draga lærdóm af sumrinu og end-
urtaka ekki þau mistök að hleypa öll-
um kúnum út úr fjósinu í einu,“ sagði
hún. Í sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld
tilkynnti Emmanuel Macron Frakk-
landsforseti að verslanir mættu opna
að nýju frá og með nk. laugardegi og
innilokun fólks á heimilum sínum
tæki enda 15. desember.
Þar sem lítt hefur fengist ráðið við
kórónuveiruna í Búlgaríu var þar
gripið að nýju til strangra ráðstafana
til að hindra samgang fólks og enn
víðtækari útbreiðslu veirunnar. Með-
al annars kveða aðgerðirnar á um
lokun veitingahúsa og skóla, en tekin
verður upp fjarkennsla um tölvur. Þá
verða spilavíti, æfingamiðstöðvar og
verslunarmiðstöðvar áfram lokaðar.
Asíuríki standa misvel að vígi og
sum, t.d. Pakistan, eru að sligast
undir álaginu á heilbrigðiskerfið. Í
Kína komu hins vegar upp aðeins
fimm nýsmit í fyrradag og voru þau
öll sögð „innflutt“.
Bretar, Frakkar, Austurríkis-
menn og Spánverjar hafa heitið því
að hefjabólusetningu við kórónuveir-
unni í síðasta lagi í ársbyrjun 2021.
Jafnvel þótt bóluefni verði fljótlega
fáanlegt mun langur tími líða þar til
daglegt líf um heim allan verður aft-
ur komið í eðlilegt horf. Sömu sögu
er að segja af efnahagslífinu.
agas@mbl.is
Vegna vaxandi veirufaraldurs verða
veitingahús í Los Angeles og ná-
grenni lokuð frá og með deginum í
dag. Voru íbúar ríkisins hvattir til
þess að halda sig heima um þakk-
argjörðarhátíðina. Á sama tíma er
verið að slaka á ráðstöfunum, boðum
og bönnum í hluta Evrópu, einkum
um jólaleytið.
Lokunin í Los Angeles varir þrjár
næstu vikurnar en sýkingar af völd-
um kórónuveirunnar hafa aldrei ver-
ið fleiri í Kaliforníu frá því farald-
urinn gaus upp. Hvatti Mark Ghaly,
heilbrigðisráðherra Los Angeles,
borgarbúa til þess að halda kyrru
fyrir og forðast að efna til fjölmennra
fjölskyldufunda. „Mikilvægt er að
fólk afþakki, segi jafnvel nei við boði
um að heimsækja sína nánustu,“
sagði Ghaly, sem er læknir.
Í fyrradag voru rúmlega 86.000
manns lagðir inn á sjúkrahús vegna
sýkingar, staðfest var smit hjá
167.000 manns þann dag og rúmlega
2.000 létust.
Heilsuverndarstofnun Bandaríkj-
anna hefur í fyrsta sinn frá því far-
aldurinn gaus upp skorað á lands-
menn að leggjast ekki í ferðalög á
hinum árlega frídegi sem jafnan
dregur Bandaríkjamenn til fjöl-
skylduheimsókna þar sem snæddur
er hefðbundinn kalkúnaréttur.
Vegna stöðugrar aukningar veiru-
sýkinga og fjölgunar dauðsfalla var í
gær hert á undirbúningi bólusetn-
AFP
Snjóhús í New York Á förnum vegi í Bryant-garðinum í New York-borg nýtur fólk samveru og veitinga í huggu-
legum snjóhúsum. Á vesturströnd Bandaríkjanna er öldin önnur og veitingahús lokuð vegna kórónufaraldursins.
Lok, lok og læs í LA
Hert á undirbúningi bólusetninga við kórónuveirunni í
Bandaríkjunum Skorað á landsmenn að ferðast ekki
AFP
Skilti Lokað vegna veiru, segir í
glugga bæversks veitingahúss.
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Þrátt fyrir að bandarísk stjórnvöld í
Washington DC kunni að beita þá
refsiaðgerðum í formi tolla á
franskar innflutningsvörur ætla
Frakkar að krefja netrisa á verald-
arvefnum um nýjan „stafrænan
veltuskatt“.
Þetta staðfesti fjármálaráðuneyt-
ið í París í gær og bætti við að
tæknirisarnir sem í hlut ættu hefðu
verið upplýstir um hvað til stæði.
Þar munu meðal annars vera
bandarísku fyrirtækin Google,
Amazon, Facebook og Apple, sem
Bandaríkjamenn segja að séu beitt
óréttlæti sem sérstök skotmörk.
Leiddu í lög á síðasta ári
Stjórnvöld beggja vegna Atlants-
ála hafa undanfarin misseri þráttað
um skattlagningu af þessu tagi og
þá sér í lagi hvernig gera mætti
bandarísku tæknirisunum að borga
hærri skerf í skatta í löndum þar
sem þeir eru með umsvif viðskipta-
legs eðlis.
Samkvæmt lögum Evrópusam-
bandsins (ESB) geta bandarísk
fyrirtæki talið fram tekjur í ESB-
löndunum öllum til skatts í einu
þeirra. Í flestum tilvikum hafa þau
talið fram í Írlandi og Hollandi
vegna mun lægri skatta þar en í
hinum ríkjunum.
Undir þrýstingi um að taka harð-
ari línu í deilunni leiddu Frakkar
stafræna skattinn í lög í fyrra.
Kveður hann á um 3% skatt af um-
boðsgjöldum vegna netsölu, af aug-
lýsingum og af sölu á stafrænum
gögnum, persónuupplýsingum um
viðskiptavini sína. Þriggja prósenta
skattur nær til fyrirtækja með
heimsveltu upp á 750 milljónir og
25 milljóna tekjur eða meira í
Frakklandi. Nær hann til um 30
fyrirtækja og eru flest þeirra með
höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, en
einnig í Evrópu og Kína.
Trump hefur varað Frakka við
Franska stjórnin náði samkomu-
lagi við stjórn Donalds Trumps um
að bíða með skattlagninguna meðan
reynt væri að ná samkomulagi um
hnattrænan stafrænan skatt undir
merkjum Efnahags- og samvinnu-
stofnunarinnar OECD.
Trump hefur varað Frakka við og
sagt að þeir ættu yfir höfði sér 25%
skatt ofan á innflutning sinn til
Bandaríkjanna, en hann nemur 1,3
milljörðum dollara, sætu þeir við
sinn keip. Refsiskatturinn næði
meðal annars til frægra franskra
snyrtivara og handtaska.
Í síðasta mánuði játti OECD því
að útilokað væri að stofnunin næði
á þessu ári sátt um forsendur nýs
samkomulags um skattlagningu á
stafræn fyrirtæki. Ástæðan er fyr-
irstaða og andstaða Bandaríkjanna
við tillögur stofnunarinnar.
Halda fast í
stafrænan skatt
í Frakklandi
Skatturinn nær til um 30 fyrirtækja
AFP
Skattlagning Frakkar ætla að skattleggja inntekt Amazon í Frakklandi.
Þáttaskil urðu í gær í endurbyggingu Notre-Dame-
dómkirkjunnar í París í gær er síðustu vinnupallarnir
frá því fyrir eldsvoðann voru teknir niður.
Stillansarnir afmynduðust í brunanum mikla í kirkj-
unni 15. apríl 2019. Um var að ræða 40 þúsund málm-
rör sem vógu um 200 tonn.
Að þeim horfnum verður hægt að stíga næstu skref
viðgerða á brunaskemmdum og tryggja burð veggja.
Brottnám vinnupallanna hefur staðið yfir frá í júní
sl. Notre-Dame-kirkjan var fyrst reist á þrettándu öld
og hefur verið eitt af helstu kennileitum Parísarborg-
ar.
Stillansar hverfa af Notre-Dame
AFP