Morgunblaðið - 26.11.2020, Page 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju
Jólamyndatökur Einstökminning
Til að koma í veg
fyrir frekara ólæsi á
Íslandi teldi ég heilla-
ráð að ríkisstjórnin
réði tíu eða tólf barna-
og unglingabókahöf-
unda í fullt starf í tvö
til þrjú ár. Á hverju ári
gæti hver um sig skrif-
að tvær til fjórar ólík-
ar bækur á mismun-
andi erfiðleikastigi
fyrir leik- og grunnskólabörn og í
takt við áhugamál þeirra, sem er
lykilatriði. Allir skólar fengju eitt
bekkjarsett af hverri bók, 25 bækur,
og höfundarnir myndu síðan skipta
með sér skólum, heimsækja þá alla
og vera með „kveikjur“, upplestur,
skapandi skrif og fleira til að auka
áhuga á lestri.
Mín reynsla sem rithöfundur sýn-
ir að þetta glæðir áhuga á sögum,
eykur orðaforða, námsárangur verð-
ur betri og sjálfstraust eykst. Skól-
arnir þurfa aðstoð, börnin þurfa
hjálp, flestir foreldrar líka þegar
læsi er annars vegar. Þessi fjárfest-
ing í komandi kynslóðum myndi
kosta ríkissjóð brotabrotabrot af
þeim fjármunum sem dreifast víða í
núverandi ástandi. Fyrsta stigs for-
varnir hafa yfirleitt setið á hakanum
en það litla fjármagn sem er þó sett í
þann málaflokk sparar
samfélaginu milljarða
þegar fram líða stundir.
Hvers virði er hvert
mannslíf? 100 milljónir?
Milljarður? Ég er sann-
færður um að við Ís-
lendingar myndum
safna milljarði á
skömmum tíma til að
bjarga einu lífi. Ofan-
greind aðgerð myndi
kosta um 160 milljónir á
ári, með öllu!
Við rithöfundar erum algjörlega
vannýttir þegar kemur að því að
heimsækja skóla með spennandi
kveikjur, yfirleitt vegna fjárskorts
skólanna og bágborins skilnings yf-
irvalda. Nú er sannarlega lag. Með
samtakamætti er hægt að fjárfesta í
komandi kynslóðum! En hvers er að
taka fyrsta skrefið?
Hvers virði er
hvert mannslíf?
Eftir Þorgrím
Þráinsson
Þorgrímur Þráinsson
» Þessi fjárfesting í
komandi kynslóðum
myndi kosta ríkissjóð
brotabrotabrot af þeim
fjármunum sem dreifast
víða í núverandi ástandi.
Höfundur er rithöfundur.
Í tengslum við
Dag íslenskrar
tungu fyrir skömmu
kom út ný og stækk-
uð uppfærsla á mál-
örvunarforritinu
Orðagulli og er það
sem fyrr frítt til nið-
urhals. Bætt hefur
verið í það 15 nýjum
borðum og eru þau
nú 38 talsins. Markmið Orðagulls
er að styrkja orðaforða, málskiln-
ing, vinnsluminni, heyrnræna úr-
vinnslu, lesskilning og máltjáningu
barna sem allt eru mikilvægir
undirstöðuþættir máls og læsis.
Að læra í gegnum
skemmtilegan leik
Orðagull er byggt upp sem leik-
ur þar sem hver og einn notandi
getur skapað sig sem leikmann og
gefið sér nafn og útlit. Í forritinu
eru 38 borð og er hægt að velja á
milli þrenns konar verkefna fyrir
hvert borð; fyrirmæla, spurninga
og orðalesturs. Það eru því í raun
114 borð sem boðið er upp á.
Orðabók fylgir hverju borði með
nýjum orðum og hugtökum sem
tengjast ákveðnu þema sem hvert
borð er byggt á. Við hlið hvers
borðs eru sjónrænar vísbendingar
sem hjálpa nemendum að hlusta
frá byrjun til enda, framkvæma
fyrirmæli og endurtaka það sem
þeir hafa heyrt. Hægt er að taka
upp svör og endurtekningar nem-
enda á fyrirmælum með því að
virkja hljóðnema í forritinu. Umb-
unarkerfi er innbyggt í forritið í
formi stjörnugjafar sem býður
upp á að kennarar sem vinna með
forritið hafi umsjón með notkun
og framförum nemenda.
Fyrir öll börn
heima og að heiman
Notkunarmöguleikar Orðagulls
eru fjölbreyttir þar sem m.a. er
hægt að vinna markvisst með les-
skilning og lestur orðmynda. Í
nýjustu uppfærslu forritsins er
tekið tillit til fjölmenningar þannig
að öll börn geti samsamað sig við
persónur sem koma fram í forrit-
inu. Orðagull hentar elstu börnum
í leikskóla og börnum á yngsta
stigi grunnskóla. Einnig getur það
nýst eldri nemendum sem glíma
við erfiðleika hvað varðar vinnslu-
minni, heyrnræna úrvinnslu, orða-
forða og endursögn, sem og nem-
endum á öllum aldri sem eru að
læra íslensku sem annað tungumál
og íslenskum börnum sem eru bú-
sett erlendis og vilja viðhalda ís-
lenskunni.
Orðagull var fyrst gefið út fyrir
spjaldtölvur á degi íslenskrar
tungu 2016. Ári síðar var það gef-
ið út fyrir snjallsíma og spjaldtölv-
ur sem styðjast við Android og
iOS
Forritið hefur fengið mjög góð-
ar viðtökur hjá kennurum í leik-
og grunnskólum, sem og for-
eldrum og börnum. Mikil umræða
hefur átt sér stað um slaka stöðu
íslenskunnar og minnkandi lestr-
arfærni. Ný og stækkuð útgáfa
málörvunarforritsins Orðagulls
ætti því að falla í góðan jarðveg.
Vegna stuðnings fjölmargra aðila
er hægt að bjóða forritið frítt til
niðurhals. Það gefur börnum sem
þess þarfnast tækifæri til að njóta
Orðagulls í leik og námi. Fyrir
þennan stuðning eru höfundar
þakklátir.
Eftir Bjarteyju
Sigurðardóttur og
Ásthildi Bj.
Snorradóttur
»Málörvunarforritið
Orðagull er frítt for-
rit sem nú er komið út í
stækkaðri og endur-
bættri uppfærslu. Höf-
undar eru talmeina-
fræðingar og
sérkennarar.
Höfundar Orðagulls eru talmeina-
fræðingur og sérkennari.
bjarteysigurdar@gmail.com
Orðagull – frítt
málörvunarapp fyrir börn
Bjartey
Sigurðardóttir
Ásthildur Bj.
Snorradóttir
Atvinna