Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020
Hinn frábæri
ferðagarpur og
jöklafari, Magnús
Hallgrímsson, er
fallinn frá. Andlát hans kom
ekki á óvart. Hann var kominn á
89. aldursár og hafði lengi átt
við vanheilsu að stríða. Það mun
hafa verið í janúar 1954 að ég sá
hann fyrst. Það var í skíðaskála
Í.K. í Skálafelli. Hann var þar
með félaga sínum Jóhanni Lár
Jónassyni, síðar lækni. Skálinn
var þéttsetinn af fólki, enda
hörkuveður úti. Stórhríð og
hörkufrost. Magnús hafði fengið
lánað teppi, sem þeir Jóhann
bundu á skíðastafi og sigldu síð-
an yfir Mosfellsheiði í Skíðaskál-
ann í Hveradölum. Leiðin er um
30 km og voru þeir aðeins röska
klukkustund á leiðinni.
Næst þegar ég sá Magnús var
1965. Ég var þá nýgenginn í
Flugbjörgunarsveitina í Reykja-
vík og auðvitað var hann þar,
réttur maður á réttum stað.
Hann var þá að undirbúa eina af
ferðum sínum, sem hann hugðist
Magnús
Hallgrímsson
✝ Magnús Hall-grímsson fædd-
ist 6. nóvember
1932. Hann lést 8.
nóvember 2020.
Magnús var jarð-
sunginn 18. nóv-
ember 2020.
fara um páskana.
Nú hugðist hann
fara á Öræfajökul
og ganga á
Hvannadalshnúk
og taka með sér all-
ar græjur, tjöld og
svefnpoka og að
auki mannbrodda
og ísaxir. Það var
því ljóst að þetta
yrðu þungar byrð-
ar, 25 til 30 kg á
hvern mann. Í ferðinni kom í
ljós hversu kröftugur Magnús
var og úrræðagóður ef eitthvað
bjátaði á. Öllu tók hann með
stakri ró og lét ekkert setja sig
út af laginu. Er ferðin nálgaðist
brún jökulsins í 1.800 metra hæð
varð fyrir okkur breið sprunga
a.m.k. 10 metrar á breidd, en vel
fyllt af snjó. Við bundum Magn-
ús í kaðal og lagði hann af stað
út á snjófylluna. Þegar hann
nálgaðist brúnina að ofan fór
skíðastafurinn í gegn. En hann
var þá ekkert að ekkert að tví-
nóna við það. Vék sér til hliðar
og dreif sig upp úr sprungunni.
Hann kallaði til baka að við ætt-
um að tengja okkur saman í
band og koma í slóðina á eftir
sér. Allt gekk þetta eins og í
sögu og von bráðar stóðum við á
brún Öræfajökuls í 1.800 metra
hæð.
Við stöfuðum saman í Jökla-
rannsóknafélagi Íslands og fór
ég margar ferðir með honum á
vegum félagsins. Það var alveg
sama hvað bjátaði á. Alltaf var
Magnús jafn rólegur og úrræða-
góður. Hann hafði einstakt lag á
því að rata eftir áttavita, jafnvel
þó að um langar vegalengdir
væri að ræða. Ef Magnús réð
för var það gefið mál að leiðang-
urinn endaði á réttum stað.
Með Magnúsi er genginn
mikill ferðagarpur en líka stakt
ljúfmenni. Hann taldi ekki eftir
sér að leggja mikið á sig en allt
sem upp á kom leysti hann með
stakri ró og skynsemi.
Blessuð sé minning Magnús-
ar Hallgrímssonar.
Pétur Þorleifsson.
Á köldu vori snemma á stríðs-
árunum bættust tveir ungir
bræður frá Akureyri í barna-
hópinn sem var að læra sund í
litlu sundlauginni á Laugalandi
á Staðarbyggð í Eyjafirði.
Bræðurnir voru þá í sumardvöl
á bæjum í nágrenninu. Þetta
voru þeir Magnús og Ólafur
Hallgrímssynir. Ég kannaðist
aðeins við þá því faðir þeirra,
Hallgrímur Einarsson ljós-
myndari, og faðir minn, Jón M.
Júlíusson, voru frændur og góð-
ir vinir. Drengirnir tveir, glað-
værir og prúðir, féllu vel inn í
barnahópinn og ekki þótti okkur
stelpunum verra að þeir voru
fríðir sýnum, dökkhærðir og
brúneygir, og lausir við stríðni.
Þarna hófst vinátta okkar
Magga Hall, en mér er tamt að
kalla hann því nafni. Fáeinum
árum seinna vorum við Maggi
um skeið í sama bekk í Mennta-
skólanum á Akureyri. Þar var
Maggi sá af nemendunum sem
vissi næstum allt, en aldrei
stærði hann sig af því. Man ég
að í náttúrufræðitíma var kenn-
arinn eitt sinn að fræða okkur
um lítið óalgengt skordýr, en
Maggi vissi meira um það en
kennarinn sjálfur.
Eins og gengur slitnaði þráð-
urinn milli okkar frændsystkin-
anna í nokkur ár. Bæði vorum
við í námi í útlöndum um tíma,
en mikið var gaman að hitta
Magga mörgum árum seinna og
kynnast þá Hlíf, hans góðu og
skemmtilegu konu. Maggi var
mikill náttúruunnandi og bar-
áttumaður fyrir verndun ís-
lenskrar náttúru. Alltaf var
gaman að hlusta á ævintýri sem
hann hafði lent í á ferðalögum
þar sem hann fór um fjöll og
firnindi. Hann var mikill mann-
vinur og sýndi það í verki þegar
hann tók virkan þátt í hjálpar-
starfi víða um heim. Á langri
ævi lenti hann oft í ýmsum raun-
um, alvarlegum slysum og veik-
indum, en hans meðfædda bjart-
sýni, hugarró og góðvild til allra
sem hann umgekkst gerði hann
að miklum gæfumanni. Minn-
ingin um hann og lífsverk hans
mun lifa með þjóðinni. Ég sakna
hans og ætla nú að kveðja hann
með svipuðum orðum og hann
var vanur að kveðja mig með
þegar við töluðum saman í síma:
Ævinlega blessaður, kæri vinur
og frændi.
Kristín Jónsdóttir
frá Munkaþverá.
Á Landspítala
vinnur stór hópur
fólks, fólk sem sjúk-
lingar og aðstand-
endur sjá og svo allt hitt fólkið.
Fólkið sem kemur að þeirri
margbreytilegu vinnu, sem þarf
til að sjúkrahús virki frá degi til
dags. Einn slíkur hópur eru
tölvukallarnir og svo auðvitað
tölvukonurnar og Dóra var ein af
tölvukonunum á Landspítala.
Hún byrjaði að vinna þar stuttu
eftir að námi í tölvunarfræðinni
lauk og þar vann hún þar til
starfsævinni lauk vegna veik-
inda. Dóra kom að fjölmörgum
verkefnum og sinnti mörgum
tölvukerfum í sínu starfi. Eitt síð-
asta stóra verkefnið sem Dóra
kom að var innleiðing og kerfis-
stjórn fyrir rafrænt lyfja-
skömmtunarkerfi. Í því verkefni
Halldóra
Magnúsdóttir
✝ HalldóraMagnúsdóttir
fæddist 9. ágúst
1954. Hún lést 1.
nóvember 2020.
Útför Halldóru
fór fram 19. nóv-
ember 2020.
var hún vakin og
sofin, hún taldi ekki
eftir sér að standa
upp úr sófanum á
kvöldin og skjótast
upp á spítala, bara
af því einhver hjúkr-
unarfræðingurinn
var í vandræðum
með kerfið. Ég er
viss um að stór hóp-
ur starfsmanna
LSH minnist Dóru
með miklu þakklæti fyrir alla þá
aðstoð sem hún veitti öll árin sem
hún kom að kerfisstjórn lyfja-
skömmtunarkerfisins. En Dóra
var ekki bara vakin og sofin í
vinnunni, hún átti sér áhugamál
utan vinnunnar, áhugamál sem
hún stundaði af krafti og miklum
áhuga, annars vegar var það
briddsinn yfir veturinn og á
sumrin tók golfið við.
Fyrir tólf árum greindist Dóra
með krabbamein og við tók lang-
ur og erfiður tími aðgerða og
meðferða. Meðferðin tók á, en
hún tók á henni með krafti og
keppnisskapi og var ákveðin í að
koma aftur til starfa. Eftir langt
og strangt meðferðarferli kom
hún aftur í vinnuna. Hún átti
mörg góð ár, en fyrir rúmlega
tveimur árum kom krabbinn aft-
ur og þá dugði seiglan og keppn-
isskapið ekki lengur. Hún þurfti
að játa sig sigraða.
Þó svo Dóra hafi verið upptek-
in í vinnu, bridds og golfi gaf hún
sér alltaf tíma til að sinna fjöl-
skyldunni sinni. Hún átti stóra og
góða fjölskyldu sem henni þótti
vænt um. Hún skaust oft til for-
eldra sinna í hádeginu, bara til að
hitta þau og spjalla. Synirnir þrír
voru henni mikils virði og fengum
við vinnufélagarnir að fylgjast
með þeim í leik og starfi, í gegn-
um hana. Og svo þegar litla
ömmustúlkan bættist í hópinn, þá
var ljóst að nú var Dóra búin að
fá enn eitt hlutverkið, sem yrði
henni til gleði og ánægju. Litla
ömmustúlkan var auðvitað sú fal-
legasta og besta sem sést hafði.
Því miður fá litlu barnabörnin
sem nú eru orðin þrjú ekki að
kynnast ömmu Dóru.
Fyrir hönd núverandi og fyrr-
verandi samstarfskvenna á tölvu-
deild Landspítalans kveð ég
Dóru og þakka samstarfið. Fjöl-
skyldu Dóru sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.
Ingibjörg Richter.
Þegar Halldóra lauk námi í
tölvunarfræði frá Háskóla Ís-
lands voru á þeim tíma tiltölulega
fáar konur sem höfðu aflað sér
þeirrar menntunar. Þetta var
vorið 1985, fyrir tíma einkatölv-
unnar og hvað þá netsins. En
stórfyrirtæki voru þó að feta sín
fyrstu alvöruspor í tölvu-
tækninni.
Sú var staðan á Landspítalan-
um þegar Halldóra réð sig til
starfa á tölvudeildinni, þar sem
hún vann lengstan hluta starfs-
ævinnar.
Hún tók á löngum ferli að sér
ýmis verkefni, en umfangsmest
var þó innleiðing á nýju lyfjafyr-
irmælakerfi. Þetta var flókið
verkefni sem Halldóra sinnti af
samviskusemi og metnaði. Fyrir
Landspítalann var það stórt
framfaraskref að leggja af fyrir-
mæli á pappír og nota þess í stað
fullkomið rafrænt kerfi.
Halldóra tókst á sama hátt á
við sína krabbameinsmeðferð af
festu og æðruleysi. Hún lagði
hart að sér að koma aftur til
starfa og taka upp þráðinn þar
sem frá var horfið. En fáum árum
síðar var ljóst að heilsu hennar
var enn farið að hraka og hið ill-
skeytta mein komið til að vera. Á
Birkiborg í Fossvogi starfaði með
Halldóru þéttur og góður hópur
starfsmanna Hugbúnaðarlausna
sem sendir aðstandendum henn-
ar samúðarkveðjur á þessum erf-
iðu tímamótum.
Hannes Þór Bjarnason.
Í dag kveðjum við
Öbbu vinkonu okk-
ar, með sorg og
söknuði.
Við kynntumst allar við störf
okkar á sjúkrahúsinu á Króknum
á síðustu öld. Úr varð mikil og
Aðalbjörg
Vagnsdóttir
✝ AðalbjörgVagnsdóttir
(Abba) fæddist 21.
nóvember 1951.
Hún lést 28. októ-
ber 2020.
Útför Öbbu fór
fram 12. nóvember
2020.
góð vinátta og stofn-
uðum við fjórar
spilaklúbb, þar sem
við spiluðum kana af
mikilli innlifun og
færðum allt til bók-
ar. Það var mikið
gaman. Þvílíkar
gleðistundir og góð-
ar minningar sem
við eigum frá þeim
tíma. Oftast var
spilað heima hjá
Öbbu og Kidda. Stundum fram
undir morgun. En það var nú þá,
er við vorum aðeins yngri.
Hún hafði einstaka unun af því
að matbúa og prófa eitthvað nýtt,
og nutum við góðs af frábærum
veitingum sem hún reiddi fram.
Síðast spiluðum við 9. september
og þá var veisluborð hjá henni.
Hún lagði ást og alúð í allt sem
hún gerði. Matreiðslubækurnar
hennar (allar handskrifaðar) eru
listaverk, og lýsa henni vel.
Heimili þeirra Kidda er fallegt,
öllu smekklega fyrir komið, og
allir alltaf velkomnir.
Minnisstæð er ferð okkar í
Hegranesið til Hönnu þar sem
við gistum í tjaldvagni. Við reist-
um indíánatjald þar sem horft
var til himins um leið og losað
var. Um morguninn þegar við
vöknuðum hringdu allir símar til
að vara okkur við því að ísbjörn
væri genginn á land! Þvílíkt.
Við vorum oft búnar að rifja
þetta upp og hlæja að þessari úti-
legu okkar.
Hún elskaði náttúruna og sín-
ar æskustöðvar. Sagði gjarnan:
„Sjáið þið blessuðu Blönduhlíðina
mína og Blönduhlíðarfjöllin.“ Síð-
asta sprettinum í löngu sjúk-
dómsstríði hennar er lokið. Hún
tókst á við það af slíku æðruleysi
og jafnaðargeði að eftir var tekið.
Hún var hetja. Við kveðjum góða
vinkonu með þakklæti fyrir allar
samverustundirnar gegnum um
árin. „Lovjú!“
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vinátta er
verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson)
Elsku Kiddi og fjölskylda,
innilegar samúðarkveðjur til
ykkar allra.
Jóhanna, Ingibjörg
og Hafdís.
Elsku pabbi.
Þá er komið að
þessari stundu sem
ég hef kviðið lengi eða allt frá
því að fyrst uppgötvaðist að
mein væri komið sem þurfti að
vinna sigur á og eyða burt.
Endalokin voru fjarlæg, lífið
gekk sinn vanagang, við hitt-
umst reglulega og ræddum
málin, fórum yfir málefni líð-
andi stundar og rökræddum
hitt og þetta. Þú ætlaðir að
sigrast á þessum fjanda, það
kom ekkert annað til greina og
þú varst sjálfum þér líkur með
það að þrátt fyrir alla barátt-
una lést þú þér hvorki fallast
hendur né falla verk úr hendi.
Bara núna síðasta sumar klár-
aðir þú meira að segja að smíða
pall sem við gerðum úti í garði
í Grundargerðinu.
Ég man ekki eftir þér öðru-
vísi en með eitthvað í hönd-
unum, hvort sem það var við
húsið heima, í bílskúrnum eða í
tölvunni, alltaf var eitthvað haft
fyrir stafni.
Allt frá því ég man eftir mér
var alltaf auðvelt að koma til
þín og ræða við þig, skoða
verkefni eða vandamál saman,
finna leið til að gera eitthvað
betur. Laga eitthvað, smíða eða
hanna eitthvað, alltaf var hægt
að leita til þín, elsku pabbi, og
þú tókst alltaf opnum örmum á
móti mér og gafst mér af tím-
anum þínum.
Ég man í gamla daga þegar
fjárhagurinn var ekki sterkur,
þá voru bílarnir oft í eldri kant-
inum og oft þurfti að laga eitt-
hvað. Þá fékk ég að vera með
þér úti í skúr hjá Bjössa afa að
laga hitt og þetta. Í öll þau
skipti sem við þurftum að flytja
því fjölskyldan stækkaði var
múrað, pípað, smíðað eða mál-
að. Allt þetta gerðum við sam-
an því það var þinn háttur. Þú
varst alltaf svo óeigingjarn og
örlátur á þinn tíma og gafst þér
alltaf tíma til að hjálpa, alveg
sama hver átti í hlut.
Það er sá kostur sem mér er
minnisstæðastur allra af þínum
mörgu kostum, þú sást það
góða í öllum sem þú hittir og
kynntist.
Þér lynti vel við alla og þér
tókst alltaf að finna eitthvað
áhugavert og jákvætt í fari
allra sem þú hittir.
Nú eru tímarnir breyttir og
Árni Mogens
Björnsson
✝ Árni MogensBjörnsson
fæddist 30. ágúst
1946. Hann and-
aðist 23. október
2020.
Útför Árna var
gerð 9. nóvember
2020.
allir staðirnir þar
sem við eyddum
tíma saman eru
tómlegri. Þú ert
ekki lengur í
skúrnum að koma
fyrir og raða verk-
færunum og vélun-
um þínum. Við er-
um ekki að fara að
hittast næstu helgi
til að laga eitthvað
í húsinu og erum
ekki að undirbúa pallasmíð eða
finna út úr einhverju verkefni í
tölvunni.
Lífið heldur áfram hjá þeim
sem kveðja þig í þessum heimi
og vona ég að við taki góður
staður þar sem þér líður vel og
að á móti þér taki ættingjar og
vinir sem þú getur átt góðar
stundir með. Það líður ekki sá
dagur, elsku pabbi, að ég hugsi
ekki til þín með söknuði. Ég er
að glíma við þá einkennilegu
tilfinningu sem grípur mig,
þegar ég átta mig á því að þú
ert ekki lengur hér. Ekki er
hægt að hringja í þig, elsku
pabbi, og ekki er hægt að
skreppa til þín heim í Grund-
argerði eða niður í vinnu til þín,
eins og maður gerði svo oft, því
þú ert farinn. Þú munt samt
alltaf vera hjá okkur. Þú lifir í
mér, systkinum mínum og
börnunum mínum. Við munum
öll minnast þín, elsku pabbi,
með hlýhug og endalausri ást
eins og þú gafst okkur allan
þann tíma sem við áttum sam-
an.
Bless, elsku pabbi.
Björn (Bjössi).
Elsku besti afi, mér finnst
gífurlega leiðinlegt að þú ert
farinn. Ég sakna þín gífurlega
og sérstaklega tímans sem við
eyddum saman.
Það eru hlutir sem við ætl-
uðum að gera saman en nú ert
þú ekki lengur hér. Frá því að
ég var lítill Guttormur hafði ég
endalausan áhuga á öllu dótinu
sem þú áttir þótt sumir kölluðu
þetta rusl, sérstaklega hafði ég
áhuga á bílskúrnum þínum sem
var í mínum augum gullkista af
alls kyns dóti sem ég vissi ekk-
ert um.
Ég hef enn þá svo margar
spurningar um hlutina sem eru
í bílskúrnum þínum og það
verður erfitt að finna réttu
svörin núna. Þú varst búinn að
safna heilum hellingi af fínum
steinum sem við ætluðum að
vinna með og búa til flotta hluti
úr. Ég vona að ég geti klárað
það sem þú gast ekki byrjað á
og gert það eins vel og þú hefð-
ir gert það.
Guðbjartur Árni.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár